Williams með kynþáttafordóma í garð Tiger
Steve Williams, fyrrum kylfuberi Tiger Woods er aftur í fréttum vegna meiðandi ummæla um fyrrum vinnuveitanda sinn, sem talin eru fela í sér kynþáttafordóma. Ummælin voru látin falla í árlegum kvöldverði kylfubera í gærkvöldi á Le Meridien Sheshan hotel, þar sem Williams var að taka við verðlaunum fyrir kaddýstörf. Skv. upplýsingum dagblaðsins Telegraph var Steve Williams með míkrófón í hendi upp á sviði og spurður af hverju hann hefði fagnað svo gífurlega þegar nýi vinnuveitandi hans Adam Scott sigraði á Bridgeston Invitational heimsmótinu í ágúst s.l. Svar Williams: „Markmið mitt var að troða beint upp í þetta svarta…“ (ens.: My aim was to shove it right up that black…) Umsögnin Lesa meira
Kylfingar 19. aldar: nr. 14 – Beatrix Hoyt
Beatrix Hoyt (f. 5. júlí 1880 – d. 14. ágúst 1963) var bandarískur meistari áhugamanna í golfi. Beatrix Hoyt er 3. yngsti kylfingurinn til þess að sigra á United States Women´s Amateur Golf Championship og er ein af aðeins 5 til þess að sigra mótið 3 sinnum í röð. Beatrix fæddist í Westchester County, New York og er barnabarn Salmon P. Chase (1808-1873), sem var fjármálaráðherra í stjórn Lincoln forseta, sem síðar varð dómstjóri (ens.: Chief Justice) við Hæstarétt Bandaríkjanna. Beatrix byrjaði 14 ára að spila golf en hún var félagi í Shinnecock Hills Golf Club í Southampton, New York, sem hvatti unglinga og konur til þess að byrja í Lesa meira
Sólskinstúrinn: Lloyd er í forystu á Nashua Masters þegar mótið er hálfnað
Í gær hófst Nashua Masters, sem fer fram í Wild Coast Sun Country Club Kwazulu Natal, dagana 3.-6. nóvember. Nú þegar mótið er hálfnað er Darryn Lloyd í forystu. Hann er á samtals – 5 undir pari, samtals 135 höggum (64 71). Aðeins höggi á eftir er Garth Mulroy á samtals -4 undir pari; samtals 136 höggum (67 69). Tveir deila síðan 3. sætinu Tyrone Mordt og David Hewan á samtals -1 undir pari hvor þ.e. 139 höggum; Mordt (68 71) og Hewan (71 68). Oliver Bekker er svo í 5. sæti á sléttu pari (68 72). Til þess að sjá stöðuna á Nashua Masters smellið HÉR:
Nokkrar góðar setningar sem gott er að kunna þegar spilað er golf í Japan
Í Japan fer nú fram Mizuno Classic mótið. Margir kylfingar af Evrópumótaröð kvenna og LPGA taka þátt í mótinu. Eftir 1. dag mótsins eru það allt asískir kylfingar sem leiða: Teresa Lu frá Taíwan, Akane Iijima frá Japan og Ah Reum Hwang frá Suður-Kóreu. Asískum kylfingum hefir verið legið á hálsi fyrir að kunna ekkert að tjá sig á ensku. Carolyn Bivens fyrrverandi framkvæmdastjóri LPGA gekk m.a. svo langt að leggja til að sekta ætti alla asíska kylfinga fyrir að kunna ekki ensku. Hún var látin taka pokann sinn. Hvernig er hins vegar með okkur? Gætu flest okkar sagt nokkuð gáfulegt á japönsku á golfvelli í Japan? Á heimasíðu LPGA Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Seve Benson – 4. nóvember 2011
Seve Benson fæddist 4. nóvember 1986 í Guildford, Surrey og á því 25 ára afmæli í dag. Hann er skírður í höfuðið á golfgoðsögninni. Seve Ballesteros. Sem áhugamaður var hann hluti af Elite A Squad breska golfsambandsins og sigraði áhugameistaramótin í Qatar og Rússlandi. Hann náði niðurskurði í atvinnumannamótum þessara þjóða varð T-58 á Qatar Masters og T-10 á Opna rússneska. Seve gerðist atvinnumaður í lok árs 2007. Hann reyndi að fá þátttökurétt með því að taka þátt í Q-school 2007 en missti af sæti á túrnum eftir 72 holuna, en var búinn að tryggja sér keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni 2008. Seve vann fyrsta sigur sinn sem atvinnumaður á PGA EuroPro Lesa meira
Fredrik Jacobson leiðir eftir 2. dag HSBC – Oosthuizen á vallarmeti 63 höggum!
Það er Svíinn Fredrik Jacobson, sem hefir tekið forystuna á HSBC heimsmótinu í Sheshan í Kína þegar mótið er hálfnað. Hann er búinn að spila á samtals 133 höggum (67 66) þ.e. samtals -11 undir pari. Öðru sætinu deila Louis Oosthuizen (71 63) risamótssigurvegari frá því í fyrra (Opna breska) og Adam Scott (69 65) aðeins höggi á eftir Jacobson. Oosthuizen setti nýtt vallarmet í dag á Sheshan Alþjóða golfvellinum, spilaði á glæsilegum 63 höggum! Oosthuizen spilaði skollafrítt og fékk 9 fugla á hringnum. Til þess að sjá stöðuna á HSBC að öðru leyti eftir 2. dag smellið HÉR:
Uppáhaldshlutir Frances Bondad
Ástralska stúlkan Frances Bondad vann sem kunnugt Sanya Ladies Open. Áhugamenn um golf almennt verða alltaf ákaflega forvitnir um allt varðandi nýjar golfstjörnur og eitt af því sem vinsælt er að spyrja slíka kylfinga um er hvað er í uppáhaldi hjá þeim. Eftirfarandi er í uppáhaldi hjá Frances Bondad: Uppáhaldsborg: Amsterdam Uppáhaldsbíll: Audi Uppáhaldsdrykkur: Vatn Uppáhaldsmatur: Asískur / austurlenskur Uppáhaldseftirréttur: Eplakaka (ens.: applre crumble)með ís Uppáhaldsveitingastaður: Hurricanes Bar & Grill í Sydney Uppáhalds listamaður, tónlist eða hljómsveit: Veit ekki of margir Uppáhaldskvikmynd: Remember the Titans og hryllingsmyndir Uppáhaldsbók: „Anything about serial killers, psychopaths and the paranormals Uppáhaldseign: Kylfurnar mínar Uppáhaldshlutur: Mac Book-in mín Uppáhaldsverslun: Swatch Uppáhaldsfatahönnuður: Tommy Hilfiger Uppáhaldssnyrtivörur: Bobby Lesa meira
LPGA: Hwang, Iijima og Lu leiða á Mizuno Classic eftir 1. dag
Í dag hófst á LPGA Mizuno Classic mótið sem spilað er í Kintetsu Kashikojima Country Club í Shima-shi Mie í Japan. Sú sem á titil að verja frá því í fyrra er Jiyai Shin, sem ekki hefir átt neitt sérstakt ár í ár. Það eru 3 stúlkur sem leiða mótið eftir 1. dag: Ah Reum Hwang frá Suður-Kóreu, heimakonan Akane IIjima og Teresa Lu frá Taíwan. Allar komu þær inn á 66 höggum eða -6 undir pari vallar. Í 4. sæti er Momoko Ueda frá Japan aðeins höggi á eftir og 5. sætinu deila 7 stúlkur, allar á 68 höggum en þ.á.m. eru Catriona Matthews frá Skotlandi og Azahara Muñoz Lesa meira
Hvaða dræver er sigursælastur 2011?
Árið 2011 er nú senn á enda. Golf Digest leit yfir farinn veg og tók saman 17 vinsæla drævera á árinu 2011 – en ekki bara vinsæla heldur er þeim raðað eftir fjölda þeirra sigra á PGA Tour sem unnist hafa með þeim. Hvíti TaylorMade R11 dræverinn er búinn að vera gríðarlega vinsæll. En hvort skyldu fleiri sigrar hafa unnist með honum eða Titleist 910D2/910D3? Til þess að sjá svarið smellið hér og sjáið slides af 17 sigursælustu dræverunum á PGA Tour árið 2011 HÉR:
Kylfingar 19. aldar: nr. 13 – Leslie Melville Balfour
Leslie Melville Balfour-Melville fæddist 1854 í Bonnington, Edinborg. Hann var lögfræðingur og samhliða því frábær alhliða íþróttamaður. Þann 29. júlí 1882 var hápunktur hans, sem íþróttamanns þegar hann leiddi lið Skotlands til sigurs í krikket gegn Ástralíu. En Leslie Melville Balfour var líka rugby liðsmaður og m.a. í alþjóðasambandi rugbyleikmanna, hann var góður tennisspilari, skautahlaupari, langstökkvari, billiardspilari og í krullu. Hann skaraði fram úr í golfi og sigraði m.a. The Amateur Championship á St. Andrews 1895. Hann gegndi líka stjórnarstöðum í ýmsum íþróttasamböndum m.a. var hann forseti skoska rugbysambandsins, forseti skoska krikketsambandsins og fyrirliði (captain) Royal og Ancient Golf Club 1906. Leslie Balfour Melville dó 1937, 83 ára að aldri. Hann Lesa meira










