Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Shin Ae Ahn – 18. desember 2012

Afmæliskyfingur dagsins er Shin Ae Ahn frá Suður-Kóreu.  Shin fæddist 18. desember 1990 og er því 22 ára í dag. Hún vakti  verðskuldaða athygli á Evían Masters mótinu, í Évian-Les-Bains, í Frakklandi í fyrra, 2011. Þessi geðþekka, unga stúlka frá Suður-Kóreu  deildi efsta sætinu þar með sér reyndari og þekktari kvenkylfingum, flesta dagana, sem mótið fór fram (‎m.a. Karen Stupples og Mariu Hjorth) og gekk mun betur en heimsþekktum kvenkylfingum, (s.s. Paulu Creamer, Cristie Kerr og Yani Tseng.)

Shin Ae Ahn spilaði fyrsta tímabilið sitt á KLPGA árið 2009 og átti mjög gott ár sem nýliði. Hún var 4 sinnum meðal 10 efstu og var í 21. sæti á peningalistanum í Suður-Kóreu. Það var nógu góður árangur til þess að hún var valin nýliði ársins á KLPGA árið 2009.

En það var fyrst í fyrra sem hún blómstraði almennilega á KLPGA, þá sigraði hún fyrsta mótið sitt seint í júlí, þ.e. Hidden Valley Women´s Open.

Shin Ae Ahn

Nokkrum vikum síðar vann hún 2. mótið sitt og síðan náði hún 4. sæti í næsta mótinu. Í High One Resort SBS Charity Women´s Open var hún jöfn Hyun Hee Moon, sem hún sigraði síðan í umspili. Allt í allt var Shin Ae Ahn 8 sinnum meðal tíu efstu árið 2010 og lauk árinu í 3. sæti á peningalista KLPGA.

Einn helsti styrktaraðili Shi Ae Ahn er íþróttafataframleiðandinn franski Le Coq Sportif (en fyrirtækið var stofnað 1882 af Émile Camuset) og er geysisterkt …. líkt og Shin Ae Ahn. Skyldi afmæliskylfingurinn okkar sigra Evían Masters, sem búið er að ákveða að verði 5. risamót kvenna frá og með næsta ári 2013?

Afmæliskylfingurinn Shin Ae Ahn er 22 ára  í dag!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Hubie Green, 18. desember 1946 (65 ára); Charles Christopher Rymer, 18. desember 1967 (44 ára); Joanne Mills, 18. desember 1969 (43 ára); DJ Trahan, 18. desember 1980 (32 ára) ….. og ……

  • Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

    Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is