
Tiger með nýjan auglýsingasamning við Rolex
Tiger Woods snýr aftur á PGA mótaröðina með nýjan auglýsingasamning upp í ermina, að þessu sinni við Rolex. (Mörgum er e.t.v. í fersku minni að svissneski úraframleiðandinn Tag Heuer rifti samningnum við Tiger eftir að upp komst um framhjáhaldsskandala hans – en einn úraframleiðandi kemur bara í annars stað! )
Þetta er fyrsti stóri auglýsingasamningurinn sem Tiger fær í meira en 2 ár. Tag Heuer hætti samstarfi við Tiger fyrir 2 mánuðum. En Tiger mun bara verða alheimssendiherra fyrir annað fyrirtæki með bækistöðvar í Sviss.
Ekki voru gefnir upp skilmálar á samningnum við Rolex, en talið er að gildistími samningsins sé til lengri tíma en 5 ára.
Fram kom í fréttatilkynningu frá Rolex að fyrirtækið telji að Tiger eigi enn langan farsælan feril framundan. Tiger, sem hefir sigrað á 14 risamótum og 82 mótum um heim allan, hefir ekki sigrað í 2 ár. Hann er á þeim tíma búinn að missa 5 risaauglýsingasamninga vegna framhjáhaldsins, sem leiddi að lokum til lögskilnaðar hans.
Tiger hefur leik á morgun á Frys.comOpen (og er spenningur að sjá hann aftur spila vestra gríðarlegur og reyndar mikill áhugi um allan heim á mótinu.)
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open
- mars. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hrafn Arnarson –—- 15. mars 2023