Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 17:15
LET Access: Ólafía Þórunn (-6!!!) í 1. sæti fyrir lokahring ASGI Ladies Open í Sviss –

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, er ein í efsta sæti á ASGI Ladies Open í Gams, í Sviss. Hún átti stórglæsilegan hring upp á 6 undir pari, 66 högg í dag og er í 1. sæti fyrir lokahringinn!!! Á hringnum flotta í fékk Ólafía Þórunn 2 erni, 4 fugla og 2 skolla eða samtals -6!!! Meiriháttar hjá Ólafíu Þórunni!!! Samtals er Ólafía Þórunn búin að spila á 8 undir pari, 136 höggum (70 66) og á 2 högg á þær sem næstar koma, sem eru þýski áhugakylfingurinn Olivia Cowan og hin þýska Nicole Goegele. Nokkrar stúlkur eiga eftir að ljúka leik, en það verður ekki séð að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 16:55
Nordic Golf League: Birgir Leifur varð T-8 í Danmörku

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lauk leik T-8 á Lyngbygaard golfvellinum í Brabrand, Danmörku þar sem NorthSide Charity Challenge á Nordic Golf League fór fram. Mótið stóð dagana 6.-8. maí 2015 og lauk í dag. Þátttakendur voru 156. Birgir Leifur lék samtals á 2 undir pari, 214 höggum (68 75 71) og varð eins og áður segir í 8.-15. sæti í mótinu. Það var Finninn Tapio Pulkkanen, sem sigraði í mótinu á 7 undir pari, 209 höggum, vegna sérlega góðs lokahrings hans upp á 66 högg sem kom honum í bráðabana við Danann Thomas Nörret, en þar hafði Pulkkanen betur þegar á 1. holu bráðabanans og stóð uppi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Raphaël Jacquelin – 8. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er franski kylfingurinn Raphaël Jacquelin. Raphaël fæddist 8. maí 1974 í Lyon í Frakklandi og á því 41 árs afmæli í dag! Raphaël gerðist atvinnumaður í golfi, fyrir 20 árum síðan 1995, eftir að verða franskur meistari. Raphaël hóf ferilinn á Áskorendamótaröðinni. Árið 1997 sigraði hann tvívegis og varð í 4. sæti á peningalistanum þannig að hann komst á Evrópumótaröðina 1998. Það var samt ekki fyrr en í 238. mótinu sem hann tók þátt í á Evrópumótaröðinni að hann vann fyrsta sigur sinn. Það var fyrir 10 árum, árið 2005 á Open de Madrid. Hann vann í 2. sinn, 2007 á BMW Asian Open. Besti árangur hans á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 15:00
GB: Hamarsvöllur kemur vel undan vetri

Hamarsvöllur kemur vel undan vetri. Ástand flata og brauta er mun betri en í fyrra. Það var helst að trjágróðurinn hafi fengið á baukinn. En því hefur verið bjargað með góðu átaki snemma í vor með því að klippa og grisja (boltaleitarsvæði). Allur vélakostur GB var tekinn í gegn í vetur og gerður meira en gangfær og toppaður með fegrunaryfirhalningu. Ný teigmerki og lengdarmerki hafa verið unnin, Alsherjar tiltekt gerð í vélageymslu og skápagámi sem og öðrum gámum og umhverfið snyrt. Flatir og teigar sandaðir og valtaðir. Og nú síðast, sláttur á vellinum, sem hófst 5 maí s.l. Brautir verða breikkaðar og lengdar á kostnað kargans, nokkuð sem gleðja mun Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 14:00
Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Cheyenne Woods (35/45)

Nú hafa allar stúlkurnar verið kynntar sem urðu í 18.-45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014. Þrjár (þ.e. þær í 18.-20. sæti) erumeð fullan spilarétt eftir 7 manna bráðabana og hinar sem urðu í 21.-45. sæti með takmarkaðan spilarétt Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Sjö kylfingar deildu 11. -17. sætinu, en þær léku allar á samtals 5 undir pari, hver. Þetta eru þær: frænka Tiger: Cheyenne Woods, Therese Koelbaek frá Danmörku, franski kylfingurinn Perrine Delacour, SooBin Kim frá Suður-Kóreu, Sakura Yokomine frá Japan, Sophia Popov frá Þýskalandi og Ju Young Park, frá Suður-Kóreu. Allar af Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 13:25
GR: Hvenær opna GR-vellirnir?

Eins og fram kom í bréfi formanns GR nú í vikunni þá er blessað vorið komið með hækkandi sól en lítið fer fyrir háu hitastigi á golfvöllum okkar. Ánægjulegt er þó að segja frá því að vellir okkar koma vel undan vetri sem gefur von um gott og gleðilegt golfsumar. Áætlað er að opna Korpúlfsstaðavöll formlega með árlegu Innanfélagsmóti Korpu laugardaginn 16. maí næstkomandi. Hætt hefur verið við opnun á Korpu eins og til stóð fimmtudaginn 14. maí. Skráning í mótið hefst mánudaginn 11. maí kl.12:00 á www.golf.is. Mótið verður auglýst nánar á heimasíðu félagsins á mánudagsmorgun. Landið verður lokað til að byrja með en stefnt verður að því að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 13:22
18 erfiðustu golfholur heims

Telegraph hefir tekið saman í myndum samsafn af 18 erfiðustu holunum í golfi. Þar kennir ýmissa grasa m.a. er þar sem fyrr 15. brautin á Cape Kidnappers í Nýja-Sjálandi og Entabeni holan fræga í Suður-Afríku. Eins er þar með á skrá 17. holan á TPC Sawgrass, þar sem Players mótið er haldið á. Sjá má samantekt Telegraph yfir 18. erfiðustu golfholur heims í máli og myndum með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 11:30
Rory fór út að borða með Ericu Stoll… og síðan fékk hún matareitrun

Þau hafa verið að deita í 6 mánuði, Rory McIlroy, 26 ára og Erica Stoll 29 ára, en Rory fer mjög leynt með samband þeirra. Nú fyrr í mánuðnum sást til þeirra þar sem þau fóru út að borða í Rochester, New York, þaðan sem Stoll kemur. Upphaflega var talið að hann myndi fljúga til Las Vegas til að sjá Mayweather g. Pacquiao bardagann á laugardagskvöldið, en hann hefir ætlað að halda upp á afmælið sitt tveimur dögum fyrr þarna um laugardagskvöldið. Stoll og McIlroy sáust yfirgefa 2Vine veitingastaðinn, en líklega hefir átt að halda upp á afmælisdaginn á daginn sjálfann, mánudaginn líka, nema lítið fór fyrir nokkrum hátíðahöldum, vegna þess að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 09:45
PGA: Versta högg á ferli Tiger?

Slæmt gengi Tiger Wood náði nýjum hápunkti í gær á 237 yarda (217 metra) par-3 8. braut The Players Championship. Teighögg Tiger var algjörlega misheppnað; lenti um 40 yördum (37 metrum) frá holu og skoppaði síðan í læk, sem er þarna hjá. Einn af golffréttamönnum Golf Channel sagði t.a.m. að höggið hefði verið svo slæmt að á 30 ára ferli hans sem fréttamanns á Players hefði hann aldrei séð nokkurn slá boltann í vatnið á 8. holu. Að slá boltann í vatn við 8. brautina er sjaldgæft. Skv. Justin Ray hjá Golf Channel er Tiger aðeins 12. leikmaðurinn til þess að slá bolta sínum þangað frá árinu 2003. Sjá má Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2015 | 08:30
GB: Lionessur gáfu GB hjartastuðtæki

Lionessur í Borgarnesi gáfu á dögunum GB hjartastuðtæki. Þetta mikivæga öruggistæki verður staðsett í golfskálanum í Borgarnesi. Starfsmenn GB munu síðan fá námskeið í meðferð þess. Hjartastuðtæki er lífsnauðsyn og ætti að vera til í öllum golfskálum á landinu. Það er aldrei að vita hvenær hjartaáföll láta kræla á sér og hjartastuðtæki hafa bjargað lífum; þannig að gjöf Lionessa í Borgarnesi er virðingarverð og í raun mikilvægasta gjöfin, sem hægt er að gefa þ.e. margföld lífgjöf!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

