Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 12:00

Portmarnock leyfir hugsanlega kvenkylfingum inngöngu

Margir íslenskir kylfingar, sem spilað hafa golf á Írlandi kannast við Portmarnock golfklúbbinn og glæsilega tvo golfvelli hans, sem eru aðeins í 16 km fjarlægð frá miðborg Dyflinnar. Klúbburinn var stofnaður fyrir meira en 100 árum og er einn af þeim golfklúbbum, sem hingað til hefir aðeins leyft karlkyns kylfingum að gerast félagar í klúbbnum. Nú er í athugun hjá klúbbnum hvort ekki eigi að leyfa kvenkylfingum að gerast félagar í þessum sögufræga klúbb. Í The Irish Daily Mirror kom m.a. fram að bréfum hefði verið dreift til klúbbfélaga þar sem þeim eru kynntar þessar sögulegu breytingar. Konum er leyft að spila annan völlinn en keppnisvöllinn aðeins í fylgd karla.  Á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 11:00

GA: Stefnt að opnun Jaðars 23. maí nk.

Þó svo að sumrið sé aðeins að láta bíða eftir sér þá eru vorverkin komin á fullt á Jaðri. Búið er að planta nokkrum trjám við gömlu flötina á 1.braut og eiga fleiri eftir að bætast við, auk þess sem gömlu glompunum verður lokað og verður svæðið því allt talsvert fallegra en það hefur verið undanfarin ár. Einnig hefur verið unnið í drenvinnu á 13. braut, hún hefur verið að stríða þeim í GA og vonum þeir GA-menn að með þessu þá lagist hún til muna. Einnig var búin til glompa fyrir framan vatnið hægra megin á brautinni. Eins og vonandi flestir vita þá taka GA-ingar tvær nýjar brautir í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 08:00

GK: Ókeypis SNAG námskeið f. 4-10 ára í dag!

Í maí verður frítt fyrir alla krakka á aldrinum 4-10 á SNAG námskeið í Hraunkoti. Áhugasamir eru hvattir til að mæta í Hraunkot klukkan 10 í dag, laugardag. Tilvalið til að kanna áhuga yngstu kynslóðarinnar á golfíþróttinni. Krakkar þurfa að vera í fylgd foreldra. Einsog sést á meðfylgjandi mynd þá eru þátttakendur á öllum aldri.


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 08:00

PGA: Casey dregur sig úr Players

Paul Casey dró sig úr The Players Championship í gær á grundvelli slæms magavírusar, sem hann fékk í kjölfar matareitrunar að því er talið er. Casey, hóf leik í mótinu á fimmtudaginn og átti slælegan hring upp á 79 högg. Þetta er í 2. sinn í tveimur mótum sem hann þjáist af afleiðingum þessa magavírusar. Í fyrra skiptið var þegar hann lék á móti Rory McIlroy í undanúrslitum á  Harding Park í San Francisco sunnudagsmorguninn fyrir viku. Rory vann á einu holunni sem þeir spiluðu þann dag. Casey sagði fyrr í vikunni að sér liði aðeins betur og að jafnvel sér hefði tekist að sigra Rory í undanúrslitunum hefði hann aldrei getað Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 07:00

GH: Völsungur og GH í samstarf

Íþróttafélagið Völsungur og Golfklúbbur Húsavíkur hafa gert með sér samkomulagi um samstarf félaganna á milli. Samstarfssamningurinn er tilraunasamningur til eins árs til að byrja með og byggir á því að GH muni sjá um ákveðna verkþætti er viðkemur viðhaldi og umhirðu knattspyrnuvallanna. Í fréttatilkynningu segir að það sé von beggja aðila að þetta marki upphaf af enn betra og árangursríkara samstarfi íþróttafélaganna sem jafnframt styrkir félögin til lengri tíma litið. Undir samstarfsamning þennan skrifuðu formenn félagana Guðrún Kristinsdóttir fyrir hönd Völsungs og Hjálmar Bogi Hafliðason fyrir hönd Golfklúbbs Húsavíkur. Heimild: 640.is


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 05:30

PGA: Spieth segist ekki vera á sama stigi og Rory – náði ekki niðurskurði á Players

Jordan Spieth og Rory McIlroy fengu nasarsjón af leik hvors annars þar sem þeir spiluðu saman fyrstu tvo hringina á The Players Championship, sem oft er nefnt 5. risamótið. Báðir komu inn í mótið eftir sigra undanfarið.  Spieth heillaði alla með því að sigra nokkuð örugglega á The Masters risamótinu og Rory er nýbakaður heimsmeistari í holukeppni. Aldursmunur er á Jordan og Rory; Jordan er aðeins 21 árs meðan að Rory er 5 árum eldri, þ.e. 26 ára. Jordan var mjög óánægður með leik sinn á fyrstu 2 hringjunum. „Ég hef bara ekki unnið nógu mikið í leik mínum frá því á Masters,“ sagði Jordan í samtali við Golf Channel. „Ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 04:58

Evróputúrinn: Olesen efstur í hálfleik á Mauritius Open – Hápunktar 2. dags

Danski kylfingurinn Thorbjörn Olesen er efstur á móti vikunnar á Evrópumótaröðinni sem er AfrAsia Mauritus Open. Mótið fer fram í Heritage GC í Domaine de Bel Hombre á eyjunni Mauritius. Olesen er búinn að spila á samtals 9 undir pari, 133 höggum (65 68). Eftir 2. hringinn sagði Olesen: „Ég var ekki með miklar væntingar í þesari viku en ég vissi að ég var að sveifla vel og ég hef verið að æfa mikið s.l. vikur,“ sagði Olesen. „Ég var augljóslega að vonast eftir góðu gengi, en það hefir komið mér á óvart hversu gott stutta spilið mitt hefir verið.“ Svíinn Pelle Edberg er í 2. sæti á samtals 8 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 03:25

PGA: Na og Kelly efstir e. 2. dag The Players

Það eru þeir Kevin Na og Jerry Kelly sem leiða á The Players eftir 2. keppnisdag. Báðir eru búnir að spila á samtals 8 undir pari, 136 höggum; Na (67 69) og Kelly (71 65). Í 3. sæti eru 4 kylfingar, sem allir hafa spilað á samtals 6 undir pari, hver, en  þeirra á meðal er Rickie Fowler. Bill Haas er síðan í hópi 6 kylfinga sem deila 7.sætinu á samtals 5 undir pari. Niðurskurður var miðaður við slétt par og því „aðeins“ 8 högg sem aðskilja forystumennina frá þeim sem eru í 75. sæti og í raun allir 75 sem gætu verið að keppa til úrslita á The Players. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 19:25

LET Access: Ólafía Þórunn: „Ætla ekki að ofhugsa þetta“

Fréttir af glæstum árangri Ólafíu Þórunnar fara víða. Nú er þegar komin frétt á vefsíðu LET Access, þar sem m.a. er tekið stutt viðtal við Ólafíu Þórunni – Sjá greinina með því að SMELLA HÉR:  Greinin ber yfirskriftina: „Kristinsdóttir tekur stjórnina í Sviss“ (Ens.: „Kristinsdottir takes control in Switzerland“) og er m.a. dáðst að því að Ólafía Þórunn, sem spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði Wake Forest, skuli strax halda forystu í  aðeins 4. móti sínu á atvinnumanna-mótaröð! Ólafía hafði eftirfarandi um það að segja: „Fyrstu mótin voru stressandi en ég er bara að taka þetta ár þannig að ég er að safna mér reynslu, ég er bara að læra hvernig á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 19:15

LET Access: Valdís Þóra á samtals 1 undir pari e. 2. dag í Sviss!!!

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL er aldeilis að standa sig vel á ASGI Ladies Open. Valdís Þóra er búin að eiga tvo jafna og góða hringi á 71 og 72, þ.e. er samtals á 1 undir pari, 143 höggum. Á hringnum í dag fékk Valdís Þóra 2 fugla og 2 skolla – hélt öllu jöfnu og deilir 10. sætinu ásamt 3 öðrum kylfingum.  Flott hjá Valdísi Þóru!!! Valdís flaug því í gegnum niðurskurð, en aðeins 45 stúlkur náðu niðurskurði af 119 keppendum. Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð eru nokkrar sem spilað hafa á Evrópumótaröð kvenna, sem er næststerkasta kvenmótaröð heims á eftir bandaríska LPGA.  Þetta er t.d. Isi Gabsa Lesa meira