PGA: Oosthuizen í holli með Cantley og Tiger í dag – eygir velgengni eftir hringi undir pari á Dunhill mótinu
Sigurvegari síðasta árs á Opna breska, Louis Oosthuizen hélt aldrei að hann myndi spila á haustmótaröð PGA (ens.: PGA Tour´s Fall Series) en þau plön breyttust snögglega eftir erfitt gengi hans í Bandaríkjunum 2011. Þessum 28 ára Suður-Afríkana (Louis) tókst ekki að öðlast þátttökurétt í FedExCup umspilinu og varð að bæta við 2 mótum á PGA dagskrá sína, til þess að ná lágmarkinu um 15 spiluð mót og til þess að fá kortið sitt endurnýjað fyrir næsta tímabil. „Þetta hefir verið ár vonbrigða” sagði Oosthuizen í viðtali við Reuters í Corde Valle golfklúbbnum í gær þegar hann var að undirbúa sig und Frys.com Open mótið, sem er 2. mótið á Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi og Belmont í 2. sæti á Sunset Beach
Í gær lauk á Seatrail Golf Links, Myrtle Beach Intercollegiate, en mótið fór fram á Sunset Beach, Norður-Karólínu. Þátttakendur voru 70 og 13 háskólalið. Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni, Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR og lið hans í Belmont Abbey háskólanum voru meðal þátttakenda og náðu þeim frábæra árangri að verða í 2. sæti. Arnór Ingi spilaði hringina tvo á +4 yfir pari (76 72) og var á samtals 146 höggum og endaði í 23. sæti. Belmont Abbey háskólinn er annars að gera það gott í Div II í bandaríska háskólagolfinu; komst á topp-25 í nýjastu Golf World Magazine/Nike Golf Division II og sambands bandarískra golfháskólaþjálfara (GCAA) könnuninni, yfir bestu golfliðin í Lesa meira
13 kvenstjörnur golfsins nr. 7: Jan Stephenson
Jan Lynne Stephenson fæddist 22. desember 1951 í Sydney í Ástralíu. Hún varð atvinnukylfingur 1973 og sama ár komst hún á LPGA túrinn. Hún sigraði 3 risamót og samtals 16 mót á LPGA mótaröðinni. Á táningsaldri vann hún fimm sinnum í röð á New South Wales Schoolgirl Championships í Ástralíu, fyrsta mótinu 1964 og síðan vann hún þrisvar sinnum í röð á New South Wales Junior Championship. Eins og sagði gerðist hún atvinnumaður í golfi 1973 og sigraði á Wills Australian Ladies Open á því ári. Sama ár sigraði hún Wills Australian Ladies Open. Árið 1974 var Jan útnefn nýliði ársins (LPGA Rookie of the Year) á LPGA. Fyrsti sigur Lesa meira
Tiger með nýjan auglýsingasamning við Rolex
Tiger Woods snýr aftur á PGA mótaröðina með nýjan auglýsingasamning upp í ermina, að þessu sinni við Rolex. (Mörgum er e.t.v. í fersku minni að svissneski úraframleiðandinn Tag Heuer rifti samningnum við Tiger eftir að upp komst um framhjáhaldsskandala hans – en einn úraframleiðandi kemur bara í annars stað! ) Þetta er fyrsti stóri auglýsingasamningurinn sem Tiger fær í meira en 2 ár. Tag Heuer hætti samstarfi við Tiger fyrir 2 mánuðum. En Tiger mun bara verða alheimssendiherra fyrir annað fyrirtæki með bækistöðvar í Sviss. Ekki voru gefnir upp skilmálar á samningnum við Rolex, en talið er að gildistími samningsins sé til lengri tíma en 5 ára. Fram kom í Lesa meira
Hver er kylfingurinn Michael Hoey?
Hoey sigraði á Alfred Dunhill mótinu á Skotlandi nú s.l. helgi og vann sér inn tæpar 100 milljónir íslenskra króna fyrir vikið. En hver er þessi 32 ára kylfingur? Michael George Hoey fæddist 13. febrúar 1979 í Ballymoney, en spilaði mikið golf í Shandon Park Golf Club í austur Belfast. Hann sigraði British Amateur Championship árið 2001 og var í sigurliði Breta&Íra í Walker Cup árið 2001. Honum bauðst sem áhugamanni að spila á US Masters 2002, þar sem hann var 1 höggi frá því að komast í gegnum niðurskurð. Fram til ársins 2009 átti Hoey í vandræðum með að halda sér á Evróputúrnum og spilaði mestmegnis á Áskorendamótaröðinni þar Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Kristján Þór og Nicholls State í 6. sæti
Kristján Þór Einarsson, GKJ tók þátt lék vel á lokahringnum í LA Tech Squire Creek Invite háskólamótinu í gær, en mótið fór fram mánudag og þriðjudag í Louisiana. Kristján varð í 41. sæti , lék á samtals 226 höggum (80 77 69). Alls tóku 75 þátt úr 13 háskólum. Nicholls State háskólinn, sem Kristján Þór er í náði 6. sæti á mótinu. Fínn árangur það! Til þess að sjá úrslit í mótinu smellið HÉR:
Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra og University of San Francisco í 1. sæti á Wolf Pack Classic
Í gær lauk tveggja daga móti á vesturströnd Bandaríkjanna í háskólagolfinu. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO spilaði sinn 3. leik með University of San Francisco liðinu og stóð sig vel. Liðið varð í 1. sæti, en Eygló Myrra spilaði á +9 yfir pari, samtals 153 höggum (74 79). Liðsfélagi Eyglóar, Peppiina Kaija, frá Finnlandi varð í 1. sæti, Emily Chiu deildi 13. sætinu með Eygló og tvær aðrar í liðinu deildu 17. sæti. Í heild var liðið að spila vel og stúlkurnar nokkuð jafnar. Til þess að sjá úrslit í mótinu smellið HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Laura Davies – 5. október 2011
Laura Jane Davies fæddist 5. október 1963 í Coventry á Englandi og er því 48 ára í dag. Laura er einhver albesti kylfingur Breta. Frá því að hún gerðist atvinnumaður í golfi, árið 1985, þ.e. fyrir 26 árum hefir hún sigrað í 81 skipti; m.a. 20 sinnum á LPGA; 44 sinnum á Evrópumótaröð kvenna (LET) og 7 sinnum á áströlsku ALPG og 6 sinnum á japanska LPGA. Laura hefir alls 4 sinnum unnið á risamótum kvennagolfsins þ.e.: LPGA Championship 1994 og 1996; US Women´s Open 1987 og du Maurier Classic1996. Laura þarf bara að vinna 1 risamót enn eða 2 LPGA mót til þess að komast í frægðarhöll kylfinga. Laura Lesa meira
PGA: Hvað er í pokanum hjá Ryan Moore?
Ryan Moore er kylfingur á PGA, sem aðallega hefir vakið athygli á sér fyrir nokkuð sérstakan fatasmekk. Hvað skyldi nú vera í pokanum hjá Moore? Það eru eftirfarandi kylfur: Dræver: Adams Speedline F11, 9.5° breytt í to 8.5°, Graphite Design DJ 7 graphite skaft, X flex, 45”, slær 289 yardar; $250 u.þ.b. 30.000 ísl. kr. /graphite 3-tré: Adams Speedline F11, 14.5°, Fujikura Motore F3 70 graphite skaft, X flex, 265 yardar; $150 u.þ.b. 17.000,- ísl kr. /graphite RYAN SAYS: “Algjörlega ótrúlegt. Þetta er besta 3-tréð sem ég hef slegið með – frábær lengd og fyrirgefanleiki. I’ve e 5-tré: Adams Speedline F11, 18°, Matrix Ozik XCON 8M2 graphite skaft, X flex, 245 yardar; $150 u.þ.b. 17.000,- ísl. kr. /graphite Hybrid: Adams Idea Lesa meira
GA: Tumi Hrafn Kúld holukeppnismeistari Akureyrar
Holukeppni GA hefur staðið yfir í allt sumar og er þetta mjög skemmtileg keppni. Tumi Hrafn Kúld spilaði til úrslita við Kristján Benedikt Sveinsson og hafði betur vann úrslitaleikinn 5/4 Í 3. sæti varð Anton Ingi Þorsteinsson, en hann átti að leika um það sæti við Þórhall Pálsson, en hann gaf leikinn. Þess má geta að Anton spilaði úrslitaleikinn í fyrra sumar við bróðir sinn og hafnaði þar í 2. sæti. Spurning hvort hann reynir ekki við 1. sætið að ári. Á næsta ári munu reglur verða strangari hvað varðar tímasetningar á leikjum en það dróst ansi lengi að klára keppnina í ár. Þess mætti geta að holukeppnismeistari Akureyrar er Lesa meira









