GS: Guðmundur Rúnar og Leifur Andri sigruðu á 3. móti Eccohaustmótaraðar GS
Það var góð þátttaka í 3. móti Ecco-haustmótaraðar GS í gær, enda veður til golfleiks framúrskarandi gott, miðað við að komið er fram í síðoktóber. Þátttakendur í gær í Leirunni voru 108, þar af 5 konur. Leikfyrirkomulag var höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf. Í höggleiknum sigraði heimamaðurinn Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, GS, sem kom í hús á glæsilegu skori -3 undir pari, 69 höggum! Guðmundur var kominn í -5 undir par en fékk slæma skolla á 16. og 17. braut Hólmsvallar. Sigurvegari í punktakeppninni var fótboltakappinn úr Kópavogi, HK-ingurinn, Leifur Andri Leifsson, GKG, sem aldeilis sallaði inn punktum, sem urðu alls 48. Glæsilegt afrek það! Önnur úrslit: Höggleikur: 1. Lesa meira
LPGA: Yani Tseng vann í Taíwan
Nr. 1 í heiminum, Yani Tseng, sannaði enn og aftur af hverju hún er best af öllum kvenkylfingum. Yani Tseng er hreint ótrúleg. Hún sigraði á Sunrise LPGA Taíwan Championship í Sunrise Golf & Country Club í, Yang Mei, Taoyuan, Taíwan á samtals -16 undir pari, samtals 272 (68 71 67 66), heilum 5 höggum á undan Amy Yang frá Kóreu og Azahöru Muñoz frá Spáni, sem deildu 2.sætinu á -11 undir pari. Í 4. sæti urðu Anna Nordqvist og Morgan Pressel á – 9 undir pari, 7 höggum á eftir Yani. Þetta er 7. sigur Yani á LPGA á árinu, en 2 þar af voru sigrar á risamótum. Og Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Chi Chi Rodriguez – 23. október 2011
Afmæliskylfingurinn okkar í dag er Juan Antonio Chi Chi Rodriguez, en hann fæddist 23. október 1935, í Rio Piedras á Puerto Rico og er því 76 ára í dag. Hann er sonur fátækra hjóna og var einn 6 systkina. Faðir hans hlaut aðeins $ 18 (um 2000 krónur) í vikulaun sem verkamaður og fjársölumaður. Chi Chi var aðeins 7 ára gamall þegar hann fór að leggja til heimilisins með því að bera vatn á sykurreyrplantekrum. Dag einn villtist Chi Chi litli inn á golfvöll en sá fljótlega að caddy-ar hlutu hærri laun en hann og ákvað að verða caddy. Sem barn tók Chi Chi grein af guava-trénu og bjó sér Lesa meira
Jákvæðni Christinu Kim
Kóreansk-ameríski kylfingurinn Christina Kim, þrefaldur sigurvegari á LPGA, komst í fréttirnar þegar hún sigraði Opna sikileyska sunnudaginn fyrir hálfum mánuði, 9. október 2011. Þetta var fyrsti sigur Christinu (sem hér verður skammstöfuð CK) á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour, skammst. LET). Þess mætti geta að umboðsmaður CK er Chubby Chandler, sem mikið hefir verið í fréttum s.l. viku vegna missis hans á frægum umbjóðendum, þ.e. þeim Ernie Els og nú síðast Rory McIlroy. CK heldur fast í Chubby, en þau kynntust í gegnum Twitter. CK fæddist 15. mars 1984 og er því 27 ára. Hún er sem ferskur andblær á þeim alþjóðlegu golfmótum sem hún tekur þátt í og Lesa meira
GSG: Vetrarmóti nr. 2 aflýst
Í dag átti að fara fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði, vetrarmót nr. 2. Vegna dræmrar þátttöku hefir mótinu nú verið aflýst.
PGA: Justin Leonard og Kevin Chappell í forystu fyrir lokadag CMN Hospitals Classic
Það eru Justin Leonard og Kevin Chappell sem deila 1. sætinu á Children´s Miracle Network Hospitals Classic mótinu í Disney. Báðir eru á -14 undir pari, á samtals 202 höggum; Justin (69 63 70) og Kevin (70 66 66). Einu höggi á eftir er Bio Kim frá Suður-Kóreu, sem berst fyrir að halda kortinu sínu á PGA. Fjórða sætinu deila Nick O´Hern og Henrik Stenson, 2 höggum á eftir forystunni. Webb Simpson hefir 1 höggs forskot á Luke Donald, er búinn að spila á samtals -10 undir pari, þ.e. samtals 206 höggum (68 69 69); meðan Luke er á samtals 207 höggum (66 71 70). Hér eru sett upp nokkur Lesa meira
Kylfingar 19. aldar: nr. 6 Willie Park yngri – fyrri hluti –
Willie Park yngri ( f. 4. febrúar 1864 – d. í maí 1925) var einn af topp atvinnukylfingum 19. aldar. Hann vann Opna breska tvisvar. Willie Park yngri var líka góður golfútbúnaðarsmiður og golfskríbent. Á seinni árum varð hann þekktur sem einn af bestu golfvallararkítektum heims. Æska Willie Park yngri Willie Park yngri var fæddur í Musselburgh í Skotlandi, nálægt Edinborg. Pabbi hans Willie Park eldri var einn af toppkylfingum Skotlands og Willie yngri lærði golf frá æsku. Pabbi hans var með golfútbúnaðar bissness, sem gekk vel, hann framleiddi kylfur og bolta. Park eldri spilaði í áskorendamótum (ens. challenge matches) þar sem lagt var undir og keppti einnig í mótum Lesa meira
Sveit GR varð í 15. sæti í Tyrklandi
Sveit GR, skipuð þeim Haraldi Franklín Magnús, Arnari Snæ Hákonarsyni og Guðmundi Ágúst Kristjánssyni varð í 15. sæti á Evrópumóti klúbba, sem fram hefir farið í Tyrklandi undanfarna 3 daga. Alls voru þátttakendur 87 frá 29 klúbbum víðsvegar um Evrópu. Haraldur Franklín spilaði best af liðsmönnum sveitar GR í dag, sem alla aðra mótsdaga lauk keppni á 74 höggum. Hann spilaði samtals á 226 höggum (78 74 74). Guðmundur Ágúst spilaði á samtals á 235 höggum (80 78 77) og Arnar Snær á 241 höggi (80 79 82). Tvö bestu skorin töldu. Til þess að sjá úrslit á Evrópumóti klúbba smellið HÉR:
Bled golfvöllurinn í Slóveníu
Uppáhaldsgolfvöllur afrekskylfingsins Rúnars Arnórssonar, GK, erlendis og sá sem honum þykir sérstakastur (skv. viðtali við hann hér fyrr í dag) er Bled í Slóveníu. Bled þykir einn af albestu skógarvöllum mið-Evrópu, er á lista yfir topp-100 bestu golfvelli Evrópu og er sá eini frá Slóveníu, sem er á listanum. Tímaritið Golf World Magazine valdi Bled 51. besta völl í Evrópu árið 2011. Golfvöllurinn í Bled opnaði 1937 og var tekinn í gegn af þekkta golfvallararkítektinum Donald Harradine árið 1972. Á næsta ári fagnar Bled golfvöllurinn 75 ára afmæli. Hann er elsti golfvöllur Slóveníu og sá fallegasti. Völlurinn er aðeins í 4 km fjarlægð frá bænum Bled sem er niðrí dal, Lesa meira
Evróputúrinn: Sergio Garcia eykur forystuna – einn í 1. sæti fyrir lokahringinn í Castellón
Sergio Garcia átti einn snilldarhring í dag, upp á 64 högg, þ.e. -7 undir pari. Sergio er nú í efsta sæti á Castelló Masters, er á -19 undir pari samtals, á samtals 194 höggum (67 63 64). Sergio fékk skolla á par-4, 3. brautina, en síðan fugl á 7. og glæsilegan örn á 8. braut. Síðan fór Garcia í fuglagírinn á seinni 9 – fékk 4 fugla í röð á 13.-16. braut og einn á lokaholunni. Sergio á 8 högg á næsta keppanda, sem er Thaílendingurinn Thongchai Jaidee, en Thongchai er búinn að spila á samtals -11 undir pari, 202 höggum (67 69 66). Sjá má stöðuna eftir 3. dag Lesa meira










