Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 17:30

Birgir Leifur á 77 höggum á 1. degi á Costa Ballena

Það gekk ekki vel hjá Birgi Leif á 1. degi 2. stigs úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina, sem fram fer nú um helgina í Costa Ballena Ocean Club nálægt Rota á Suður-Spáni. Birgir Leifur kom í hús á +5 yfir pari og er í næstneðsta sæti því 72 af 74 keppendum. Birgir fór afar illa af stað, fékk skolla á upphafsbraut sinni 10. brautinni og síðan skramba á 14. par-3, sem margir hafa átt í vandræðum með og annan skramba á 18. braut.  Á seinni 9 gekk betur, þá fékk Birgir 3 fugla en því miður líka 3 skolla og því +5 yfir pari lokaniðurstaðan. Það eru 3 sem verma 1. sæti Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 16:00

Viðtalið: Gunnar Sandholt, GSS.

Fullt nafn:  Gunnar Magnús Sandholt. Klúbbur: GSS. Hvar fæddistu? Reykjavík, 12. ágúst 1949. Hvar ertu alinn upp? Reykjavík. Fjölskylduaðstæður? Er einhver í fjölskyldunni, sem spilar golf? Ég er einstæður faðir með 19 son – Sonurinn var í golfskóla, hann spilar stundum með félögunum . Hvenær byrjaðir þú í golfi? Svona 2002-3. Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Heilablóðfall. Eftir að ég fékk það byrjaði ég að leita eftir einhverrju nýju til að hreyfa mig. Hvað starfar þú?   Ég er félagsmálastjóri Skagafjarðar. Hvort kanntu betur við skógar- eða strandvelli?   Skógarvelli. Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur? Holukeppni. Hver er ppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi?  Hlíðarendi á Sauðárkróki – ég þekki Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 15:00

Hver er kylfingurinn: Greg Chalmers?

Greg Chalmers sigraði glæsilega á Australian PGA Championship s.l. helgi og helgina þar áður sigraði hann á Opna ástralska. Nú í desember mun hann reyna að vinna Australian Masters og taka þar með áströlsku þrennuna. En hver er þessi klári, kylfingur, sem svo lítið hefir borið á hérna megin hnattar? Greg J. Chalmers fæddist í Sydney 11. október 1973 í Sydney, Ástralíu og er því 38 ára og á sama afmælisdag og á því sama afmælisdag og t.d. Michelle Wie og Heiða Guðna og fleiri frægir kylfingar, en 11. október virðist vera mikill afmælisdagur góðra kylfinga. Árið 1993 sigraði hann á Australian Amateur og árið 1994 vann hann French Amateur. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 14:23

Graeme McDowell leiðir á Nedbank Golf Challenge eftir 2. dag

Graeme McDowell leiðir þegar Nedbank Golf Challenge, sem fram fer í Sun City í Suður-Afríku er hálfnað. Graeme kom inn á 67 höggum í dag og er samtals búinn að spila á 137 höggum (70 67), eða -7 undir pari. Í 2. sæti eru Lee Westwood, Martin Kaymer, Jason Dufner og Robert Karlson, aðeins höggi á eftir McDowell.  6. sætinu deila KT Kim og Simon Dyson, á -4 undir pari hvor. Anders Hansen frá Danmörku er í 8. sæti, á -3 undir pari. Schwartzel átti afleitan dag, var á 74 höggum í dag og er dottinn úr forystusætinu, sem hann var í, í það 9. sem hann deilir með nr. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 13:45

Rory McIlroy og Alvaro Quiros í 1. sæti þegar USB Hong Kong Open er hálfnað

Norður-Írinn Rory McIlroy og Spánverjinn Alvaro Quiros eru í 1. sæti þegar USB Hong Kong Open er hálfnað. Rory og Alvaro spiluðu báðir á 69 höggum í nótt og eru á sama skori -7 undir pari, samtals 133 höggum (64 69). Í 3. sæti eru Thaílendingurinn Pittayarat og Skotinn Ramsay, aðeins höggi á eftir forystunni, samtals -6 undir pari hvor. Í 5. sæti eru síðan 3 kylfingar þ.á.m. Miguel Angel Jiménez, Þeir eru allir búinir að spila á samtals -5 undir pari, 131 höggi.  Ljóst er því að mjótt er á munum og stefnir í spennandi keppni um helgina. Til þess að sjá stöðuna á USB Hong Kong Open eftir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Bjarki Pétursson, GB – 2. desember 2011

Það er Bjarki Pétursson, GB, sem er afmæliskylfingur dagsins. Bjarki er fæddur 2. desember 1994 og er því 17 ára í dag. Bjarki er efnilegasti kylfingur Íslands skv.viðurkenningu sem hann hlaut á lokahófi GSÍ, 10. september 2011. Golfárið hefir verið einstaklega gott hjá Bjarka hann varð klúbbmeistari GB, 3. árið í röð. Bjarki tók þátt í Duke of York mótinu á Hoylake vellinum hjá Royal Liverpool klúbbnum og náði 16. sæti, sem er góður árangur í ljósi þess að veðrið var að leika keppendur grátt alla dagana. Eftirminnilegur er árangur Bjarka á Hólmsvelli í sumar, en hann lék Leiruna á 68 höggum í 2. móti Arionbankamótaraðar unglinga, 4. júní sl. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 11:00

Myndskeið: Sveifla Martin Kaymer og það sem er í pokanum hjá honum

Svo sem kunnugt er, eru fleiri með poka en jólasveinar. Kylfingar þ.á.m. nr. 4 í heiminum (Martin Kaymer), sem nú deilir 4. sætinu með 5 öðrum góðum á Nedbank Golf Challenge í Suður-Afríku er með golfpoka sem margir öfunda hann af. Eftirfarandi er í poka Martin Kaymer: Dræver: TaylorMade R11 driver 8* Brautartré: TaylorMade R9 fairway 13* Blendingar: TaylorMade Rescue 11 TP hybrid 16* Járn: TaylorMade RAC TP járn (3-PW) Wedge-ar: TaylorMade TP xFT ZTP wedge-ar (54*, 58*) Boltar: TaylorMade Penta TP golfboltarl Golfskór: Adidas Golf adiPURE. Hanski: TaylorMade TP. Með því að smella hér má sjá frábært myndskeið af sveiflu Kaymer: SVEIFLA MARTIN KAYMER

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 09:00

Birgir Leifur hefur leik á Costa Ballena í dag

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hefur leik í úrtökumóti á 2. stigi Evrópumótaraðarinnar á Costa Ballena í dag. Annað stig úrtökumótsins er spilað á 4 völlum víðsvegar um Spán í dag: Costa Ballena (sjá kynningu Golf 1 á vellinum HÉR:); El Valle (sjá kynningu Golf 1 á vellinum HÉR:); La Manga (sjá kynningu Golf 1 á vellinum HÉR:) og Las Colinas (sjá kynningu Golf 1 á vellinum HÉR:) Costa Ballena 27 holu golfvöllinn hannaður af Jose Maria Olazabal, kannast margir Íslendingar við, bæði afreks- sem aðrir, en íslenska landsliðið hefir verið við æfingar í Costa Ballena, sem og þúsundir annarra Íslendinga sem margir hverjir hafa stigið sín fyrstu skref í golfíþróttinni Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 07:30

PGA Q-school: David Duval í 81. sæti – Will Claxton leiðir eftir 2. dag

Nú um mundir fer fram í La Quinta, Kaliforníu lokaúrtökumót PGA.  Spilaðir verða 6 hringir, dagana 1.-5. desember 2011. Meðal þátttakendanna 171 eru mörg þekkt nöfn þ.á.m. David Duval, sem eitt sinn var nr. 1 á heimslistanum, Tommy Armour, Seung Noh-Jul og Sam Saunders, barnabarn Arnold Palmer. Þegar spilaðir hafa verið 2 hringir af 6 er Seung Noh-Jul T-30 (69 72); Sam Saunders T-47 (68 74): David Duval T-81 (72 72) og  Tommy Armour T-145 (74 75). Mörg önnur fræg nöfn taka þátt í lokaúrtökumótinu m.a. Boo Weekley, Ty Tryone, Nicholas Thompson (bróðir Lexi Thompson), Peter Tomasulo og Daníel Chopra. Til þess að sjá stöðuna þegar fyrsta þriðjungi mótsins er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2011 | 07:05

KJ Choi efstur á Chevron World Challenge – Tiger og Stricker í 2. sæti!

Það er KJ Choi frá Suður-Kóreu, sem leiðir á Chevron World Challenge, sem hófst á Sherwood vellinum í Thousand Oaks, Kaliforníu,  í gær. Hann fékk frábæra fuglaröð frá 1.-5 holu, þar sem fimm fuglar duttu í röð. Alls fékk hann 7 fugla og 1 skolla og lauk því leik í gær á 66 höggum. Tiger Woods, er sem fyrr gestgjafi. Hann er í 2. sæti ásamt Steve Stricker en þeir eru báðir 3 höggum á eftir Choi, á 69 höggum hvor.. Í 4. sæti eru Nick Watney, Rickie Fowler og Jim Furyk, allir á -1 undir pari hver, 71 höggi. Til þess að sjá hápunktana frá hring gærdagsins á Sherwood, Lesa meira