Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 23:59
Day leiðir eftir 2. dag á Masters

Það er Jason Day, sem er í forystu þegar The Masters er hálfnað. Day lék á 6 undir pari, 138 höggum samtals (70 68). Fred Couples og Marc Leishman deila 2. sætinu, léku á samtals 5 undir pari, 139 höggum, hvor; Couples (68 71) og Leishman (66 73). Fjórða sætinu deila 4 kylfingar á 3 undir pari, 140 höggum: Jim Furyk (69 71); Brandt Snedeker (70 70) og Angel Cabrera (71 69). Sjö kylfingar deila síðan 7. sætinu, þeir Tiger Woods, Justin Rose, Adam Scott, Jason Dufner, David Lynn, KJ Choi og Lee Westwood; allir á samtals 3 undir pari, 141 höggi, hver. Góðu fréttirnar eru þær að Guan Tianlang, Thorbjörn Olesen, Branden Grace, Bubba Watson, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 23:30
Myndasería frá 2. degi Masters

Það sem er meðal helstu frétta frá 2. degi á Masters risamótinu var að Spánverjinn Sergio Garcia átti afleitan 2. hring. Eftir að hafa verið í forystu eftir 1. daginn á glæsilegum 66 höggum, náði hann ekki að fylgja því eftir og lék á 76 höggum – 10 högga munur milli daga. Og auðvitað var Sergio ekki ánægður og suðrænt skap hans kom berlega í ljós eins og sjá má á myndinni hér að ofan. Annað markvert af 2. degi var að hæsti áhugamaðurinn í mótinu, Guan Tianlang, 14 ára frá Kína hlaut 1 högg í víti vegna of hægs leikjar. Lengi vel var vafi um hvort hann kæmist áfram Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 22:00
Hver er Nandina á Masters?

The Masters risamótið sem er það 77. nú í ár fer að venju fram í Augusta National Golf Club. Spurningin í fyrirsögn greinarinnar var hvort vitað væri hver Nandina væri? Ef þið lesið eftirfarandi þá komist þið að því hver Nandina er, ef þið hafið þá ekki þegar vitað það, en hér fer kynning/upprifjun á hverri holu á Augusta National vellinum: Klúbbhús Augusta National. 1. braut (Tea Olive), 445 yardar, (407 metrar), par-4: Djúp sandglompa er til hægri, en lögun flatarinnar gerir þetta að erfiðri upphafsholu og sérstaklega var hún erfið 2005 þegar teigurinn var færður aftur 20 yarda (18 metra). Það eru grenitré til vinstri handar og brautin fer í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 21:45
Bandaríska háskólagolfið: Hrafn og félagar luku leik í 1. sæti á Natural State Golf Classic mótinu

Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og golflið Faulkner tóku dagana 7.-9. apríl 2013 þátt í Harding Natural State Golf Classic mótinu í Heber Springs, Arkansas. Hrafn lék á samtals á 6 yfir pari, 148 höggum(74 74) og varð í 11. sæti í einstaklingskeppninni. Skorið hans var 3. besta skor Faulkner, sem landaði 1. sætinu og taldi það því í glæsiárangri liðsins í liðakeppninni!!! Í mótinu tók einnig þátt Sigurður Björgvinsson, GK, sem spilaði með B-liði Faulkner. Sigurður varð T-37 í einstaklingskeppninni á 16 yfir pari, 158 höggum (79 79). Eins voru meðal þátttakendanna 73 í mótinu klúbbmeistari GKJ 2012, Theodór Karlsson og Ari Magnússon GKG og golflið University of Arkansas at Monticello. Theodór lauk leik Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 21:30
GR: Góð mæting á reglukvöldi

Það var gaman að sjá hversu margar GR konur sáu sér fært að mæta á reglukvöld okkar í Grafarholtinu þegar þeir Hinrik G Hilmarsson og Þorsteinn Svörfuður yfirdómarar GR og alþjóðlegir dómarar kynntu breytingar sem orðið hafa á golfreglum og tóku gildi um síðustu áramót. Aðalefni fundarins var leikhraði á golfvellinum. Leikhraði er stærsta vandamálið í golfheiminum í dag. Rúmlega 5 klst golfhringir samræmast ekki lengur lífstíl fólks, við höfum einfaldlega ekki tíma í þessa viðveru á golfvellinum. Í auknum mæli er fólk allt í kringum okkur að gefast upp á íþróttinni vegna þess hversu langan tíma tekur að stunda hana. Úr þessu verður að bæta og á þessu verður Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 21:21
Tiger kominn í forystu

Marc Leishman sem var í forystu eftir 1. dag ásamt Sergio Garcia, en báðir voru á 66 höggum, var nú í þessu að fá skolla á par-4 14. holuna, þannig að hann er nú á samtals 5 undir pari og deilir 1. sætinu með Tiger og Fred Couples. Tiger var að klára fyrri 9 á 33 höggum, þar sem hann fékk 3 fugla og enga skolla!!! Það eru 7 ár síðan Tiger vann síðast á Masters, en í ár kom hann í virkilega góðu formi heilsulega séð með 3 vinninga í beltinu, það sem af er árinu. Verður það Tiger sem klæðist græna jakkanum á sunnudaginn? Það eina sem maður Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 21:00
Guan fékk víti fyrir hægan leik

Guan Tianlang, 14 ára áhugamaðurinn frá Kína sem hefir skrifað sig í sögubækurnar fyrir að vera yngsti kylfingur til að taka þátt í the Masters og sem átti þetta líka fína skor upp á 1 yfir pari, 73 högg í gær fékk 1 víti í dag fyrir of hægan leik á öðrum hring mótsins, en það varðar við reglu 6-7 í golfreglum R&A. Guan fékk vítið á 17. holu (Nandinu) á Augusta National og Fred Ridley, nefndarformaður Masters gaf út yfirlýsingu þar sem hann sagði að Guan, Ben Crenshaw og Matteo Manassero hefðu verið komnir á eftir á 10. holu og byrjað hefði verið að taka tímann á Guan á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 18:45
Rory með klaufamistök á Masters

Alltof mikið var um klaufavillur í leik Rory McIlroy á 1. hring Masters í gær þar sem hann var á sléttu pari sem skilaði honum í 33. sætið, sem hann deilir ásamt fjöldamörgum öðrum. Hann fékk fugla á 2. holuna á Augusta National og fylgdi því eftir með öðrum fugli á Juniper, sem er par-3, 6. holan, þar sem Jamie Donaldson, sem sigraði á Irish Open fór holu í höggi 3 tímum fyrr. En síðan fékk Rory skolla, sem hann tók aftur með fugli á 9. holu. Allt fór niður á við á og eftir 10. holu, en hann fékk 4 skolla og „aðeins 2 fugla“ á seinni 9. „Mér Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 18:00
Nýju stúlkurnar á LET 2013: Ariya Jutanugarn – (43. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 16:00
Nýju strákarnir á PGA 2013: Dong Hwan Lee – (26. grein af 26)

Hér er loks komið að því að kynna þann sem varð í efsta sæti af 26 sem fengu kortin sín á lokaúrtökumóti Q-school PGA, sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012 í La Quinta, Kaliforníu. Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 2.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1. Sigurvegarinn í lokaúrtökumótinu var Dong Hwan Lee. Dong Hwan Lee þekktur nú á PGA Tour sem DH Lee, fæddist 9. apríl 1987 í Seúl, Suður-Kóreu og á því Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

