Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 12:20

Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Guðrún Björg Egilsdóttir. Hún er fædd 12. apríl 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Guðrún Björg er í Golfklúbbnum Oddi. Afrek Guðrúnar Bjargar á golfsviðinu eru fjölmörg en hér skal staldrað við að nefna að hún varð í 1. sæti í punktakeppni á styrktarmóti Valdísar Þóru á Garðavelli, 6. júní 2009 og eins varð Guðrún Björg klúbbmeistari GO, 2007. Guðrún Björg, klúbbmeistari GO, 2007. Hér má komast á facebook síðu afmæliskylfingsins: Guðrún Björg Egilsdóttir (Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Donna Andrews, 12. april 1967 (46 ára);  Matt Bettencourt, 12, apríl 1975 (38 ára);  … og … Evrópumótaröð karla Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 11:20

Guan Tianlang á aðdáun allra

Jafnvel áður en hinn 14 ára Guan Tianlang var búinn að slá fyrsta keppnishöggið sitt á Augusta National Golf Club þá hrósuðu honum flestir sem hann hitti og höfðu orðið vitni að leik hans á æfingahringjum. Phil Mickelson sagði að hann tryði bara ekki hversu vel hinn 14 ára Guan væri að pútta. Tiger hrósaði ofurnákvæmni Guan með blendingskylfunum. Jack Nicklaus hafði á orði hversu vel Guan kæmi fyrir og hversu kurteis hann væri. Einn af félagsmönnum sem horfði á Guan spila í par-3 mótinu sneri sér að vini sínum og sagði „Gætirðu ímyndað þér 14 ára ungling í græna jakkanum?“ Loftið í gær var þungt og rakt þegar Guan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2013 | 10:20

Tiger byrjar að venju á 70 á Masters – Lindsey fylgdist með

Tiger Woods var með sitt venjubundna sigurupphafsskor 70 á the Masters í gær, sem er nákvæmlega sama skorið og hann var með þegar hann vann 3 af 4 Masters risamótssigrum sínum. Tiger skramblaði fyrir pari tvisvar á fyrstu 3 holunum og var með 5 pör í röð á fyrsta hring sínum. Síðan náði hann fyrsta fugli sínum á 6. braut og annar fylgdi í kjölfarið á 8. braut og síðan bætti hann við 3ja og síðasta fugli sínum á hringnum á par-5 13. brautinni. Hann gaf aðeins 1 högg, þ.e. þegar hann þrípúttaði á 14. braut og fékk skolla. „Ég spilaði stöðugt í dag og var með góðan hring,“ sagði Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 23:00

Garcia leiðir á Masters ásamt Leishman eftir 1. dag

Sergio Garcia leiðir á the Masters eftir 1. dag ásamt Ástralanum Marc Leishman. Báðir léku þeir 1. hring á 6 undir pari, 66 höggum. Í 3. sæti er Bandaríkjamaðurinn Dustin Johnson, sem spilaði 1. hring á 5 undir pari, 67 höggum. 6 kylfingar deila síðan 4 sætinu: Rickie Fowler, sem lét ömmu sína draga fyrir sig á par-3 mótinu í gær; Englendingurinn David Lynn, sem var fyrsti forystumaður mótsins og hélt henni lengi framan af; Spánverjinn Gonzalo Fdez-Castaño, Trevor Immelman frá Suður-Afríku og Bandaríkjamennirnir Fred Couples og Matt Kuchar. Allir spiluðu þeir á 4 undir pari, 68 höggum. Tíunda sætinu deila Jim Furyk, Adam Scott og Zach Johnson á 3 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LET 2013: Nikki Campbell – (42. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 17:15

Vinsælasta lagið 1968 með Amen Corner

Eitt vinsælasta lagið á því frábæra ári 1968 var með hljómsveitinni Amen Corner (sem heitir eftir samnefndum 3 holum á Augusta National). Amen Corner er heiti á 11., 12. og 13. braut Augusta National en, það heiti var fyrst notað á prenti af höfundinum Herbert Warren 21. apríl 1958 (þ.e. fyrir 55 árum) í grein hans um The Masters risamótið,  í Sports Illustrated, það ár. Lagið vinsæla með hljómsveitinni Amen Corner  heitir hins vegar : Bend me – Shape me …. en það er einmitt talið að kylfingar þurfi til að bera til þess að geta unnið á Masters þ.e. að geta mótað boltaflugið. Lagið með Amen Corner fór hæst í 13. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 17:00

Golfgoðsagnirnar 3 slógu 1. höggin á Masters – Staðan á Masters

Golfgoðsagnirnar 3 „The Big Three“ eins og þeir eru kallaðir: Jack Nicklaus, Arnold Palmer og  Gary Player slógu fyrstu höggin á 77. Masters mótinu, sem hófst í morgun á Augusta National. Nicklaus sem er yngstur  átti lengsta höggið, Player átti ágætis 230 metra högg og Palmer sem er orðinn 83 ára sló 45 metrum styttra en Palmer. Skotinn Sandy Lyle tók síðan fyrsta opinbera höggið, en 25 ár eru síðan að hann vann Masters. Búið er að vökva völlinn og hann að venju afar fagur á þessum árstíma; enda heita brautirnar í höfuðið á blómunum, sem prýða þær. Fylgjast má með gengi stórstjarnanna á Masters 2013 með því að SMELLA HÉR:  Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 16:00

Nýju strákarnir á PGA 2013: Ross Fisher – (25. grein af 26)

Hér verður fram haldið með að kynna stuttlega efstu 26 kylfinganna í lokaúrtökumóti Q-school PGA, sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012 í La Quinta, Kaliforníu og hlutu í kjölfarið kortið sitt þ.e. þátttökurétt á PGA Tour, 2013 Þeir sem efstir voru eða jafnir í fyrstu 25 sætunum hlutu keppnisrétt á PGA Tour 2013. Alls hlutu 26 kylfingar kortið sitt í gegnum Q-school PGA að þessu sinni og hafa þeir kylfingar sem voru í 4.-26. sæti allir verið kynntir hér á Golf 1. Nú er komið að 2 strákum sem deildu 2. sætinu: Ross Fisher og Steve LeBrun  Byrjað var á Steve og nú er komið að Ross: Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 14:45

Tvær kjarnorkukonur

Í gær þegar Caroline Wozniacki var kylfuberi fyrir kæresta sinn Rory McIlroy hitti hún aðra af tveimur konum, sem fyrstar allra hafa hlotið inngöngu í þennan últra-íhaldsama einkagolfklúbb, sem Augusta National er. Fram til ársins 2012 bannaði Augusta National nefnilega konum að gerast félagar í klúbbnum, en eftir mikla gagnrýni sem klúbburinn hlaut var tveimur  konum veitt félagsaðild…. að því er margir telja…. svona til málamynda. Sú sem Caro hitti var Condoleezza Rice, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem var að fylgjast með par-3 mótinu. Hin konan sem hlotið hefir inngöngu í Augusta National er billjónamæringurinn Darla Moore.  Condi eins og Condoleezza er oft kölluð er ekki eins rík og Darla (hrein eign Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2013 | 14:30

Kylfuberinn gaf eiginhandaráritanir

Caroline Wozniacki er örugglega fyrsti kylfuberinn í sögu Masters til þess að gefa eiginhandaráritanir….. þ.e.a.s. í jafnmiklum mæli og gerðist í gær. Caroline Wozniacki stóð fyllilega undir uppnefni sínu: „Little Miss Sunshine’ og US Masters hreinlega lýstist upp þegar hún birtist til þess að kaddýast fyrir kæresta sinnn, Rory McIlroy í hinu venjubundna par-3 móti. Þau mættu ásamt Graeme McDowell og kærestu hans Kristin Stape, sem einnig var í hvítum hefðbundnum kaddýsamfestingi og sagt var að Caroline hefði þegar skrifað sig í golfsögubækur Augusta National, þar sem allt eins vinsælt var að fá eiginhandaráritun hjá henni og hjá  öllum stjörnukylfingunum, sem voru á staðnum. Þegar Rory gaf áhangendum sínum eiginhandaráritanir Lesa meira