
Portmarnock leyfir hugsanlega kvenkylfingum inngöngu
Margir íslenskir kylfingar, sem spilað hafa golf á Írlandi kannast við Portmarnock golfklúbbinn og glæsilega tvo golfvelli hans, sem eru aðeins í 16 km fjarlægð frá miðborg Dyflinnar.
Klúbburinn var stofnaður fyrir meira en 100 árum og er einn af þeim golfklúbbum, sem hingað til hefir aðeins leyft karlkyns kylfingum að gerast félagar í klúbbnum.
Nú er í athugun hjá klúbbnum hvort ekki eigi að leyfa kvenkylfingum að gerast félagar í þessum sögufræga klúbb.
Í The Irish Daily Mirror kom m.a. fram að bréfum hefði verið dreift til klúbbfélaga þar sem þeim eru kynntar þessar sögulegu breytingar.
Konum er leyft að spila annan völlinn en keppnisvöllinn aðeins í fylgd karla. Á keppnisvellinum hefir Opna írska, sem er mót á Evrópumótaröðinni verið haldið 19 sinnum. Michael Campbell var sigurvegari þegar mótið var síðast haldið þar fyrir 12 árum, þ.e. 2003.
Elsti og frægasti golfklúbbur heims, R&A heimilaði konum inngöngu í klúbbinn fyrr á árinu eftir 260 félagseinokun karla. R&A veitti 7 konum inngöngu þ.e. Önnu Englandsprinsessu; Anniku Sörenstam, Dame Lauru Davies; Renee Powell; Belle Robertson (f. McCorkindale), Lally Segard (f. Vagliano, sem bikarinn er nefndur eftir) frönsk hertogaynja af de Saint-Sauveur, einn besti franski kvenkylfingur allra tíma, sigraði m.a. á British Girls’ Championship árið 1937 og Louise Suggs,
Augusta National, þar sem The Masters risamótið fer fram árlega varð jafnvel fyrra til að leyfa konum inngöngu í klúbb sinn, en fór mjög íhaldsamt í hlutina heimilaði aðeins 2 konum inngöngu í klúbbinn árið 2012: þ.e. Condoleezzu Rice og Dörlu Moore.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024