Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2011 | 19:00

Golfvellir á Spáni: Aloha Golf Club í Marbella

Hér verður í stuttu máli fjallað um Aloha Golf Club í Marbella, en golfvöllur klúbbsins er uppáhaldsgolfvöllur Guðmundar Sveinbjörnssonar, GK, sem Golf 1 birti viðtal við í gær. Aloha Golf Club er beint á móti Puerto Banús og maður kemst þangað eftir hinni góðkunnu N-340, sem flestir kannast við sem spilað hafa golf á Costa del Sol. Klúbburinn er í 4 km fjarlægð frá Marbella. Golfvöllur Aloha Golf Club er hannaður af Javier Arana, sem er einn virtasti golfvallarhönnuður spænskra golfvalla en meðal golfvalla sem hann hefir hannað eru El Saler í Valencia og El Prat í Barcelona. Aloha Golf er síðasta verk Arana, en hann dó 1975 rétt fyrir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2011 | 16:00

Allir hafa álit á kynþátttafordómaummælum Williams – Martin Kaymer; Forsetabikarsfyrirliðarnir og talsmenn PGA Tour og Evrópumótaraðarinnar

Tim Finchem og George O’Grady framkvæmdastjórar PGA Tour og Evrópumótaraðarinnar sögðu þegar þeir komu fram fyrir International Federation of PGA Tours: „Það er ekki rúm fyrir nokkurskonar kynþáttahatur í okkar eða nokkurri annarri íþrótt. Við teljum ummæli Steve Williams algjörlega óásættanleg í hverskyns samhengi,” sagði í fréttatilkynningu þeirra. „Við erum þess meðvitaðir að hann (Williams) hefir beðið afsökunar og treystum því að við heyrum ekki svona ummæli aftur. Á þeim grundvelli teljum við málinu lokið og munum ekki tjá okkur um það meir.” Sigurvegari helgarinnar á HSBC heimsmótinu í Sheshan, í Kína, Martin Kaymer var meðal þeirra fjölmörgu sem var í kaddýpartýinu í Shanghaí.  Hans álit á málinu var að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Davíð Gunnlaugsson – 7. nóvember 2011

Það er Davíð Gunnlaugsson, GKJ, sem er afmæliskylfingur dagsins. Davíð er fæddur 7. nóvember 1988 og er því 23 ára í dag. Davíð á 3 systkini, Andra 12 ára, Björgu 20 ára og Eydísi 29 ára, en ekkert af þeim er í golfi. Hins vegar er kærasta Davíðs, Heiða Guðnadóttir, GKJ, landsþekktur kylfingur.  Davíð byrjaði 11 ára á golfnámskeiði hjá GKJ.  Meðal margra afreka Davíðs í golfíþróttinni er t.d. að verða Íslandsmeistari í sveitakeppni 16-18 ára, árið 2005. Davíð starfar sem aðstoðarþjálfari hjá GKJ, en er í lögfræði í Háskóla Íslands á veturna. Í viðtali við Davíð, sem birtist hér síðar á Golf1 sagði hann aðspurður að markmiðið í lífinu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2011 | 11:15

Fréttatilkynning Adam Scott um Williams/Woods-kynþáttafordóma-málið

Á heimasíðu Adam Scott gefur að finna eftirfarandi fréttatilkynningu: „Ég vil grípa þetta tækifæri og ræða ummæli sem höfð voru eftir kylfusveini mínum, Steve Williams á  Annual Caddy Awards Dinner s.l. viku í  Shanghai, og fjölmiðlaumfjöllunina sem fylgdi. Ég vil að það sé algjörlega skýrt að ég hvorki styð né líð kynþáttafordóma. Ég trúi því að það sé alls ekkert rúm fyrir kynþáttamismunun hvar sem er í lífinu, þ.m.t. í golfíþróttinni. Ég hef rætt málið við Steve og hann skilur og styður skoðanir mínar í þessu. Ég tek líka til greina afsökunarbeiðni Steve, vitandi að hann vildi ekki vera með neitt kynþáttaníð í ummælum sínum. Fyrir hönd liðs okkar bið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 7. 2011 | 10:15

Tiger heldur blaðamannafund í dag – fyrsta sinn eftir kynþáttafordóma Steve Williams

Tiger Woods heldur fyrsta blaðamannafund sinn í dag, mánudag, þann fyrsta eftir að fyrrum kylfusveinn hans, Steve Williams varð með kynþáttafordóma í hans garð. Það er óljóst hvort fyrrum nr. 1 á heimslistanum (Tiger Woods) muni tjá sig um málið á fundinum í Sydney (sem fara á fram kl. 11:30 að íslenskum tíma) en á dagskrá er að ræða Australian Open sem framundan er. Ný-Sjálendingurinn Steve Williams lét ummælin falla um Tiger á kaddýkvöldi í Shanghai s.l. föstudag, en Steve var þá að bera kylfur fyrir Ástralann Adam Scott, á WGC-HSBC Champions mótinu, en hafði verið látinn taka pokann sinn hjá Tiger í júlí. Þrátt fyrir að International Federation of PGA Tours Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2011 | 22:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 16 Lucy Barnes Brown

Lucy Barnes Brown (fædd Lucy Nevins Barnes), fæddist 16. mars 1859 í New York City í Bandaríkjunum.  Hún er þekktust fyrir að sigra á fyrsta US Women´s Amateur mótinu 1895. Lucy giftist Charles Stelle Brown 1880 og keppti 1895 undir nafninu Frú Charles S. Browne og var fulltrúi Shinnecock Hills golfklúbbsins. Shinnecock Hills var með félaga á þeim árum í klúbbnum, sem hétu Barnes og bandaríska golfsambandið er með getgátur hvort Frú Brown hafi verið dóttir þeirra. Bandaríska golfsambandið var nýstofnað 1894 og árið 1895 hélt það fyrstu mót sín US Amateur og US Open. Þann 9. nóvember 1895 var fyrsta US Women´s Amateur meistaramótið haldið í Meadow Brook Club í Town Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2011 | 20:30

Viðtalið: Guðmundur Sveinbjörnsson, GK.

Um miðjan maí, þegar allt var að vakna til lífsins þetta herrans ár 2011 fór Golf 1 af stað með að taka viðtöl við íslenska kylfinga, þ.e. leggja fyrir þá nokkrar staðlaðar spurningar, með örlitlum frávikum í hvert sinn.  Hér fer eitt af fyrstu viðtölunum, en viðmælandi er Guðmundur Sveinbjörnsson, einn af 6 kylfingum hérlendis, sem hafa orðið Norðurlandameistarar í sveitakeppni í golfi. Það var árið 1992. Guðmundur hefir m.a. verið atvinnumaður í golfi og samhliða atvinnumennskunni sinnti hann golfkennslu, en það þekktist lítið á þeim árum sem hann sinnti kennslunni. Guðmundur kenndi árið 1996 í Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði, sem hann hefir verið félagi í með hléum frá árinu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2011 | 17:30

Um sigur Martin Kaymer á HSBC

Hér á eftir fara nokkrar staðreyndir um Martin Kaymer og sigur hans í dag (6. nóvember) á HSBC: • Þetta er 10. sigur Kaymer á Evróputúrnum í 120 mótum, sem hann hefir tekið þátt í. • Verðlaunafé Kaymer er nú  €2,830,264 í The Race to Dubai. • Martin Kaymer hefir unnið meira en €2 milljónir á 1 ári, 3. árið í röð á Evrópumótaröðinni. • Næsta víst er að Kaymer fer úr 6. sætinu, sem hann er í, í það 4. á heimslistanum á morgun. • Þetta er 2. sigur Martin Kaymer 2011, en hann sigraði líka á Abu Dhabi HSBC Golf Championship. • Martin Kaymer verður með þessu 9. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2011 | 17:00

Sólskinstúrinn: Shaun Norris vann Nashua Masters

S.l. 4 daga hefir Nashua Masters mótið farið fram í Wild Coast Sun Country Club Kwazulu Natal, eða dagana 3.-6. nóvember. Sigruvegari mótsins er Shaun Norris. Hann spilaði hringina 4 á samtals -9 undir pari, samtals 271 höggi (68 73 65 65). Í 2. sæti, einu höggi á eftir Norris,varð forystumaður gærdagsins Tyrone Mordt. Hann spilaði á 272 höggum (68 71 66 67). Darren Fichardt varð í 3. sæti á 275 höggum (70 74 65 66) , þ.e. 4 höggum á eftir Norris. Til þess að sjá úrslit á Nashua Masters smellið HÉR:  En hver er sigurvegari Nashua Masters, kylfingurinn Shaun Norris? Shaun Norris varð í 11.-18. sæti í Q-school Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2011 | 16:00

Hver er kylfingurinn: Momoko Ueda?

Momoko Ueda (á japönsku: 上田 桃子) fæddist 15. júní 1986, í Kumamoto, Japan og er því 25 ára.  Hún varð árið 2007, þá 21 árs, yngsti kylfingurinn í sögu japönsku LPGA (skammst.: JLPGA) mótaraðarinnar  til þess að verða efst á peningalistanum þar í landi. Nú sem stendur spilar Momoko á bandarísku LPGA mótaröðinni. Hún á að baki 2 sigra á bandaríska LPGA og 9 sigra á japanska LPGA. Áhugamannaferill Momoko Momoko byrjaði að spila golf 9 ára og fékk inngöngu í hinn virta Sakata skóla 10 ára. Í 23 áhugamannamótum sem hún tók þátt í var hún meðal 10 efstu, 15 sinnum, þ.á.m. vann hún 3 sinnum og var 5 Lesa meira