Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2015 | 16:30
PGA: Rickie Fowler sigraði á Players!!! – Hápunktar lokahringsins

Bandaríski kylfingurinn, Rickie Fowler, sigraði á The Players í gær, en mótið er oft nefnt 5. risamótið. Það hlaut að koma að því en Rickie hefir svo oft verið ofarlega í mótum án þess að takast almennilega að sigra fyrr en nú! Fowler var jafn þeim Sergio Garcia og Kevin Kisner eftir hefðbundinn 72. holu leik. Allir léku á samtals 12 undir pari, 276 höggum; Fowler (69 69 71 67); Garcia (69 72 67 68) og Kisner (73 67 67 69 ). Það kom því til sögulegs umspils sem lengi verður í minnum haft. Garcia datt út á 3. holu umspilsins en Rickie sigraði með fugli á einni þekktustu par-3 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Sævar Gestur Jónsson – 10. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Sævar Gestur Jónsson. Sævar Gestur er fæddur 10. maí 1955 og á því 60 ára merkisafmæli. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins, til þess að óska honum til hamingju hér fyrir neðan: Sævar Gestur Jónsson F. 10. maí 1955 (60 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jimmy Demaret, f. 10. maí 1910 – d. 28. desember 1983); Mike Souchak, 10. maí 1927-10. júlí 2008); Atli Þór Elísson, 10. maí 1964 (51 árs); Jarmo Sakari Sandelin, 10. maí 1967 (48 ára); Gunnar Jóhannsson, GS, 10. maí 1982 (33 ára); Tómas Freyr Aðalsteinsson, 10. maí 1983 (32 ára); Darry Lloyd, Sólskinstúr, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2015 | 15:00
PGA: Teighögg Tiger lenti … rétt við kvennateig!

Tiger Woods hefir átt ótrúlega léleg högg á The Players og mótið mest eftirminnilegt hvað frammistöðu hans varðar fyrir þær sakir. Stutt er að minnast arfalélegs höggs á par-3 8. braut TPC Sawgrass á 1. hring The Players – Sjá frásögn Golf 1 af því með því að SMELLA HÉR: Nú er hann búinn að bæta enn öðru ótrúlegu höggi við en það er drævið á par-5 2. braut á 3. hring The Players. Á þessari braut verður að draga boltann, en Tiger húkkaði beint í átt að trjánum og beint í átt að …. kvennateignum. Höggið varð aðeins 107 yarda (u.þ.b. 98 metra) á par-5 braut þar sem hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2015 | 14:00
LET: Feng vann í Kína

Það var Shanshan Feng sem stóð uppi sem sigurvegari í Buick Championship í Kína. Og sigurinn var sannfærandi en hún átti heil 6 högg á næsta keppanda. Feng lék á samtals 17 undir pari, 271 höggi (65 67 69 70). Í 2. sæti varð stúlka frá S-Kóreu, Hyeon Seo Kang, en hún lék á samtals 11 undir pari. Danska stúlkan Nicole Broch Larsen varð í 3. sæti á samtals 8 undir pari. Til þess að sjá lokastöðuna á Buick Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2015 | 13:15
Evróputúrinn: Coetzee sigraði á Mauritius

George Coetzee, frá S-Afríku hafði betur en hinn danski Thorbjörn Olesen í 2. holu bráðabana sem fram varð að fara milli þeirra, til að skera úr um úrslit í AfrAsia Bank Mauritius Open. Coetzee fékk tvívegis fugla á 18. holuna, sem spiluð var í bráðabananum en Olesen átti ekki séns að halda sér í bráðabanaum og féll úr leik á 2. holu þannig að Coetzee sigraði. Báðir voru þeir Olesen og Coetzee á samtals 18 undir pari eftir hefðbundinn 72. holu leik. Þetta er 2. sigur Coetzee á Evrópumótaröðinni, en hann sigraði á Joburg Open í fyrra, þ.e. 2014, á heimavelli í Suður-Afríku. Sjá má lokastöðuna á AfrAsia Bank Mauritius Open Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2015 | 12:40
GKB: Kiðjabergið opið – Regína fékk næstum ás!

Óvíst var nú í morgun hvort hægt væri að opna uppáhaldsvöll margra, hinn gullfallega Kiðjabergsvöll, en snjóað hafði og lá snjór yfir öllu. Snjóinn tók hins vegar upp og er hægt að bregða sér í Kiðjabergið og spila golf í dag! Það gerði Regína Sveinsdóttir, GKB og …. fékk næstum ás. Það hefði verið svo gaman að sjá holu í höggi strax fyrsta daginn, sem völlurinn er opinn, en því var ekki ætlað að vera – boltinn hjá Regínu á 16. braut í Kiðjaberginu fór i stöngina og umhverfis holuna. Kannast einhver við það? En þetta var gefinn fugl!
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2015 | 12:00
GVS: Úlfar Gíslason sigraði í Skemmustyrktarmótinu

Styrktarmót vegna æfinga og vélaskemmu GVS fór fram á Kálfatjarnarvelli í gær. Öll mótsgjöld runnu til styrktar skemmubyggingunni, sem var reist á síðasta ári en nú liggur fyrir að klára innviðina svo æfingaraðstaðan verði tilbúin fyrir næsta vetur. Mótið í gær var punktamót og veitt verðlaun fyrir 6 efstu sætin. Þátttakendur voru 48, þar af 7 kvenkylfingar. Verðlaunin voru glæsileg m.a. frá Fjarðakaupum, Bláa Lóninu, Golfbúðinni, Hamborgara Fabrikkunni , Gamla Pósthúsinu og fl. Sigurvegarar í mótinu voru eftirfarandi: Í 1. sæti í höggleik án forgjafar varð Aron Bjarni Stefánsson, GSE, en hann var sá eini sem spilaði Kálfatjarnarvöll undir 80 í gær, þ.e. á 79 höggum! 1. sæti Úlfar Gíslason GO með 41 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2015 | 10:00
PGA: Chris Kirk leiðir fyrir lokahring Players mótsins

Það er bandaríski kylfingurinn Chris Kirk, sem leiðir fyrir lokahring Players mótsins. Kirk er búinn að spila á samtals 10 undir pari, 206 höggum (70 68 68). Á hæla Kirk eru 3 kylfingar: landar hans, Bill Haas, Ben Martin og Kevin Kisner, sem allir eru aðeins 1 höggi á eftir, búnir að spila á samtals 9 undir pari, 207 höggum. Hópur 6 kylfinga deilir síðan 5. sætinu, þ.á.m. Sergio Garcia og forystumenn 2. dags þ.e. Kevin Na og Jerry Kelly en þessir kylfingar eru 2 höggum á eftir Kirk þ.e. allir samtals 8 undir pari, hver. Rickie Fowler er einn af 6 sem deila 11. sætið; allir á samtals 7 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 23:45
LET Access: Besti árangur Ólafíu Þórunnar og Valdísar Þóru frá upphafi á LET Access

Íslensku atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni náðu góðum árangri á ASGI meistaramótinu sem lauk í dag í Sviss. Ólafía endaði í 5. sæti á -5 samtals en hún náði sér ekki á strik á lokahringnum þar sem hún lék á 75 höggum. Valdís Þóra endaði í 7.–9. sæti en hún lék lokahringinn á 70 höggum og var samtals á -3. Þetta er besti árangur þeirra á tímabilinu og besti árangur þeirra beggja frá upphafi á þessari sterku atvinnumótaröð. Hér má sjá lokastöðuna á ASGI Ladies Open SMELLIÐ HÉR: Mótið er hluti af LETAS atvinnumótaröðinni í Evrópu – sem er næst sterkasta atvinnugolfmótaröð kvenna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Sandra Gal ———– 9. maí 2015

Það er W-7 módelið fyrrverandi Sandra Gal sem er afmæliskylfingur dagsins. Sandra er fædd 9. maí 1985 og á því 30 ára stórafmæli í dag! Foreldrar Söndru heita Jan og Alexandra Gal og er hún einkabarn þeirra. Sandra er mjög listhneigð og fæst við að mála myndir í frítíma sínum. Hún var við nám í University of Florida 2005-2007 og spilaði í bandaríska háskólagolfinu með skólaliðinu The Florida Gators. Sandra hefir 1 sinni sigrað á LPGA og finnst mörgum orðið tímabært að hún bæti öðrum sigri við, en hún hefir verið að standa sig mjög vel á mótum á 2015 tímabilinu. Eini sigur Söndru Gal á LPGA kom 27. mars Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

