13 kvenstjörnur golfsins nr. 6: JoAnne Carner
JoAnne Gunderson Carner fæddist 4. apríl 1939 í Kirkland, Washington. Hún er eina konan sem hefir sigrað á US Girls´Junior, US Women´s Amateur og US Women´s Open mótunum og hún var fyrsta konan til þess að sigra 3 mismunandi USGA mót. Tiger Woods er eini karlmaðurinn sem hefir unnið hliðstæðuna hjá körlunum. Arnold Palmer, Jack Nicklaus og Carol Semple hafa einnig unnið 3 mismunandi USGA titla. Árið 1981 hlaut Carner Bob Jones verðlaunin, sem eru æðstu verðlaun, sem bandaríska golfsambandið veitir þeim kylfingi sem auðsýnt hefir íþróttamannslega framkomu í golfi. Joanne Carner var fyrirliði liðs Bandaríkjanna á Solheim Cup 1994. Áhugamannsferill The Great Gundy (eins og hún var þekkt áður Lesa meira
Ungi, ítalski ástríðukylfingurinn: Matteo Manassero – III. hluti
Matteo Manassero er vanur því að kunningjar og jafnvel vinir viti lítið af vaxandi frægð hans og um það segir hann: „Það er sorglegt, en þetta er bara skrítna lítið mitt, golf.“ En föður hans Roberto, sem sjálfur er „scratch“-kylfingur finnst þetta ekkert skrítið. Hann segir að golfið hafi kennt Matteo „aga og sjálfsstjórn.“ Roberto bætir síðan við:„Vissi ég að hann yrði þetta góður?“ „Nei, aldrei. En ég gat séð að hann hafði ástríðuna.“ Það var hún sem var grunnurinn að sambandi Matteo við Seve Ballesteros, en hann er uppáhaldskylfingur Matteo. Það skipti engu að þegar Matteo og Seve hittust í fyrsta sinn, en þá var Matteo 10 ára og Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Lið Valdísar Þóru í 1. sæti á Johnie Imes Invitational
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og Texas State hefir lokið leik á Johnie Imes mótinu í Missouri. Valdís Þóra spilaði á +9 (74 75 76) eða samtals 225 höggum og er sem stendur í 19. sæti. Sætaröð hennar getur breyst nokkuð því þegar þetta er ritað kl. 18:10 eiga nokkrar eftir að ljúka leik. Liðsfélagar Valdísar, þær Lejan, Iman og Krista hafa raðað sér í 3. efstu sætin og nokkuð ljóst að lið Texas State verður í 1. sæti á mótinu og telur skor Valdísar því 4 bestu skorin telja en sú 5. í Texas State liðinu lék á +12 yfir pari. Til þess að sjá úrslitin í Johnie Imes Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn best í liði Wake Forest í Windy City
Þegar þetta er ritað kl. 17:55 að íslenskum tíma hefir Ólafía Þórunn lokið leik í Windy City Collegiate Championship, sem fram fer í Glen View Club í Illinois. Hún spilaði alla hringi sína í mótinu á 73 höggum og lauk því leik á samtals 219 höggum, +3 yfir pari. Cheyenne Woods lauk leik á +4 yfir pari. Ólafía Þórunn spilaði því best fyrir Wake Forest, er sem stendur í 8. sæti og Cheyenne í 9. sæti. Aðrar í liði Wake voru T-36, T-66 og í 76. sæti, þannig að Wake Forest verður væntanlega ekki ofarlega sem lið – var í 9. sæti í gær og verður líklega á svipuðum slóðum Lesa meira
10 verstu höggin sem slegin eru úti á velli
Það eru nokkur högg í golfi, sem geta gert hvern heilvita kylfing vitlausan. Afleiðingarnar eru ýmsar: heitstrengingar um að hætta í golfi að eilífu… sem er áætlun sem varir hjá flestum ekki nema í nokkrar sekúndur, fúkyrðaflaumur eða í versta falli að kylfum er hent út í vatn eða þær eru beygðar, sveigðar, brotnar eða þeim lamið í jörðina. Allt eru þetta meðal miður skemmtilegra áhrifa sem þessi slæmu högg hafa á kylfinginn. Það versta við það er að hann slær þess högg sjálfur! Þetta eru högg á borð við að slá boltann í óslánlega legu, að sjanka, að „whiff-a“ (þ.e. slá vindhögg), að toppa, að slæsa, að húkka, að Lesa meira
Afmæliskylfingar dagsins: Nína Björk Geirsdóttir og Sunna Víðisdóttir
Það eru tveir geysigóðir kylfingar, sem eiga sama afmælisdag þ.e. í dag 4. október: Nína Björk Geirsdóttir, GKJ og Sunna Víðisdóttir, GR. Nína Björk Geirsdóttir, GKJ, fæddist 4. október 1983 og er því 28 ára í dag. Nína varð m.a. klúbbmeistari GKJ í kvennaflokkki á árunum 1998-1999, 2001-2002, 2009 og 2011. Hún varð Íslandsmeistari stúlkna (16-18 ára) 2001, og Íslandsmeistari með GKJ í sveitakeppni 1998 og 2001. Nína var í sveit Íslands á EM stúlknalandsliða 2000, NM (stúlkna) 2001, EM kvennalandsliða og sveit GKJ á EM klúbbliða 2001. Eins keppti Nína á EM kvenna 2002. Nína var kjörin kvenkylfingur ársins af GSÍ 2006. Og þá er örugglegt ýmsu sleppt hér, sem Lesa meira
Rory ánægður með erfiða mótadagskrá
(Reuters) – Umboðsmenn Rory McIlroy hafa slökkt elda háværs orðróms um að sigurvegari US Open sé að horfast í augu við „burnout“ þar sem hann spili í 9 mótum í 5 löndum næstu 11 vikurnar. Rory kom til Seúl í dag en hann tekur þátt í Opna kóreanska og móti á Asíutúrnum sem hann lauk keppni í, í 3. sæti fyrir 2 árum síðan. Hinn 22 ára (Rory) fer þaðan til Kína þar sem hann ásamt Lee Westwood, Ian Poulter og nr. 1 í Kína Liang Wen-taka þátt í China Golf Challenge, sem fram fer 10.-16. október en mótið er gert fyrir sjónvarp og felur í sér að spila 2-3 holur Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn í 8. sæti og Valdís Þóra í 17. sæti eftir 2. hringi
Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, GR og Wake Forest gekk vel á 1. degi Windy City Collegiate Championship. Hún spilaði 1. hringinn á mótinu fyrir hádegi á 73 höggum og 2. hringinn eftir hádegi í gær líka á 73 höggum og er samtals +2 yfir pari og deilir 8. sæti mótsins með tveimur stúlkum frá Arizona háskóla. Ólafía Þórunn og frænka Tiger Woods, Cheyenne eru að spila best fyrir lið Wake Forest en Cheynne deilir 6. sætinu með stúlku frá Kent State. Wake Forest er í 9. sæti af 15 háskólum, sem þátt taka í mótinu. Til þess að sjá stöðuna á Windy City mótinu, smellið HÉR: Það sama er að Lesa meira
Hver er kylfingurinn Felicity Johnson?
Felicity sigraði kannski mörgum að óvörum á Lacoste Open á París International í gær. Fremur lítt þekktir kvenkylfingar voru búnir að verma efstu sæti alla daga fram að lokadeginum, sem þegar upp er staðið er sá sem skiptir öllu máli. Kylfingar eins og Stefanie Michl, Diana Luna og Kaisa Ruuttila eru nöfn sem sáust ofarlega á skortöflunni en svo stóð allt í einu Felicity uppi sem sigurvegari. Hver er þessi rauðhærða, enska stúlka? Í mjög stuttu máli: Felicity er fædd 26. febrúar 1987 og er því 24 ára. Hún byrjaði að spila golf 5 ára. Hún hætti 16 ára í skóla til þess að geta einbeitt sér að áhugamannsferli sínum Lesa meira
GR: Grímur og Óskar léku best í Opna Under Armour
Opna Under Armour mótið fór fram í gær, sunnudaginn 2. október 2011 og er það þriðja mótið í styrktarmótaröð GR. Mótið fór fram á Korpúlfsstaðavelli. Þátttakendur fengu ekta íslenskt haustveður þar sem skiptust á skin og skúrir. Alls léku 68 kylfingar í mótinu. Helstu úrslit urðu: Forgafarflokkur 0-8,4 1.sæti Grímur Þórisson GÓ, 34 punktar (14+20) 2.sæti Eyþór Ágúst Kristjánsson GOB 34 punktar (15+19) 3.sæti Leifur Kristjánsson GR 33 punktar Forgjafarflokkur 8,5 og hærra 1.sæti Óskar Kristjánsson GR 39 punktar 2.sæti Guðmundur Hreiðarsson GL 37 punktar 3.sæti Ágúst Þorsteinsson NK 36 punktar Næstur holu í upphafshöggi á: 3. braut – Reynir Ámundason GVS – 7,75m 6. braut – Leifur Kristjánsson GR Lesa meira









