Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 09:30

GSG: Jólavetrarmót Nettó haldið næsta laugardag

Laugardaginn 22. desember n.k. verður haldið Jóla vetrarmót Nettó á Kirkjubólsvelli þeirra Sandgerðinga.

Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni með forgjöf og hámarksforgjöf karla er 24 og kvenna 28.   Verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin.

Mæting er kl. 10:30 og ræst er út á öllum teigum kl. 11:30 samtímis. 

Leiknar verða holur 1-11 og síðan 18. heim í skála, eða alls 12 holur.

Þeir sem hug hafa á því að taka þátt eru beðnir að skrá sig til leiks á golf.is,  en komast má inn á síðuna með því að SMELLA HÉR: 

Jólamótið er að sjálfsögðu háð góðu veðri en sem stendur lofar langtímaspáin góðu! SMELLIÐ HÉR til að fylgjast með veðurspá