Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2011 | 19:00

Sólskinstúrinn: Tyrone Mordt leiðir fyrir lokahringinn

Nashua Masters fer nú fram í Wild Coast Country Club (par 70) á Sólskinstúrnum. Retief Goosen var eitt sinn beðinn að nefna 18 uppáhaldsholur sínar í heiminum og sú 13. í Wild Coast var ein af þeim sem hann nefndi.  En yfir í aðra sálma….

Fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun á Nashua Masters leiðir Tyrone Mordt.Hann er búinn að spila hringina 3 á samtals- 5 undir pari, samtals 205 höggum (68 71 66). Í 2. sæti er Shaun Norris, höggi á eftir og 3. sætinu deila 6 kylfingar, sem allir eru búinir að spila á samtals -3 undir pari, þ.e. eru 2 höggum á eftir Tyrone Mordt, sem leiðir. Þessir kylfingar eru: Brandon Pieters, Jean Hugo, Theunis Spangenberg, Justin Harding, David Hewan og Darryn Lloyd.

Til þess að sjá stöðuna á Nashua Masters eftir 3. dag smellið HÉR: