Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Shin Ae Ahn – 18. desember 2012

Afmæliskyfingur dagsins er Shin Ae Ahn frá Suður-Kóreu.  Shin fæddist 18. desember 1990 og er því 22 ára í dag. Hún vakti  verðskuldaða athygli á Evían Masters mótinu, í Évian-Les-Bains, í Frakklandi í fyrra, 2011. Þessi geðþekka, unga stúlka frá Suður-Kóreu  deildi efsta sætinu þar með sér reyndari og þekktari kvenkylfingum, flesta dagana, sem mótið fór fram (‎m.a. Karen Stupples og Mariu Hjorth) og gekk mun betur en heimsþekktum kvenkylfingum, (s.s. Paulu Creamer, Cristie Kerr og Yani Tseng.) Shin Ae Ahn spilaði fyrsta tímabilið sitt á KLPGA árið 2009 og átti mjög gott ár sem nýliði. Hún var 4 sinnum meðal 10 efstu og var í 21. sæti á peningalistanum í Suður-Kóreu. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 10:30

Viðtal við Ian Poulter

Á Sky Sports er skemmtilegt viðtal við Ian Poulter svona í lok ársins 2012, sem lyfti honum upp í stöðu súperstjörnu eftir frábæran árangur hans á Ryder bikarnum í Medinah. Ian Poulter er þekktur fyrir að vera einn af ástríðufyllstu kylfingum leiksins og átti einn stærsta þátt í sigri Ryder bikars liðs Evrópu í Medinah. Þegar staðan var 10-4 fyrir Bandaríkin hreinlega URÐU síðustu tveir fjórboltaleikirnir að vinnast.  Luke Donald og Sergio Garcia unnu þá Tiger Woods og Steve Stricker og nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy og Ian Poulter tryggðu dýrmætan 6. vinninginn á laugardeginum. Og síðan tvímenningsleikirnir á sunnudeginum….. þar var golfsagan skrifuð. Á sunnudeginum vann Ian Poulter Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 09:30

GSG: Jólavetrarmót Nettó haldið næsta laugardag

Laugardaginn 22. desember n.k. verður haldið Jóla vetrarmót Nettó á Kirkjubólsvelli þeirra Sandgerðinga. Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni með forgjöf og hámarksforgjöf karla er 24 og kvenna 28.   Verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin. Mæting er kl. 10:30 og ræst er út á öllum teigum kl. 11:30 samtímis.  Leiknar verða holur 1-11 og síðan 18. heim í skála, eða alls 12 holur. Þeir sem hug hafa á því að taka þátt eru beðnir að skrá sig til leiks á golf.is,  en komast má inn á síðuna með því að SMELLA HÉR:  Jólamótið er að sjálfsögðu háð góðu veðri en sem stendur lofar langtímaspáin góðu! SMELLIÐ HÉR til að fylgjast með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 09:15

Tiger stefnir á risamótssigra 2013

Tiger Woods hefir náð sér á þessu ári; bæði er hann laus við óþægilega pressuna, sem á honum hvíldi vegna skandala í einkalífinu og eins er hann búinn að jafna sig á líkamlegum meiðslum, sem hann hefir þurft að glíma við. Hann var í frjálsu falli á heimslistanum en er nú búinn að vinna sig upp í 3. sætið á heimslistanum, sem er frábær árangur! Á þessu keppnistímabili náði hann líka að fara fram úr Jack Nicklaus a.m.k. í einu tilliti: Jack hefir alls unnið 73 PGA titla. Tiger bætti 3 sigrum á PGA við vinningalista sinn á þessu ári og hefir því alls sigrað 74 sinnum á PGA.  Þetta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 07:30

Andri Þór og Arnór Ingi keppa á Dixie Amateur í Flórída í dag

Andri Þór Björnsson, GR  og Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR, spila í dag á 82. Dixie Amateur mótinu í Coral Springs, Flórída. Mótið er 4 hringja, stendur dagana 18.-21. desember 2012 og skorið er niður eftir 3 hringi (54 holur). Andri Þór fer út af 1. teig kl. 9:36 (kl. 14:36 að íslenskum tíma) og Arnór Ingi kl. 11:06 að staðartíma (kl. 16:06 að íslenskum tíma). Golf 1 óskar þeim Andra Þór og Arnór Inga góðs gengis!!! Til þess að fylgjast með gengi Andra Þórs og Arnós Inga SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 20:45

Hver er kylfingurinn: Byron Nelson? (3/4) 17. grein af 24 um „The Match“

Hér verður fram haldið kynningu á einni af 4 aðalsöguhetjum í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever.” Byron Nelson var annar af 2 atvinnumönnunum (hinn var Ben Hogan, sem þegar hefir verið kynntur) sem kepptu við tvo áhugamenn í fjórleik (þ.e. Ken Venturi og Harvie Ward sem einnig hafa þegar verið kynntir til sögunnar) vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik. Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Kynningin Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 20:15

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Matteo Delpodio (15. grein af 28)

Í dag verður hinn kylfingurinn kynntur sem varð í 14. sæti á lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar á PGA Catalunya golfstaðnum, í Girona á Spáni, dagana 24.-29. nóvember s.l…. Matteo Delpodio frá Ítalíu. Matteo fæddist 23. júní 1985 í Torínó á Ítalíu og er því 27 ára. Hann byrjaði næstum í golfi fyrir tilviljun þegar hann lenti í skíðaslysi og fótbraut sig. Hann sló bolta til þess að hafa ofan af fyrir sér meðan hann var í gifsi. Þegar fótbrotið var gróið fór hann á golfvöll og fékk síðan golfbakteríuna. Matteo byrjaði í Torino Golf Club La Mandria þegar hann var 16 ára, sama klúbbi og Molinari bræður eru í og sama Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 20:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Brooke Pancake (12. grein af 27)

Pönnukaka er komin á LPGA!!! Í dag verður byrjað að kynna þær 6 stúlkur, sem deildu 11. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school á Daytona Beach og flugu inn á LPGA: Marinu Stuetz, Caroline Masson, Austin Ernst, Brooke Pancake, Kim Welch og Kaylu Mortellaro. Byrjað verður á pönnukökunni okkar, Brooke Pancake  (en pönnukaka var viðurnefni hennar í háskólagolfinu). Brooke Pancake fæddist 6. júní 1990 í Chattanooga, Tennessee og varð því 22 ára í ár. Hún byrjaði að spila golf 8 ára en það var afi hennar, Jimbo Eakin, sem kenndi henni. „Ég byrjaði svolítið seint miðað við alla toppkylfingana í dag. Ég var ekki komin á fullt í golfið fyrr en við 10 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 19:00

Man nokkur eftir „kamarshögginu“ fræga?

Í Golf á Íslandi, 800 bls. stórvirki þeirra Steinars J. Lúðvíkssonar og Gullveigar Sæmundsdóttir, er m.a. rifjuð upp sagan af „kamarshögginu“ fræga og er það ein af mörgum skemmtilegum sögum í ritverkinu. Kamarshöggið var slegið á Íslandsmótinu á Akureyri 1961. Það var kylfingurinn góðkunni Hallgrímur Þorgrímsson (Halli Togga) sem sló höggið þannig að boltinn flaug í gegnum forláta kamar sem var á Jaðarsvelli, en heimamenn höfðu komið honum upp til hægðarauka fyrir keppendur. Segir svo í frásögn í Golf á Íslandi: „Vildi það gesti hússins (kamarsins) til lífs að hann sat en boltinn var í axlarhæð standandi manns. Halli varð að greiða manninum kappleikjargjaldið tilbaka en aumingja maðurinn var ófær um Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2012 | 18:30

LET: Ariya Jutanugarn efst í Q-school í Marokkó – Cheyenne Woods hlaut ekki kortið sitt á LET

Í dag lauk lokaúrtökumóti LET og hlutu efstu 30 stúlkurnar af 60 sem spiluðu lokahringinn á Al Maaden golfvellinum kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna fyrir keppnistímabili 2013. Cheyenne Woods, frænka Tigers var því miður ein af þeim sem deildi 36. sætinu og hlaut því ekki fullan keppnisrétt á LET keppnistímabilið 2013. Hin 17 ára thaílenska Ariya Jutanugarn varð efst; spilaði hringina 5 á lokaúrtökumótinu á samtals 24 undir pari, 336 höggum (68 70 64 65 69) og setti m.a. vallarmet á 3. degi, sem jafnframt var persónulega besti hringur hennar til þessa. Þær 30 stúlkur sem hlutu fullan keppnisrétt á LET eru eftirfarandi: 1. Ariya Jutanugarn frá Thailandi; 2. Nikki Lesa meira