Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 09:00

GO: Ódýrt á Urriðavöll – 2000 krónur

Á heimasíðu Golfklúbbsins Odds er eftirfarandi tilkynning: „Nú fer golfvertíðin að styttast í annan endann. Til að gera sem flestum kleift að nýta síðustu dagana til hins ýtrasta býður Golfklúbburinn Oddur flatargjöld til utanfélagsmanna á kr. 2.000,- það sem eftir lifir vertíðar. Félagar í Oddi eru hvattir til að láta utanfélagsmenn vita af þessu kostaboði! Urriðavöllur er í “fantaformi” og veðrið er gott – bara drífa sig! Kv. afgreiðsla Urriðavallar“ Segjast verður að þetta sé vel til fundið hjá GO að gera sem flestum kleift að spila frábæran Urriðavöllinn, en dýrasti hringur yfir háannatíma vallarins á sumrin kostar 8.900 fyrir utanfélagsmenn. Þá er bara um að gera að skella sér Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 07:00

PGA: Baird, Bettancourt, Steel & Willis í efsta sæti á FrysOpen.com

Það eru fjórir bandarískir kappar, sem deila efsta sætinu á FrysOpen.com: Briny Baird, Matt Bettencourt, Brendan Steele og Garrett Willis.  Þeir eru allir á -4 höggum undir pari, þ.e. 67 höggum eftir fyrsta dag mótsins Það eru 132 sem taka þátt í mótinu og verður að segjast að munur milli efstu mann sé ekki mikill. Þannig munar „aðeins“ 6 höggum á forystunni og þess sem er í 51. sæti á heimslistanum, sjálfum Tiger Woods, sem eflaust átti ekki óskaendurkomu, enda deilir hann 82. sæti með 15 öðrum, þ.á.m. nýliðanum Joseph Bramlett, eftir 1. dag. Það er vonandi að Tiger nái niðurskurði! Sjá má stöðuna í FrysOpen.com mótinu eftir 1. dag Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2011 | 22:00

Belen nakin í Body Issue

Það er spænski nýliðinn Belen Mozo sem er einn af íþróttamönnunum í ár, sem situr nakin fyrir í „ESPN Magazine´s Body Issue”, sem kemur í bókaverslanir vestra á morgun, föstudaginn 7. október (líklega eitthvað eftir helgi hér á landi). Belen er fædd 25. september 1988 og því  nýorðin 23 ára. Hún náði þeim glæsilega árangri að komast í gegnum Q-school á báðum helstu kvenmótaröðum heims og hefir því spilað bæði á LET og LPGA í ár.  Á síðasta ári landaði hún glæsilegum styrktarsamningi við „hvíta hákarlinn“, Greg Norman, en hún hefir m.a. klæðst fatnaði úr línu hákarlsins á þessu keppnistímabili; Greg Norman Collection apparel. Belen spilaði með golfliði Trojans (þ.e. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2011 | 21:21

LET: Opna sikileyska hefst á morgun

Giulia Sergas frá Norður-Ítalíu vonast til að standa sig vel heima fyrir þegar Opna sikileyska (ens.: Sicilian Ladies Italian Open) hefst á morgun, föstudag 7. október á Evrópumótaröð kvenna. Giulia er hæst rankaði ítalski kylfingurinn af þeim 108, sem taka þátt í Il Picciolo Golf Club í  Castiglione di Sicilia eftir að nr. 4 í Evrópu, Díana Luna dró sig úr keppni af persónlegum ástæðum. Giulia Sergas, 31 ára, frá Trieste,  er sem stendur nr. 29 á Henderson peningalistanum, eftir að hafa keppt 8 sinnum á LET 2011. Hún varð m.a. í 11. sæti á Navistar LPGA Classic í Bandaríkjunum um daginn, þar sem Alexis Thompson vann svo eftirminnilega. Eftir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2011 | 20:45

PGA: Tiger byrjar ekki vel á FrysOpen.com

Tiger Woods byrjar ekki vel á FrysOpen.com Þegar þetta er ritað hefir hann lokið fyrstu 5 holunum og lofar framhaldið ekki góðu. Hann fékk fugl á 1. holu, en síðan 2 skolla í röð, er sem stendu r+ 1 yfir pari og deilir 72. sætinu með öðrum – það er vonandi að honum gangi betur þegar líður á kvöldið! Kannski að álagið „pressan til að performera“ sé of mikil á Tiger, en gífurlegur áhugi er á leik hans m.a. vegna vals Fred Couples á Tiger í Presidents Cup lið Bandaríkjanna. Til þess að fylgjast með gangi mála á mótinu þ.e. á skortöflu smellið HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2011 | 20:30

Bandaríska háskólagolfið: Lið Ingunnar Gunnarsdóttur – Furman í 5. sæti

Ingunn Gunnarsdóttir, klúbbmeistari GKG 2011 og reyndar klúbbmeistari GKG 3. árið í röð skipti s.s. allir vita um háskóla nú í haust. Hún spilar nú með Furman háskólanum í Suður-Karólínu en var áður í McLennan í Texas, þar sem enn einn afrekskylfingurinn okkar er við nám, Ragna Ólafsdóttir, GK. Ingunn er búin að spila 3 leiki með nýja liðinu sínu Furman Paladins í haust, þ.e.: Cougar Classic mótinu í 11.-13. september, Wild Eggs Cardinal Cup 19.-20. september og síðan í móti sem lauk í fyrradag, the UNCG Starmount Fall Classic. Ingunn spilaði á samtals + 19 yfir pari (82 76 74) samtals á 232 höggum og bætti sig í hverjum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2011 | 20:00

13 kvenstjörnur golfsins nr. 8: Hollis Stacy

Hollis Stacy er bandarískur (atvinnu)kylfingur. Hún fæddist 16. mars 1954 í Savannah, Georgíu og komst á LPGA túrinn 1974, þar sem hún vann 18 (LPGA) mót og 4 risamót (þau eru öll talin upp í lok greinar). Hún vakti strax athygli sem áhugamaður en sigraði United States Girls Junior Golf Championship þrívegis og er eini kylfingurinn, sem tekist hefir það þ.e. að sigra mótið 3 ár í röð (1969-1971). Árið 1970 sigraði hún á North and South Women´s Amateur Golf Championship í Pinehurst og spilaði í liði Bandaríkjanna í Curtis Cup, 1972. Hollis Stacy var í Rollins College í Winter Park, Flórída. Hollis Stacy sigraði á 4 risamótum á ferli Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2011 | 18:00

Evróputúrinn: Meistarataktar McGowan í Madríd

Það er Ross McGowan sem leiðir eftir 1. hring á Bankia Madrid Masters, en mótið er hluti Evrópumótaraðarinnar. Ross, 29 ára, vann fyrsta Evrópumótstitil sinn þegar þetta mót fór fram í Centro Nacional de Golf  fyrir tveimur árum. Viðvarandi úlnliðsmeiðsl urðu til þess að hann kom ekki til greina í Ryder Cup lið  Colin Montgomeries og besti árangur hans í ár er 18. sætið á Africa Open í upphafi tímabils. Nú er Ross í 161. sæti á The Race to Dubai og í mikilli hættu að missa kortið sitt á túrnum og e.t.v. hefir það haft sitt að segja að hann spilaði lægsta hring sinn á Evróputúrnum í 3 ár, kom inn í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2011 | 17:00

GR: Opið haustmót n.k. sunnudag – Glæsileg verðlaun

Síðasta opna mót sumarins hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, Opna Haustmót GR fer fram á Grafarholtsvelli sunnudaginn 9. október. Mótið er styrktarmót fyrir karla- og kvennasveitir GR. Við bendum kylfingum á að ræst er út samtímis af öllum teigum kl.12:00, mæting kl.11:00. Leikfyrikomulag mótsins er punktakeppni. Leikið er í tveimur flokkum. Flokki 0–8,4 og 8,5 og hærra. Hámarksforgjöf karla er gefin 24 og 28 hjá konum. Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin í hvorum flokki. Að auki verða veitt nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarsins og að auki verða veitt verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 3. braut og fyrir þann sem er næstur holu í þriðja höggi á 15. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Alice Bauer – 6. október 2011

Alice Bauer fæddist í dag 6. október 1927 og hefði því orðið 84 ára í dag hefði hún lifað en hún dó 2002 úr krabbameini. Alice var sú eldri af „Bauer-systrunum”, sem voru dætur atvinnukylfingsins Dave Bauer. Alice var elsta dóttir Dave og henni var lýst þannig af vinum að hún væri „frábær í púttunum, en með óhefðbundna sveiflu.”  Alice var sem barni þvælt sýslu úr sýslu á golfsýningar, sem hún hélt ásamt systur sinni Marlene. Alice, sem kom frá Eureka í South-Dakota vann fyrsta titil sinn 14 ára á South Dakota Amateur Championship og vann jafnframt þetta ár fyrsta titlil sinn sem framúrskarandi kvenkylfingur South-Dakota. Bauer fjölskyldan fluttist til Lesa meira