Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2012 | 14:00
GK: Skötuveisla í golfskála Keilis á Þorláksmessu

Á Þorláksmessu verður skötuveisla haldin í golfskála Keilis. Boðið verður upp á hádegismat kl. 11:30 og síðan aftur kl. 12:30. Vinsamlegast takið fram við bókun hvora tímasetninguna er óskað eftir. Á boðstólum er kæst skata fyrir byrjendur, sem lengra komna, saltfiskur og annað sem þarf til að koma þér í jólaskap! Húsið er öllum opið meðan húsrúm leyfir. Miðaverð er aðeins 2.900 krónur. Vinssamlegast bókið ykkur í matinn í síma 565-3360 eða hjá pga@keilir.is Gleðileg jól!!! Golfklúbburinn Keilir
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2012 | 13:30
Góð æfing Sörenstam til þess að bæta ritma, hraða og tímasetningu golfsveiflunnar – myndskeið

Charlotta Sörenstam, systir Anniku vinnur sem golfkennari í Golfakademíu systur sinnar. Hún er líka reglulega með golfkennslumyndskeið á Golf Channel þar sem hún kennir okkur hinum nokkur góð trikk. Hér má sjá eitt myndskeið um hvernig eigi að bæta ritma, hraða og tímasetningu golfsveiflunnar SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2012 | 13:15
Anthony Kim snýr ekki til keppni fyrr en í mars 2013

Bandaríski kylfingurinn Anthony Kim verður frá keppni fram til a.m.k. mars 2013 vegna meiðsla á hásin, sem hann þurfti í aðgerð út af s.l. júní og er að jafna sig af. Honum var sagt að hvíla vinstri fót sinn í 9-12 mánuði og kemur því í fyrsta lagi til með að keppa aftur í mars. Anthony Kim er fæddur á kvenfrelsisdaginn 19. júní 1985 og varð því 27 ára á þessu ári (á m.a. sama afmælisdag og japanska golfdrottningin Ai Miyazato!) Kim var m.a. í síðasta sigurliði Bandaríkjamanna í Rydernum 2008 og á met fyrir flesta fugla á einum hring í Masters risamótinu, en það setti hann á 2. hring Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2012 | 12:45
GOB: Einar Gestur Jónasson nýr vallarstjóri í Bakkakoti

Golfklúbbur Bakkakots hefur ráðið Einar Gest Jónasson sem nýjan vallarstjóra á Bakkakotsvelli. Einar Gestur er þrítugur Húsvíkingur og er menntaður frá Elmwood Collage í Skotlandi í stjórnun og viðhaldi á golfvelli en hann útskrifaðist þaðan árið 2005. Einar hefur víðtæka reynslu af rekstri og umhirðu 9 og 18 holu golfvalla. Einar hefur starfað hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í rúm 2 ár sem aðstoðarvallarstjóri og þar áður sem vallarstjóri á Katlavelli á Húsavík í 5 ár frá 2005 til 2010, við mjög góðan orðstír. Einar Gestur mun leiða allt faglegt starf við umhirðu vallarins ásamt því að skipuleggja og stýra framkvæmdum á fyrirhuguðum breytingum á Bakkakotsvelli. Stefnt er að því Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2012 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Alfredo Garcia Heredia – 19. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er spænski kylfingurinn Alfredo Garcia Heredia. Hann er fæddur 19. desember 1981 og á því 31 árs afmæli í dag. Hann komst í gegnum Q-school Evrópumótaraðarinnar 2010 og spilaði því á Evrópumótaröðinni 2011. Hann reyndi haustið 2011 við 2. stig Q-school PGA, en líkt og Birgir Leifur Hafþórsson, komst hann ekki í gegn – en þeir öttu m.a. kappi hvor við annan þá. Í ár, 2012, reyndi Alfredo m.a. fyrir sér á 1. stigi úrtökumóts fyrir PGA Tour í Pine Mountain, Georgíu en dró sig úr mótinu síðasta daginn. Árið 2012 hefir verið ansi dapurt en Alfredo fékk aðeins að leika í 3 mótum á Áskorendamótaröð Evrópu og besti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2012 | 11:30
Evróputúrinn: Skrímslapútt Justin Rose valið högg nóvembermánaðar – myndskeið

Justin Rose er sá eini í ár, sem á högg sem valin hafa verið oftar en 1 sinni högg mánaðarins á Evróputúrnum af golfaðdáendum í gegnum netkosningu. Sigurhögg nóvembermánaðar hlaut 75% atkvæða og var slegið á lokahring DP World Tour Championship í Dubai, þar sem Rose varð í 2. sæti á eftir heimsins besta Rory McIlroy. Sigurhöggið var reyndar pútt. „Ég vissi að þarna var um „hero eða zero“ stöðu að ræða fyrir mig.“ sagði Rose. „Ég var einu rúlli frá því að líta út eins og fáviti. Ég fékk gæsahúð. Ég hugaði að það myndi detta, en aðeins eina sekúndu.“ Púttið fór rétt framhjá en með púttinu, sem Rose Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2012 | 11:00
Andri Þór í 5. sæti eftir 1. dag Dixie Amateur var á 68 höggum – Arnór Ingi lék á 73 höggum

Andri Þór Björnsson, GR og Arnór Ingi Finnbjörnsson GR, taka þátt í Dixie Amateur Championship, sem hófst í gær í Coral Springs, heimabæ Lexi Thompson, í Flórída. Þetta er stórt og fremur sterkt 72 holu mót (skorið niður eftir 54),sem gefur mörg stig á heimslista áhugamanna. Þátttakendur eru 240 og spilað er á völlum 3 klúbba: Heron Bay Golf Club, Palm-Aire Country Club og Woodlands Country Club. Það er því einstaklega glæsilegur árangur hjá Andra Þór að vera einn af þeim 10 sem deila 5. sæti í heildina tekið (þ.e. yfir alla 240 keppendurna) og vera einn af 7. sem eru í 5. sæti eftir að hafa spilað golfvöll Heron Bay Golf Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 23:59
Hver er kylfingurinn: Byron Nelson? (4/4) 18. grein af 24 um „The Match“

Hér verður fram haldið kynningu á einni af 4 aðalsöguhetjum í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever.” Byron Nelson var annar af 2 atvinnumönnunum (hinn var Ben Hogan, sem þegar hefir verið kynntur) sem kepptu við tvo áhugamenn í fjórleik (þ.e. Ken Venturi og Harvie Ward sem einnig hafa þegar verið kynntir til sögunnar) vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik. Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Kynningin Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 20:45
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Matthew Nixon (16. grein af 28)

Í kvöld verður byrjað að kynna þá 5 stráka sem deildu 9. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school á Evrópumótaröðinni sem fram fór dagana 24. – 29. nóvember s.l. Í kvöld verður byrjað á Matthew Nixon. Matthew Nixon fæddist í Manchester á Englandi 12. júní 1989 og er því 23 ára. Hann hætti að nota plastkylfur 5 ára og fór að nota alvöru upp frá því. Klúbburinn sem hann er félagi í á Englandi er Ashton under Lyne, en þar hefir hann verið allt frá 7 ára aldri. Hápunktar áhugamannsferils hans er sigur á British Boys Amateur Championship árið 2006 á Royal Aberdeen. Hann ætlaði sér að spila í Walker Cup 2011 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 20:30
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Caroline Masson – (13. grein af 27)

Í dag verður fram haldið að kynna þær 6 stúlkur, sem deildu 11. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school á Daytona Beach, dagana 28. nóvember – 2. desember 2012 og flugu þ.a.l. inn á LPGA. Í gær var fyrsta stúlkan, sem varð í 11. sæti kynnt: Brooke Pancake og í dag verður þýska golfdísin Caroline Masson kynnt, eða Caro eins og hún er alltaf kölluð í Þýskalandi. Caro Masson er fædd 14. maí 1989 í Gladbeck í Nordrhein-Westfalen í Þýskalandi. Hún er dóttir Gabriele og Stefan Masson og á einn 18 ára bróður Alexander. Heima í Þýskalandi er hún í golfklúbbnum í Hubbelrath og hún er með sama þjálfara og Martin Kaymer, Günther Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

