Viðtalið: Rúnar Arnórsson, GK.
Um miðjan maí, þegar allt var að vakna til lífsins þetta herrans ár 2011 fór Golf 1 af stað með að taka viðtöl við íslenska kylfinga, þ.e. leggja fyrir þá nokkrar staðlaðar spurningar, með örlitlum frávikum í hvert sinn. Hér fer eitt af fyrstu viðtölunum, en viðmælandi er Rúnar Arnórsson, afrekskylfingur, í Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði. Fullt nafn: Rúnar Arnórsson Klúbbur: Golfklúbburinn Keilir (GK), Hafnarfirði. Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Reykjavík, 11. júní 1992. Svo bjó ég fyrstu 3 árin í Danmörku. Hvar varstu alinn upp? Í Hafnarfirði. Fjölskylduaðstæður? Ég bý heima hjá foreldrum mínum. Ég á eina systur, Signýju og bróður sem er fluttur út. Hvenær byrjaðir þú Lesa meira
LPGA: Yani Tseng leiðir fyrir lokadaginn í Taíwan
Það er „heimakonan“ Yani Tseng og leikmaður ársins á PGA 2011 sem leiðir á Sunrise mótinu. Yani var sú eina í dag af keppendum Sunrise, sem spilaði undir 70 höggum, kom í hús á glæsilegum 67 höggum og hefir tekið 2 högga forystu. Samtals er Yani á -10 undir pari, 206 höggum (68 71 67). Forystukonurnar frá því í gær koma í næstu sætum, hin sænska Anna Nordqvist er í 2. sæti á samtals -8 undir pari, 208 höggum (69 68 71). Í 3. sæti er Azahara Muñoz, höggi á eftir Önnu. Til þess að sjá stöðuna í Sunrise-mótinu fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun smellið HÉR:
Sólskinstúrinn: Darren Fichardt sigraði á Suncoast Classic
Það var Darren Fichardt frá Suður-Afríku, sem sigraði á Suncoast Classic mótinu, sem fram hefir farið undanfarna 3 daga í Durban Country Club í Kwazulu Natal. Darren sigraði með þó nokkrum yfirburðum var samtals á -13 undir pari, 203 höggum (70 65 68). Í 2. sæti heilum 6 höggum á eftir Darren varð Ulrich van den Berg. Þriðja sætinu deildu síðan Alex Haindl, Allan Versfeld og Waren Abery. Til þess að sjá úrslit í mótinu smellið HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: – Peter Tomasulo 22. október 2011
Peter Tomasulo fæddist 22. október 1980 í Long Beach, Kaliforníu og er því 31 árs í dag. Peter var í University of Californía og árið 2004 var hann tilnefndur first team All-American og var fyrirliði sigurliðs University of Californias í NCAA. Árið 2003 setti hann skólamet í lægsta meðaltalsskori 70.98 og spilaði í Palmer Cup liði Bandaríkjanna, sem tapaði fyrir liði Evrópu 14-10. Tomasulo gerðist atvinnukylfingur árið 2004. Árið 2005 spilaði hann á kanadíska túrnum og Nationwide Tour og vann 1 skipti og hvorri mótaröð. Hann vann Montreal Open á kanadíska túrnum og Alberta Classic á Nationwide. Hann sigraði einnig á heimaslóðum og vann á Long Beach Open. Árið 2005 Lesa meira
GG: Skálamóti frestað vegna lítillar þátttöku
Á heimasíðu Golfklúbbs Grindavíkur segir eftirfarandi: „Skálamóti frestað vegna lítillar þátttöku. Skálamóti sem átti að vera (í dag) laugardag hefur verið frestað vegna ónógrar þátttöku. Aðeins 17 voru skráðir í mótið. Völlurinn er samt sem áður opinn og er í frábæru standi.“
PGA: Leonard, Stenson og Kim leiða þegar CMN Hospitals Classic er hálfnað
Justin Leonard lýsti hring sínum í gær sem „skemmtilegum, auðveldum degi,“ og svo virtist sem hann hafi haft rétt fyrir sér. Hann kom inn á -9 undir pari, 63 höggum, sem er lægsta skor hans á þessu ári og kom honum í forystu á CMN Hospital Classic ásamt Henrik Stenson og Bio Kim, þegar mótið er hálfnað. Allir eru forystumennirnir á samtals -12 undir pari, samtals 132 höggum: Leonard (69 63); Stenson (68 64) og Kim (67 65) Justin er í 144. sæti á peningalista PGA TOUR og hefir ekki minnstu áhyggjur af því að fá ekki kortið endurnýjað vegna þess að hann hefir keppnisrétt 2012 á PGA. Tveimur höggum Lesa meira
PGA: Luke Donald og Webb Simpson jafnir þegar CMN Hospital Classic er hálfnað
Luke Donald og Webb Simpson voru rétt í þessu að ljúka 2. hring á CMN Hospital Classic (Disney-mótinu) sem fram fer á Disney Magnolía golfvellinum við Lake Buena Vista í Flórida. Báðir eru á samtals -7 undir pari, Webb spilaði á -3 undir pari í dag og Luke Donald á -1 undir pari og er Webb því búinn að ná upp 2 högga forystu, sem Luke hafði í gær. Báðir eru á samtals 132 höggum Webb (68 69) en Luke (66 71). Þeir sem leiða mótið eins og er, eru Bandaríkjamaðurinn Justin Leonard og Bio Kim frá Suður-Kóreu, en sá síðarnefndi átti m.a. frábært högg upp úr flatarglompu og Lesa meira
Kylfingar 19. aldar: nr. 5 – Mungo Park
Mungo Park (1835–1904) var hluti frægrar, skoskrar golffjölskyldu. Hann fæddist í Quarry House í Musselburgh, sem var einn af bæjunum sem sá um Opna breska á árunum 1870-1880. Hann lærði að spila golf sem strákur, en varði síðan 20 árum ævinnar sem sjómaður. Hann sneri aftur til heimabæjar síns 1870 og vann Opna breska 1874 á Musselburgh linksaranum. Sigurskorið hans voru 159 högg á 36 holum. Hann varði afgangi ævinnar sem golfvallarhönnuður, golfkennari og kylfusmiður. Bróðir Mungo, Willie Park eldri og frændi hans Willie Park yngri (sem fjallað verður um á morgun) unnu báðir Opna breska í árdaga mótsins. Heimild: Wikipedia
Rory skiptir um umboðsmann
Rory McIlroy hefir verið í samstarfi við umboðsskrifstofu Chubby Chandler, International Sports Management. Í dag, aðeins nokkrum dögum eftir Grand Slam, þar sem aðrir umbjóðendur Chubby þeir Charl Schwarzel og Darren Clarke kepptu, tilkynnti Rory að hann hefði ákveðið að skipta um umboðsskrifstofu. Nýja umboðsskrifstofa hans er sú sama og sér um málefni Graeme McDowell, þ.e. Horizon Sports Management, sem er með höfuðstöðvar í Dublin. Þetta er annar umbjóðandi, sem Chubby missir á innan við mánuð, en Ernie Els yfirgaf Chubby í síðasta mánuði og er nú á mála hjá fyrirtæki Vinny Giles og Buddy Marucci. „Það er bara að halda áfram og upp á við“ sagði á vefsíðu Chubby. Lesa meira
PGA TOUR Latinoamerica kynnt
PGA mótaröðin tilkynnti stofnun PGA TOUR Latinoamerica í gær, 20. október 2011. Þetta verður atvinnumótaröð með 11 mótum, sem spiluð verða í 7 löndum Suður-Afríku: Mexikó, Kólombíu, Púertó Ríkó, Brasilíu, Argentínu, Chile og Perú. „Það er okkur ánægja að tilkynna að við hleypum af stokkunum PGA Tour Latinoamerica,” sagði framkvæmdastjóri PGA TOUR, Tim Finchem. „Þessi útvíkkun til Suður-Armeríku saman með hvað Nationwide Tour hefir gert á svæðinu á undanförnum árum er hluti eðlilegrar framfarar golfsins, sem heldur áfram að breiðast út um allan heim. Við lítum á þetta sem tækifæri til þess að stuðla að áframhaldandi þróun bestu kylfinga í Suður-Ameríku. Tímasetningin er rétt, þar sem í Suður-Ameríku fara fram Lesa meira








