Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 16:30
LET: Ariya Jutanugarn eykur forystu sína í Marokkó

Nú er ljóst hvaða 60 stúlkur spila um eitt af 30 kortum á LET og fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna árið 2013 á morgun. Í efsta sæti er 17 ára stúlka, Ariya Jutanugarn, sem er aldeilis búin að slá í gegn – er búin að spila á samtals 21 undir pari, 267 höggum (68 70 64 65). Ariya er með 3 högga forystu á Emily Taylor sem heldur 2. sætinu á samtals 18 undir pari og í 3. sæti er Bonita Bredenhann frá Namibíu, sem búin er að spila á samtals 16 undir pari. Ein af þeim 60 sem komst í gegnum lokaniðurskurðinn er Cheyenne Woods og er hún ein Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 16:00
Asíutúrinn: Sergio Garcia sigraði á Johor Iskandar – Thaworn Wiratchant efstur á peningalista Asíutúrsins

Þrumur, eldingar og miklar rigningar urðu til þess að ákvörðun var tekin nú síðdegis að stytta Johor Iskandar Open í Malasíu í 54 holu mót. Þar með er ljóst að spænski kylfingurinn Sergio Garcia er sigurvegari mótsins. Hann og Englendingurinn Jonathan Moore áttu glæsihringi í dag upp á 61 högg. Samtals spilaði Garcia á 18 undir pari, 198 höggum (68 69 61). Jonathan Moore varð í 2. sæti, 3 höggum á eftir Garcia á samtals 15 undir pari, 201 höggi (69 71 61). Í 3. sæti varð Thongchai Jaidee frá Thaílandi á 14 undir pari, 202 höggum (66 71 65). Í 4. sæti varð síðan sænsk-indverski kylfingurinn Daníel Chopra, sem leiddi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 15:00
Frægir kylfingar: Clint Eastwood

Clint Eastwood fæddist 31. maí 1930 og varð því 82 ára á þessu ári. Hann er leikari en mikill áhugakylfingur líka. Meðal þekktustu hlutverka Eastwood eru eflaust sjónvarpsþættirnir um Rawhide (1959-1966) og Spagettívestrarnir m.a. „The man with no name.“ „Play Misty for me“ frá árinu 1971 var fyrsta myndin sem hann lék í og leikstýrði jafnframt, en upp frá því hefir hann leikstýrt flestum myndum sem hann hefir leikið í. Nýjasta kvikmynd Clint Eastwood, sem kom út á þessu ári er „Trouble with the curve.“ Allan kvikmyndaferil sinn var Clint þekktur af því að spila golf í tökuhléum. Á lista sem Golf Digest tók saman yfir bestu kylfinga í Hollywood Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 13:45
Sólskinstúrinn: Leik frestað vegna veðurs – Schwartzel svo gott sem búinn tryggja sér sigur á Alfred Dunhill Championship

Charl Schwartzel er svo til búinn að tryggja sér sigur á Alfred Dunhill Championship. Hann er samtals búinn að spila á 21 undir pari (67 64 64). Sá sem er næstur honum, Frakkinn Grégory Bourdy, er á samtals 13 undir pari og þarf því að vinna upp 9 högg á 9 holum þ.e. fá fugla á hverja holu eða treysta á að Charl geri einhver stórvægileg mistök! Ekki mikið útlit fyrir það! Nú fyrir nokkrum mínútum var mótinu frestað vegna veðurs og þá var síðasta holl, sem í eru m.a. Charl Schwartzel rétt búið að ljúka leik á fyrri 9. Í dag er Charl Schwartzel á sléttu pari, fékk skolla Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Paul McGinley – 16. desember 2012

Það er írski kylfingurinn Paul McGinley og aðstoðarfyrirliði undanfarandi Ryder Cup liða Evrópu sem er afmæliskylfingur dagsins. McGinley er fæddur 16. desember 1966 og því 46 ára í dag. Meirihluti kraftaverkaliðs Evrópu í Medinah er á því að gera eigi McGinley að fyrirliða liðs Evrópu í Ryder Cup sem fram fer í Gleneagles, Skotlandi, 2014. Hafa heimsins besti Rory McIlroy og Pádraig Harrington m.a. tjáð sig um það nýlega að þeim finnist að velja eigi McGinley. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Steven Spray, 16. desember 1940 (72 ára); Brian Clark, 16. desember 1963 (49 ára); Cathy Johnston-Forbes, 16. desember 1963 (49 ára); Brent Franklin, 16. desember 1965 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 11:00
LET: Spennan að ná hámarki á lokaúrtöku- mótinu í Marokkó – Ariya Jutanugarn frá Thaílandi efst þegar eftir á að spila 2 hringi

Þó Tinna „okkar“ Jóhannsdóttir, atvinnumaður úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, hafi ekki komist í gegnum niðurskurð á forúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna í Marokkó, þá er lokaúrtökumótið enn í fullum gangi. Spennan er í hámarki þegar eftir er að spila 2 hringi. Í forúrtökumótinu, sem Tinna keppti í var þátttakendum skipt upp í 2 riðla: A- og B-riðil. Spilaðir voru 4 hringir og þar eftir skorið niður. Niðurskurður í B-riðli miðaðist við 6 yfir pari og munaði aðeins 2 höggum að Tinna kæmist áfram í lokaúrtökumótið. Í lokaúrtökumótinu eru spilaðir 5 hringir. Efstu 45 úr forúrtökumótum A- og B-riðils, auk 51 stúlku af LET , eða samtals 141 stúlka, keppa um Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 10:30
Lið Asíu sigraði í Royal Trophy

Lið Asíu vann 2. sigur sinn í Royal Trophy en liðið hefir aðeins unnið 1 sinni, 2009 meðan lið Evrópu hefir sigrað 4 sinnum. Eftir að hafa verið undir 3 1/2 gegn 1/2 vinningi á föstudeginum var lið Asíu í mikilli sókn í gær og náði í 3 vinninga á móti 1 vinningi Evrópu. Staðan sem sagt 4 1/2 – 3 1/2 fyrir 8 tvímenningsleiki dagsins í dag, Evrópu í vil. José Maria Olázabal fyrirliði Evrópu varð að draga sig úr keppni vegna meiðsla í hálsvöðva þannig að ákveðið var fyrirhugaður leikur hans við Bae Sang-moon frá Suður-Kóreu skyldi falla á jöfnu. Fyrirliði liðs Asíu, Joe Ozaki var búinn að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 10:00
Asíutúrinn: Sergio Garcia að slá í gegn á 3. degi Johor Iskandar – lék á 11 undir pari – 61 höggi!!!

Í Horizon Hills Golf & Country Club í Johor Bahru, Malasíu fer fram dagana 13.-16. desember 2012 Iskandar Johor Open. Slæmt veður hefir sett strik í reikninginn og hafa orðið miklar tafir í mótinu. Á 3. degi mótsins var það spænski kylfingurinn Sergio Garcia sem fór á kostum, átti hring upp á 61 högg!!! Hringurinn var frábær en hann deildi bara lægsta skori dagsins með Englendingnum, Jonathan Moore, sem einnig átti hring upp á 61 högg og er nú í 2. sæti, 3 höggum á eftir Garica. Samtals er Garcia búinn að spila á 18 undir pari, 198 höggum (68 69 61). Jonathan Moore eer hins vegar á 15 undir pari (69 71 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 09:00
Daníel Popovic sigraði á Australian PGA Championship
Það var ástralski kylfingurinn Daníel Popoivc sem sigraði á Australian PGA Championship og er þetta fyrsti sigur hans á ástralska PGA. Popovic vann með 4 högga mun á þá sem næstir komu, landa sína Anthony Brown og Rod Pampling. Samtals lék Popovic á 16 undir pari, 272 höggum (64 70 69 69). Þeir Anthony Brown og Rod Pampling voru á samtals 12 undir pari, 276 höggum hvor; Brown (73 68 64 71) og Pampling (71 67 69 69).. Fjórða sætinu deildu þeir Geoff Ogilvy og Brad Kennedy á 11 undir pari og í 6. sæti voru Green-arnir áströlsku; Nathan og Richard á samtals 10 undir pari. Níu kylfingar deildu síðan Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2012 | 08:00
Staðan 4 1/2 -3 1/2 Evrópu í vil á Royal Trophy

Staðan er 4 1/2 -3 1/2 í Royal Trophy Evrópu í vil eftir fjórboltaleiki laugardagsins, en lið Asíu er heldur betur í sókn. Lið Evrópu er nú aðeins með 1 vinnings forskot fyrir 8 tvímenningsleiki dagsins í dag, sem spilaðir verða í Empire Country Club í Brunei . Lið Evrópu, undir forystu Jose Maria Olazabal þarfnast 4 vinninga til þess að tryggja sér sigurinn, þ.e. helmingur leikjanna í dag þarf að vinnast, en til þess að lið Asíu sigri þurfa þeir að sigra í 5 leikjum af 8. Lið Asíu hefir aðeins 1 sinni unnið Royal Trophy þ.e. árið 2009 en lið Evrópu 4 sinnum. Afmælisbarn gærdagsins Jeev Milkha Singh Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

