
Bandaríska háskólagolfið: Hrafn og félagar luku leik í 1. sæti á Natural State Golf Classic mótinu
Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og golflið Faulkner tóku dagana 7.-9. apríl 2013 þátt í Harding Natural State Golf Classic mótinu í Heber Springs, Arkansas.
Hrafn lék á samtals á 6 yfir pari, 148 höggum(74 74) og varð í 11. sæti í einstaklingskeppninni. Skorið hans var 3. besta skor Faulkner, sem landaði 1. sætinu og taldi það því í glæsiárangri liðsins í liðakeppninni!!!
Í mótinu tók einnig þátt Sigurður Björgvinsson, GK, sem spilaði með B-liði Faulkner. Sigurður varð T-37 í einstaklingskeppninni á 16 yfir pari, 158 höggum (79 79).
Eins voru meðal þátttakendanna 73 í mótinu klúbbmeistari GKJ 2012, Theodór Karlsson og Ari Magnússon GKG og golflið University of Arkansas at Monticello. Theodór lauk leik T-42 á samtals 18 yfir pari, 160 höggum (78 82) og Ari varð T-64 á 26 yfir pari, 168 höggum (82 86). Lið Ara og Theodórs varð í 11. sæti í liðakeppninni.
Sannkölluð Íslendingaveisla hér á ferð, þar sem 4 Íslendingar tóku þátt í einu og sama mótinu!
Lið Hrafns og Sigurðar, Faulkner, leikur næst á SSAC Tournament í Lagoon Park í Montgomery, Alabama, 15. apríl n.k. og lið Ara og Theodórs, University of Arkansas at Monticello leikur næst á Great American Conference Championships í Hot Springs, Arkansas 14.-16. apríl n.k.
Til þess að sjá úrslitin úr Harding Natural State Golf Classic mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024