Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2013 | 08:00

Hver er kylfingurinn: Brandt Snedeker?

Golf 1 hefir áður svarað spurningunni í fyrirsögn í 4 greinum um Brandt Snedeker, sem nú leiðir ásamt Angel Cabrera fyrir lokahring the Masters 2013. Skoða má greinarnar með því að smella á eftirfarandi: Hver er kylfingurinn: Brandt Snedeker nr. 1? Hver er kylfingurinn: Brandt Snedeker nr. 2? Hver er kylfingurinn: Brandt Snedeker nr. 3? Hver er kylfingurinn: Brandt Snedeker nr. 4?


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2013 | 02:00

Cabrera og Snedeker í forystu fyrir lokahringinn á The Masters

Það eru Argentínumaðurinn Angel Cabrera og Bandaríkjamaðurinn Brandt Snedeker, sem eru í forystu á the Masters 2013. Báðir hafa leikið á samtals 7 undir pari, 209 höggum; Cabrera (71 69 69) og Snedeker (70 70 69). Aðeins 1 höggi á eftir er Ástralinn Adam Scott, sem er að reyna að vinna fyrsta risamótstitil sinn. Scott hefir leikið á samtals 6 undir pari, 210 höggum (69 72 69). Fjórða sætinu deila landar Scott, enn öðru höggi á eftir en það eru þeir Marc Leishman og forystumaður gærdagsins Jason Day, báðir á 5 undir pari, samtals, hvor. Í 6. sæti er Bandaríkjamaðurinn og núverandi heimsmeistari í holukeppni Matt Kuchar á samtals 4 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2013 | 23:59

Golfgrín á laugardegi

Pabbinn háttaði 3 ára dóttur sína, sagði henni sögu og hlustaði síðan á bænir hennar, sem hún lauk með því að segja: „Guð blessi mömmu, Guð blessi pabba, Guð blessi ömmu og bless afi.“ „Pabbinn spurði: „Af hverju sagðirðu bless afi?“ Litla stelpan svaraði: „Ég veit það ekki, mér fannst bara rétt að segja það.“ Næsta dag dó afinn. Pabbinn hélt að þetta væri nú skrítinn tilviljun. Nokkrum mánuðum síðar er pabbinn enn eitt skiptið að  fylgja  litlu stelpunni sinni í rúmið og hlustar á bænir hennar. Hún segir: „Guð blessi mömmu, Guð blessi pabba og bless amma.“ Næsta dag deyr amman. „Jesús Pétur,“ hugsar pabbinn „barnið er þrælskyggnt.“ Nokkrum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2013 | 17:00

Ætti Tiger að hætta á Masters?

Svo sem fjallað hefir verið um á öllum golffréttamiðlum í dag breytti mótanefnd The Masters frávísunarvíti sem vofði yfir Tiger í 2 högga víti og hann er að fara að tía upp núna, er í þessum skrifuðu orðum á æfingasvæðinu að hita upp. Tiger á rástíma eftir 45 mínútur (kl. 13.45 að staðartíma og kl. 17:45 hér á Íslandi). Mörgum finnst að Tiger eigi þó hann megi fyrir náð nefndarinnar halda áfram í mótinu segja sig frá því, því atvikið á 15. braut verði alltaf umdeilt.  Meðal þeirra sem svo telja er Sir Nick Faldo og golfsjónvarpsþáttastjórnandinn Feherty. En af hverju ætti Tiger að hætta? Regla 33-7 sem Nefndin  beitti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2013 | 16:45

Heldur Fred Couples út?

Fred Couples er stórhættulegur á Augusta National og takist honum að sigra skrifar hann sig í sögubækurnar fyrir að vera elsti keppandinn til þess að hafa sigrað á the Masters. Couples er 53 ára, fæddur 3. október 1959. Síðast sigraði Couples á The Masters 1992, fyrir 21 ári. Hins vegar er þekkt að í mótum byrji Couples vel, en brotni síðan niður. Spurning hvernig og hvort hann stenst álagið nú um helgina.  Sem stendur er Fred Couples T-2, þ.e. jafn Ástralanum Marc Leishman í 2. sæti á samtals 5 undir pari, aðeins 1 höggi á eftir forystumanninum Jason Day. En jafnvel þó Couples standi ekki uppi sem sigurvegari er varla Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2013 | 14:45

Tiger fékk ekki frávísun

Tiger Woods hlaut ekki frávísun úr Masters vegna þess hvar hann lét bolta sinn falla þegar hann endurtók högg á 15. holu Augusta National (eftir að fyrri bolti hans hafnaði í vatnstorfæru) á 2.hring The Masters. En hann fær  2 högg í víti og er því á samtals 1 undir pari en ekki 3 undir pari og því 5 höggum á eftir forystumanni The Masters risamótsins í hálfleik, Jason Day. Skv. fyrrum framkvæmdastjóra USGA David Fay var lítið svigrúm til túlkanna á reglunni. „Á grundvelli þess hvernig reglurnar eru ritaðar sé ég ekki hvernig hann (Tiger) getur verið annað en áhorfandi í dag (laugardag),“ sagði Fay. Þegar Fay fékk upplýsingar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2013 | 14:15

Wie og Pettersen í nýrri Nike auglýsingu

Það eru ekki bara Tiger, Rory, Nick Watney og Thorbjörn Olesen sem auglýsa fyrir Nike ….. Nei, ekki aldeilis. Sjá má Michelle Wie, Suzann Pettersen, Jhonattan Vegas og Paul Casey í nýrri Nike auglýsingu, þar sem þau auglýsa nýja Nike Method pútterinn. Til þess að sjá myndskeið með auglýsingunni SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2013 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hannah Yun – 13. apríl 2013

Það er bandaríski kylfingurinn Hannah Yun sem er afmæliskylingur dagsins. Hannah er fædd 13. apríl 1992 og á því 21 árs afmæli í dag. Hannah var ein af nýliðum á LPGA mótaröðinni keppnistímabilið 2012  Hún byrjaði að spila golf 4 ára. Hún segir pabba sinn vera þann einstakling sem hafi haft mest áhrif á feril sinn. Hún á eina eldri systur, Catherine. Meðal áhugamála Hönnuh eru evrópskir sportbílar. Hannah komst á LPGA Tour í fyrstu tilraun sinni og er þegar búin að landa stórum styrktarsamningi… við TaylorMade. Sem áhugamaður spilaði Hannah með golfliði University of Florida, þar sem hún var SEC All-Conference First Team selection árið 2008 og  NGCA All-American Honorable Mention Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2013 | 13:13

Tiger fær etv. frávísun úr Masters

Svo kann að fara að Tiger Woods verði vikið úr the Masters vegna þess að hann lét boltann falla ólöglega þegar bolti hans fór í stöng 15. braut Augusta National (Firethorn) og þaðan út í vatn. Þetta var 3. högg Tiger á þessari par-5 braut, frá 87 yarda (þ.e. u.þ.b. 80 metra) færi fyrir erni.  Hann lét boltann síðan falla gegn höggi í víti, sló honum nálægt stöng og bjargaði skolla á holuna. Skv. reglu 26-1 og staðarreglum hafði Tiger 3 valkosti úr vatnstorfærunni, sem er tjörn fyrir framan flötina: 1 Hann gat slegið frá fallreit, sem hann kaus að gera ekki vegna þess að honum líkaði ekki legan. (Staðarregla) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2013 | 08:45

Guan yngstur í gegnum niðurskurð

Guan Tianlang, 14 ára áhugamaðurinn frá Kína var þegar búinn að skrifa sig inn í sögubækurnar fyrir að vera sá yngsti til þess að hafa fengið þátttökurétt í Masters. Nú í gær, föstudaginn 12. apríl 2013 setti hann annað met – hann er sá yngsti til þess að komast í gegnum niðurskurð á PGA Tour móti. Guan kláraði fyrstu 36 holurnar á samtals 4 yfir pari, eftir að hafa verið á 3 yfir pari, 75 höggum, á föstudaginn, þar sem 1 höggið var víti fyrir of hægan leik. Hann var í hættu að ná ekki niðurskurði því hefði Jason Day fengið fugl á aðra af síðustu tveimur holunum hefði Day Lesa meira