Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2011 | 15:15

Evróputúrinn: Sergio Garcia eykur forystuna – einn í 1. sæti fyrir lokahringinn í Castellón

Sergio Garcia átti einn snilldarhring í dag, upp á 64 högg, þ.e. -7 undir pari. Sergio er nú í efsta sæti á Castelló Masters, er á -19 undir pari samtals, á samtals 194 höggum  (67 63 64).  Sergio fékk skolla á par-4, 3. brautina, en síðan fugl á 7. og glæsilegan örn á 8. braut.  Síðan fór Garcia í fuglagírinn á seinni 9 – fékk 4 fugla í röð á 13.-16. braut og einn á lokaholunni.

Sergio á 8 högg á næsta keppanda, sem er Thaílendingurinn Thongchai Jaidee, en Thongchai er búinn að spila á samtals -11 undir pari, 202 höggum (67 69 66).

Sjá má stöðuna eftir 3. dag á Castelló Masters með því að smella HÉR: