Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 17:30
Ótrúlegt!!! Ryder Cup lið Evrópu var ekki valið lið ársins af BBC

Í gær fór fram val á liði ársins á BBC sjónvarpsstöðinni bresku og jafnframt var valinn íþróttamaður ársins. Íþróttamaður ársins í Bretlandi í ár er hjólreiðakappinn Bradley Wiggins og er hann vel að verðlaununum kominn. Val á liði ársins er hins vegar umdeildara, en valið var Team GB þ.e. lið Breta á Olympíuleikunum, sem fram fóru að þessu sinni í London. Mörgum finnst hreint ótrúlegt að töfralið Evrópu í Ryder bikarnum, sem sneri gjörtapaðri stöðu í einn magnaðasta sigur síðari tíma skuli ekki hafa verið valið. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Ian Poulter og Justin Rose ræða við Gary Lineker um „kraftaverkið í Medinah“ eins og sögulegur umsnúningurinn í einni Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 16:00
Davis Love III og sonur hans Dru sigra í feðga-keppninni – myndskeið

„Loves conquer all“ er fyrirsögn fréttar á PGA um feðga-mótið (með Texas fyrirkomulagi) þ.e. PNC Father-Son Challenge, sem fram fór nú um helgina í Ritz Carlton golfklúbbnum í Orlandó, Flórída. Þar er vísað til sigurs Love-feðga Davis og Dru, en þeir sigruðu þá Larry Nelson, sem var að gera sér vonir um að verða næsti fyrirliði Bandaríkjamanna í Ryder Cup 2014 og son hans, Josh. Sigurhringur Love-feðga var upp á 11 undir pari 61 högg og áttu þeir 1 högg á Nelson-feðga, sem töpuðu því naumlega Larry Nelson og Josh hafa 2 sinnum áður sigrað í mótinu 2007 og 2008, en síðan var gert 3 ára hlé og var mótið nú Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Þór Gunnarsson – 17. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Gunnar Þór Gunnarsson. Gunnar er fæddur 17. desember 1964. Hann er í þeim skemmtilega golffélagsskap Elítunni, sem er hópur 20 hressra kylfinga, sem flestir eru í GR. Meðlimir Elítunnar eru ekki grænir í golfi þótt félagsjakkinn sé það (eins og í öðrum frægum golfklúbbi :-)) en meðaltal forgjafar meðlima er 9,8. Afmæliskylfingurinn er með 9,4 í forgjöf. Elítan heldur m.a. úti vefsíðu sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Rocco Mediate, 17. desember 1962 (50 ára merkisafmæli!!!); Tim Clark, 17. desember 1975 (37 ára); Tracey Boyes, 17. desember 1981 (31 árs) ….. og ….. Hafdís Alda (15 ára!!!! Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 09:30
Sólskinstúrinn: Schwartzel náði ekki að slá met Tiger

Charl Schwartzel vann í gær með miklum 12 högga mun á Alfred Dunhill Championship á Leopard Creek golfvellinum í Malelane, Suður-Afríku. Vikuna þar áður á Thaíland Golf Championship á Asíutúrnum vann hann með 11 högga mun. Spurningin í gær var aldrei HVORT hinn 28 ára Schwartzel myndi sigra í mótinu og bæta þar með við 8. Evróputitli sínum, en Alfred Dunhill er samstarfsverkefni Sólskinstúrsins og Evrópumótaraðarinnar, heldur hvort honum myndi takast að slá met Tiger Woods, sem sigraði með 15 högga mun á næsta mann í Opna bandaríska 2000. Það er til dagsins í dag stærsti munur á kylfingi í 1. og 2. sæti í sögu Evrópumótaraðarinnar. Schwartzel hélt áfram frábærum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 09:00
Síðasti heimslisti 2012 birtur í gær – Olesen og Coetzee spila á Masters

Í gær var birtur 52. og síðasti heimslisti ársins 2012, en hann er birtur vikurlega og endurspeglar hverjir eru heimsins bestu kylfingar á hverjum tíma. Röð efstu kylfinga er óbreytt: 1. sæti Rory McIlroy, 2. sæti Luke Donald, 3. sæti Tiger Woods, 4. sæti Justin Rose, 5. sæti Adam Scott, 6. sæti Louis Oosthuizen, 7. sæti Lee Westwood, 8. sæti Bubba Watson, 9. sæti Jason Dufner og 10. sæti Brandt Snedeker. Það sem vekur athygli er að Charl Schwartzel frá Suður-Afríku fór upp í 14. sætið fyrir glæsilegan sigur sinn í Malelane í Suður-Afríku á Alfred Dunhill mótinu nú um helgina, en hann var kominn upp í 23. sætið (úr 27. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 07:55
Popovic með stór plön fyrir árið 2013

Frá því að Daniel Popovic sigraði á Australian PGA Championship í gær hefir hann haldið upp á sigurinn með vinum í alla nótt og tekið við ótal hamingjuóskum. Það má segja að ekki hafi verið vinsælli sigurvegari í 11 ára sögu mótsins á Coolum golfstaðnum í Ástralíu og Popovic var meira en ánægður að rétta mönnum, sem vildu drekka hans skál Joe Kirkwood silfurbikarinn – verðlaunagripinn í mótinu. Það fyrsta sem Popovic sagði eftir sigurinn var: „2013 verður algjörlega öðruvísi en ég var búinn að planleggja fyrir 2 vikum.“ Og það er hverju orði sannara. Í staðinn fyrir að fara í gegnum öll stig PGA ástralasíu túrsins í von um að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 20:00
Hver er kylfingurinn: Byron Nelson? (2/4) 16. grein af 24 um „The Match“

Hér verður fram haldið kynningu á einni af 4 aðalsöguhetjum í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever.” Byron Nelson var annar af 2 atvinnumönnunum (hinn var Ben Hogan, sem þegar hefir verið kynntur) sem kepptu við tvo áhugamenn í fjórleik (þ.e. Ken Venturi og Harvie Ward sem einnig hafa þegar verið kynntir til sögunnar) vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik. Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Kynningin Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 18:40
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Björn Åkesson (14. grein af 28)

Í dag verður annar af tveimur kylfingum kynntir sem deildu með sér 14. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar sem fram fór á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona, Spáni, dagana 24.-29. nóvember s.l. Í dag verður byrjað á Svíanum Björn Åkesson. Björn Åkesson fæddist 4. janúar 1989 í Malmö, Svíþjóð og er því 23 ára. Hann spilaði íshokkí, fótbolta og golf sem krakki en einbeitti sér að golfinu vegna hæðar sinnar. Gefum Birni orðið: „Þegar ég var um 14 ára gamall uxu allir strákarnir í kringum mig en ég var eitthvað seinþroska, Ég fór úr því að vera virkilega góður íshokkímaður í miðlungs. Þannig að það var meira gaman í golfi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 17:00
Sólskinstúrinn: Charl Schwartzel sigraði á Alfred Dunhill Championship
Charl Schwartzel frá Suður-Afríku sigraði glæsilega á „heimavelli“ þ.e. Leopard Creek golfvellinum í Malelane í Suður-Afríku nú rétt í þessu. Búið var að fresta mótinu vegna veðurs en síðan stytti upp og var því fram haldið. Schwartzel spilaði á samtals 24 undir pari, 264 höggum (67 64 64 69) og átti heil 12 högg á næsta keppanda, Svíann Kristoffer Broberg, sem var á 12 undir pari 276 höggum (70 69 67 70). Fjórir kylfingar deildu 3. sætinu á 11 undir pari, þ.á.m. Grégory Bourdy frá Frakklandi. Til þess að sjá úrslitin á Alfred Dunhill Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 16:55
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Lauren Doughtie (11. grein af 27)

Í dag verður 1 af 7 stúlkum kynnt sem varð í 17. sæti á lokaúrtökumóti LPGA sem fram fór á Daytona Beach í Flórída, dagana 28. nóvember – 2. desember 2012. Stúlkurnar 7 fóru í bráðabana um lausu sætin 4 (þ.e. 17., 18., 19. og 20. sætið) en aðeins efstu 20 stúlkurnar á lokaúrtökumótinu hlutu full keppnisréttindi á LPGA fyrir keppnistímabilið 2013. Þær 3 óheppnu sem töpuðu í bráðabananum, Breanna Elliott, Kelly Jacques og Jiayn Li hafa þegar verið kynntar, sem og þrjár af þeim heppnu, Irene Cho, Taylore Karle og Nicole, sem hlutu full keppnisréttindi. Í dag verður sú síðasta kynnt sem varð í 17. sæti, bandaríska stúlkan Lauren Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

