Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2011 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: John Francis Pott – 6. nóvember 2011

John Francis Pott fæddist 6. nóvember 1935 í Cape Girardeau, Missouri og er því 76 ára í dag. Hann ólst upp í Mississippi þar sem hann lærði að spila golf á golfvellinum þar sem pabbi hans var golfkennari. Hann spilaði með Louisiana State University í bandaríska háskólagolfinu og var í Tigers-liðinu þegar skólinn vann NCAA Championship árið 1955. Pott gerðist atvinnumaður í golfi 1956. Hann sigraði 5 sinnum á PGA túrnum í kringum 1960. Hann var þrívegis í Ryder Cup liði Bandaríkjanna, 1963, 1965 og 1967, þó að hann meiddist í baki 1965 og gat lítið spilað. Þegar leið að lokum daga hans á túrnum fékkst Pott við golfvallarhönnun og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2011 | 10:00

HSBC: Kaymer sigraði í Kína – á 63 höggum!

Loksins! Loksins! Eftir sigurleysi frá því í Abu Dhabi snemma árs tókst fyrrum nr. 1 í heiminum, þýska kylfingnum Martin Kaymer loksins að landa sigri.  Hann átti frábæran lokahring í dag á HSBC heimsmótinu í Sheshan í Kína. Kom í hús á  63 högga glæsihring og jafnaði þar með vallarmetið, sem Oosthuizen setti á 2. hring mótsins!  Martin Kaymer spilaði skollafrítt og fékk 9 fugla þar af 7 á seinni 9. Samtals var Martin  á -20 undir pari, samtals  268 höggum (69 68 68 63); átti 3 högg á næsta mann. Í 2. sæti mikilla vonbrigða er Svíinn Fredrik Jacobson, sem búinn var að leiða allt mótið. Hann lauk keppni Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2011 | 07:00

LPGA: Momoko Ueda sigurvegari Mizuno Classic

Það var japanska stúlkan Momoko Ueda, sem sigraði á Mizuno Classic mótinu í Japan.  Hún spilaði hringina 3 á samtals -16 undir pari (67 64 69) líkt og Shashan Feng frá Kína (68 67 65). Það kom því til umspils á milli Momoko og Shashan, þar sem heimakonan, Momoko, hafði betur með fugli á 3. holu umspils. Þetta er í 2. sinn sem Momoko sigrar á Mizuno Classic, en fyrra skiptið var 2007. Fyrir sigur sinn hlaut Momoko $ 180.000,- Hér má sjá myndbandsupptöku af Momoko á 2. hring sínum í mótinu, þar sem hún var á 64 högga glæsiskori. Sérlega glæsilegur á þeim hring var fuglinn sem hún fékk Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 15 – Jack Simpson

Jack Simpson (f. 15. júlí 1858 – d. 30. nóvember 1895) var skoskur kylfingur. Hann fæddist í Earlsferry, Fife og var einn af 6 bræðrum, sem allir spiluðu golf. Jack Simpson spilaði mestalla ævi golf í Carnoustie. Hann var kröftugur en ekki mjög nákvæmur kylfingur. Hann sigraði Opna breska í Prestwick, 1884 með skor upp á 160 á 36 holum, þrátt fyrir að fá 9 högg á 2. braut.  Sigurlaun hans voru £10. Hann vann aldrei aftur á Opna breska og varði seinni hluta stuttrar ævi sinnar við kylfusmíðar. Jack Simpson dó 1895, aðeins 37 ára að aldri. Heimild: Wikipedia

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2011 | 19:00

Sólskinstúrinn: Tyrone Mordt leiðir fyrir lokahringinn

Nashua Masters fer nú fram í Wild Coast Country Club (par 70) á Sólskinstúrnum. Retief Goosen var eitt sinn beðinn að nefna 18 uppáhaldsholur sínar í heiminum og sú 13. í Wild Coast var ein af þeim sem hann nefndi.  En yfir í aðra sálma…. Fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun á Nashua Masters leiðir Tyrone Mordt.Hann er búinn að spila hringina 3 á samtals- 5 undir pari, samtals 205 höggum (68 71 66). Í 2. sæti er Shaun Norris, höggi á eftir og 3. sætinu deila 6 kylfingar, sem allir eru búinir að spila á samtals -3 undir pari, þ.e. eru 2 höggum á eftir Tyrone Mordt, sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2011 | 18:00

Adam Scott ætlar ekki að reka Williams

Ástralski kylfingurinn Adam Scott stendur sem klettur við hlið kylfubera síns, Steve Williams, þegar golfheimurinn var viss um að hann myndi reka hann eftir síðustu ummæli Williams um fyrrum vinnuveitanda sinn, Tiger Woods. Á Annual Caddy Awards dinner í Kína í gær fór Steve Williams upp á svið til þess að taka við verðlaunum fyrir „bestu fagnaðarlæti keppnistímabilsins“ (ens. season´s best celebration) eftir sigur Adam Scott á Bridgestone Invitational. Aðspurður hvers vegna hann hefði fagnað svo innilega sagði Willims um Tiger: „Markmið mitt var að troða þessu beint upp í þetta svarta rassgat“ (ens.:  „It was my aim to shove it right up that black arsehole.“) Ummælin voru látin falla í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Einar Haukur Óskarsson – 5. nóvember 2011

Það er Einar Haukur Óskarsson, vallarstjóri GOB, sem er afmæliskylfingur dagsins. Einar Haukur er fæddur 5. nóvember 1982 og er því 29 ára. Hann byrjaði að spila golf 12 ára gamall. Einar Haukur lærði golfvallarfræði í Elmwood College. Meðal afreka hans í golfinu er að sigra á 3. stigamóti íslensku mótaraðarinnar 2009. Eins fékk Einar Haukur silfrið á Íslandsmeistaramótinu eftirminnilega í holukeppni 2009, eftir æsilegan úrslitaleik við Kristján Þór Einarsson, GKJ. Nú nýlega sigraði afmæliskylfingurinn okkar í höggleik á 2. móti Eccomótaraðar GS, 16. október 2011, spilaði Leiruna á glæsilegum 70 höggum. Golf 1 óskar Einari Hauki innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2011 | 11:00

10 atriði sem þú vissir ekki um Kiradech Aphibarnrat

Hinn þéttvaxni og gífurlega hæfileikaríki thaílenski kylfingur Kiradech Aphibarnrat elskar að spila golf og heillar áhorfendur með kraftmiklum og högglöngum leik sínum. Eftir fyrsta sigur sinn á Asíutúrnum á SAIL Open á Indlandi hefir Aphibarnrat verið dóminerandi á þeim túr.  Blaðafulltrúi Asíutúrsins tók viðtal við Kiradech og lagði fyrir hann spurningar um 10 atriði sem við hefðum ekki vitað um ef ekki hefði verið spurt. Hér er spurningar blaðafulltrúans og svör Kiradech Aphibarnrat: Hver er uppáhaldskylfan í pokanum? Nýi pútterinn minn, en ég skipti um pútter eftir Maybank Malaysian Open. Ég er að sökkva mun fleiri púttum núna. Hver var fyrirmyndin þín í golfinu þegar þú varst lítill? Lee Westwood. Hann Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2011 | 10:00

Fredrik Jacobson leiðir eftir 3. dag á HSBC mótinu

Það er Svíinn Fredrik Jacobson sem leiðir eftir 3. dag á HSBC mótinu í Sheshan í Kína. Jacobson er búinn að spila á samtals -16 undir pari (67 66 67) eða samtals 200 höggum. Fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun á Jacobson 2 högg á þann sem vermir 2. sætið Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku. Sjá má stöðuna á HSBC með því að smella HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2011 | 09:00

LPGA: Momoko efst þegar Mizuno Classic er hálfnað

Það eru 3 japanskar stúlkur, sem raða sér í 3 efstu sætin á Mizuno Classic þegar mótið er hálfnað: Í 1. sæti er Momoko Ueda (á mynd) á 131 höggi (66 64). Í 2. sæti er Sakura Yokomine á 134 höggum (71 63) og 3. sætinu deila þær Mayu Hattori frá Japan, Mina Harigae (sem er japanskættuð stúlka frá Bandaríkjunum) og síðan Shanshan Feng frá Kína, á 135 höggum hver. Til þess að sjá stöðuna á mótinu smellið HÉR: