Chubby Chandler græðir á samningum Rory næstu 4 árin
Í Golf Digest kom fram að búið sé að ganga óafturkræft frá öllum meiriháttar samningum Rory McIlroy til ársins 2015. Það þýðir að á þeim tíma fær umboðsskrifstofa Chubby Chandler, IMS £10 milljóna umboðslaun og lítið svigrúm er fyrir nýju umboðsskrifstofu Rory, Horizon, til samninga á þeim tíma. Nema…. þeir fá að búa til nýja vefsíðu fyrir hann og geta samið við kærustu hans, tennisstjörnuna Caroline Wozniaki. T.d. í styrktarsamningi, sem Rory er með við spænska bankann Santander, mun bankinn áfram greiða ISM £1 milljón árlega næstu 4 árin. Þrátt fyrir að hafa sagt skilið við Chubby, er Rory enn samningsbundinn honum til langs tíma. Auglýsingasamningur sem IMS náði handa Rory við Lesa meira
Evrópumótaröðin: Graeme McDowell vonast eftir 1. sigri sínum 2011 á Valderrama
Graeme McDowell vonast eftir 1. sigri sínum á árinu, á Evrópumótaröðinni á Andalucia Masters, sem hefst næsta fimmtudag í Club de Golf Valderrama og stendur 27.-30. október. Norður-Írinn (Graeme McDowell) vann 1. Andalucia Masters í fyrra og vonast til að endurminningarnar fleyti honum til sigurs á þessu eyðimerkursári sigurlega séð. G-Mac er sigurlaus í ár eftir besta ár ævi hans í fyrra, 2010. McDowell er sem stendur í 24. sæti á The Race to Dubai listanum (peningalista Evrópumótaraðarinnar) með €749,957 í tekjur. Með sigri á Valderrama gæti hann komið sér meðal topp-15 sem er mikilvægt til þess að fá hlut í bónus pottinum upp á $7,500,000, sem og til að eiga færi Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: – Ian Michael Baker-Finch – 24. október 2011
Afmæliskylfingur dagsins er Ian Michael Baker-Finch. Hann fæddist 24. október 1960 í Nambour, Queensland í Ástralíu og er því 51 árs í dag. Ian Michael ólst upp í sama nágrenni í Queensland og heimsþekktir ástralskir kylfingar þ.e. Greg Norman og Wayne Grady. Þekktastur er Ian Michael fyrir að sigra á Opna breska, árið 1991 þ.e. fyrir nákvæmlega 20 árum. Ian Michal gerðist atvinnumaður í golfi 1979. Hann segir Jack Nicklaus hafa haft mest áhrif á feril sinn, þar sem hann segist hafa byggt golfleik sinn á bók Gullna Björnsins (Nicklaus) „Golf My Way”. Á atvinnumannsferli sínum sigraði Ian Michael 17 sinnum; 2 sinnum á PGA; 2 sinnum á Evróputúrnum; 3 Lesa meira
LET: Frances Bondad sigraði á Sanya Ladies Open
Nú um helgina fór fram mót á Evrópumótaröð kvenna: Sanya Ladies Open í Yalong Bay Golf Club í Hainan, Kína. Hin ástralska Frances Bondad, sem var 2 höggum á eftir Pan Yan Hong frá Kína fyrir lokahringinn, sigraði með glæsihring upp á 67 högg meðan Pan Yan átti afleitan lokhring upp á 72 högg og fór við það niður í 3. sætið, sem hún deildi með Asleigh Simon frá Suður-Afríku, samtals 3 höggum á eftir Bondad. Frances Bondad var á samtals -11 undir pari, þ.e. samtals 205 höggum (68 70 67). Í 2. sæti, aðeins höggi á eftir varð hin skoska Vicky Laing, á samtals -10 undir pari, 206 höggum Lesa meira
Phil Mickelson ekki lengur meðal topp-10 á heimslistanum
Phil Mickelson féll af topp-10 á heimslistanum og er þetta í fyrsta sinn síðan í febrúar 2004, sem það gerist. Sjötta sætið sem Webb Simpson náði á Children’s Miracle Network Hospitals Classic in Florida var ekki nógu gott til þess að ná efsta sæti peningalista PGA en það hafði þær afleiðingar að Webb komst á topp-10 heimslistans og Phil datt þar út. Phil Mickelson er nú í 11. sæti heimslistans. Luke Donald, sem sigraði svo glæsilega í Flórída með lokahring upp á 64 högg, víkkaði bilið milli sín og þess sem er í 2. sæti heimslistans, Lee Westwood. Sergio Garcia, sem sigraði svo glæsilega með 11 högga mun á landa Lesa meira
PGA: D.J. Trahan nr. 125 á peningalistanum
Children Network Miracle Hospitals Classic lauk í gær. Þetta var síðasta mót á PGA mótaröðinni árið 2011 – og eins og alltaf spennandi að sjá hverjir halda kortum sínum með því að vera meðal efstu 125 á peningalista PGA. Sá sem rétt slapp inn á PGA mótaröðina keppnistímabilið 2012 og heldur korti sínu, þ.e. sá sem lenti í 125. sæti er DJ Trahan. Það er ekkert nýtt fyrir DJ að vera síðastur inn í mót eða rétt sleppa inn á eitthvað. Í fyrra t.d. varð hann í 72. sæti eftir 2. dag PGA Championship risamótið, þ.e. var sá síðasti inn til þess að fá að spila alla 4 daga mótsins Lesa meira
PGA: Luke Donald nr. 1 á CMN Hospitals Classic – Peningatitill PGA fer til Luke
Magnolia golfvöllurinn er hluti af „Magic Kingdom“ í Disney. Segja má að Luke Donald sé konungur í þessu „konungdæmi töfranna“ því það sem hann galdraði fram í dag á golfvellinum var ólýsanlegt. Hann varð í 1. sæti í Children Miracle Network Hospitals Classic mótinu á samtals -17 undir pari, samtals 271 höggi (66 71 70 64). Hann gerði það sem þurfti, spilaði á -8 undir pari og tryggði sér peningatitil PGA. Þar með er hann búinn að skrá sig á spjöld sögunnar fyrir að vera efstur á peningalistum beggja vegna Atlantsála þ.e. bæði á PGA og Evróputúrnum. Hann fékk 4 fugla og 2 skolla á fyrri 9 en síðan byrjuðu Lesa meira
Kylfingar 19. aldar: nr. 6 Willie Park yngri – seinni hluti –
Golfbókarhöfundurinn Willie Park yngri Bók Willie Park The Game of Golf (1896) var fyrsta bókin, sem rituð var af atvinnukylfingi. Henni var vel tekið og hún hefir verið vinsæl allar götur síðan, en hún er fáanleg í nútíma, óstyttri útgáfu hjá forlaginu: Arcturus Publishers (2010). Seinni bók Willie Park yngri The Art of Putting, kom út 1920. Golfvallarhönnuðurinn Willie Park yngri Willie vann líka sem golfvallarhönnuður og hannaði 170 golfvelli í Bretlandi, víðsvegar um Evrópu, í Bandaríkjunum og Kanada. Park fór að hanna velli eftir að hann hætti keppnum þegar hann var á fertugsaldri, akkúrat þegar golf var að verða feykilega vinsælt í Bandaríkjunum. Sjá þurfti nýjum kylfingum fyrir golfvöllum Lesa meira
Asíutúrinn: KJ Choi vann á eiginn móti
KJ Choi var gestgjafi á CJ Invitational og sigraði í dag á samtals -17 undir pari, 271 höggi (67 70 67 67) á eiginn móti. Mótið var haldið í Haesley Nine Bridges Golf Club, í Suður-Kóreu. „Það var svo mikið um að vera að ég hugsaði hreinlega ekki um sigurinn. Ég var upptekinn af því að sjá um keppendur og styrktaraðila,” sagði Choi. „Kannski að sú staðreynd að ég hugsaði ekki um mótið hafi hjálpað mér að slaka á. Ég er ánægður með að vera sigurvegari á þessu fyrsta móti þó ég sé gestgjafinn, það gaf þessu sérstaka merkingu.” Landi KJ, Noh Seung-yul varð í 2. sæti á samtals -15 Lesa meira
Evróputúrinn: Garcia vann glæsilegan sigur!
Það var Sergio Garcia, sem sigraði á Castelló Masters á heimavelli sínum Club de Campo del Mediterráneo. Sergio var á samtals -27 undir pari, samtals 257 höggum (67 63 64 63). Glæsilegir hringir og glæsileg endurkoma hjá Sergio Garcia, sem er búinn að vera sigurlaus í 3 ár! Sergio vann landa sinn Gonzalo Fdez-Castaño, sem varð í 2. sæti með 11 högga mun. Þetta jafnar 3. mesta mun í sögu Evróputúrsins á sigurvegara og þess, sem kemur næstur á móti Evrópumótaraðarinnar. Tiger Woods sigraði með mesta mun árið 2000 á US Open Championship, þar sem hann átti 15 högg á næsta mann og Ernie Els átti 13 högg á þann Lesa meira










