Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 18:00

Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Helena Rubinstein hjá GL, 9. júlí 2011

Þann 9. júlí fór fram á Garðavelli á Akranesi Helenu Rubinstein golfmótið í brakandi blíðu og sólskini.  Þátttakendur voru 78. Leikfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf og keppt í 3 forgjafarflokkum: 1. fl. 0-17,9 – 2. fl. 18,0-27,9 – 3. fl. 28,0-36 Til þess að sjá myndaseríu úr mótinu smellið HÉR:  Sigurvegarar í 1. flokki urðu: 1. sæti Jóna Sigríður Halldórsdóttir, GR, 37 pkt. 2. sæti Hildur Magnúsdóttir, GL, 35 pkt. 3. sæti Friðmey Jónsdóttir, GL, 33 pkt. Sigurvegarar í 2. flokki urðu: 1. sæti Elín Rós Sveinsdóttir, GL, 36 pkt. 2. sæti Ágústa Sveinsdóttir, GK, 35 pkt. 3. sæti Sigríður E. Blumerstein, GL, 35 pkt. Sigurvegarar í 3. flokki urðu: 1. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 17:59

Helena Rubinstein mótið hjá GL – 9. júlí 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 15:06

Birgir Leifur fer upp um 11 sæti – lék á 71 höggi á 2. degi á Costa Ballena

Birgir Leifur Hafþórsson hefir lokið 2. hring á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Hann kom inn á 71 höggi í dag og er því samtals búinn að spila á 148 (77 71) höggum, er samtals +4 yfir pari.  Hann deilir sem stendur 61. sæti en, enn eiga nokkrir eftir að ljúka leik.  Þetta er allt upp á við og vonandi að framhald verði á morgun hjá Birgi Leif og hann bæti sig enn um 6 högg. Golf 1 óskar Birgi Leif góðs gengis á morgun! Til þess að sjá stöðuna á Costa Ballena, þegar 2. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina er hálfnað smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 15:00

Viðtalið: Ragnheiður Matthíasdóttir, GSS.

Það er Ragnheiður Matthíasdóttir, GSS, sem er viðmælandi Golf 1 að þessu sinni. Hún var endurkjörin gjaldkeri GSS á aðalfundi klúbbsins, sem haldinn var 24. nóvember s.l. Í gjaldkeratíð Ragnheiðar hefir GSS blómstrað en reksturinn sýndi 3 milljón króna hagnað á síðasta ári. Rekstrartekjur námu tæplega 22 milljónum króna og gjöld voru um 19 milljónir. Hér sýnir Ragnheiður á sér hina hliðina, en fyrir utan að vera góður gjaldkeri er hún frábær kylfingur. Svo eru ekki allir kylfingar sem eru með geimskip í pokanum. Hér fara spurningar Golf 1 og svör Ragnheiðar. Fullt nafn: Ragnheiður Matthíasdóttir. Klúbbur: GSS Hvar fæddistu? Í Reykjavík. Hvar ertu alin upp? Í Reykjavík. Fjölskylduaðstæður? Er einhver Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jean Hugo – 3. desember 2011

Það er suður-afríski kylfingurinn Victor Jean Hugo, sem spilar á Sólskinstúrnum, sem er afmæliskylfingur dagsins í dag. Jean Hugo fæddist 3. desember 1975 og er því 36 ára í dag. Sem barn og unglingur spilaði Jean og var félagi í Stellenbosch golfklúbbnum fræga í Suður-Afríku. Hann útskrifaðist úr Paul Roos menntaskólanum í Stellenbosch, 1994 og 3 árum síðar frá University of Stellenbosch með BA gráðu.  Jean gerðist síðan atvinnumaður í golfi 1999. Jean Hugo er sonur þekkts efnafræðings í Suður-Afríku, Victor Hugo og konu hans Esme, sem bæði eru miklir íþróttamenn. Jean hefir sigrað 15 sinnum á atvinnumannsferli sínum, þar af 13 sinnum á Sólskinstúrnum. Jean hefir spilað á Evróputúrnum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 09:30

Alvaro Quiros efstur fyrir lokahring UBS Hong Kong Open

Það er Spánverjinn Alvaro Quiros sem leiðir fyrir lokahring UBS Hong Kong Open, sem spilaður verður á morgun. Quiros er samtals á -10 undir pari, sléttum 200 höggum (64 69 67). Spænska sleggjan (Quiros), sem búinn er að vera meiddur í úlnlið er svo sannarlega að stimpla sig sterkt inn aftur. Forysta hans er þó naum, því Daninn Anders Hansen er fast á hæla honum á -9 undir pari, 201 höggi (68 68 65). Þriðja sætinu deila Asíubúarnir Juhasavasdikul frá Thaílandi og Y.E. Yang frá Suður-Kóreu á -8 undir pari hvor. Svo erum við komin að McIlroy, sem búinn er að leiða 2 fyrstu daga mótsins en er dottinn niður Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 08:00

Myndskeið: Viðtal við Tiger eftir frábæran hring hans á Chevron

Tiger Woods leiðir á Chevron World Challenge þegar mótið er hálfnað. Það er gaman að geta skrifað svona fréttir aftur eftir 2 ár. Eftir frábæran hring Tigers upp á 67 högg var tekið viðtal við hann þar sem hann sagði m.a. að hann hefði verið að slá vel allan hringinn og ekki misst nema örfá tækifæri til að gera betur. Hann sagði um m.a. um 2. höggið sitt á par-5 2. brautinni að hann hefði notað 5-járn.Tiger setti síðan niður arnarpútt. Um högg sitt á 3. braut, þar sem hann fékk fugl sagði  hann að púttið hefði verið frá vinstri til hægri niður í móti og gengið upp. Um 3. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 07:00

PGA Q-school: Will Claxton enn í forystu þegar mótið er hálfnað – Seung Noh Yul T-2

Will Claxton leiðir á PGA Q-school sem fer fram í La Quinta í Kaliforníu dagana 1.-5. desember. Will er búinn að spila fyrstu 3 hringina á samtals 203 höggum (64 70 69) og munar mestu um 1. hring hans upp á 64 högg, en á hann skrifast forysta hans. Í 2. sæti aðeins 2 höggum á eftir eru 3 kylfingar þ.á.m. suður-kóreanski unglingurinn Seung Noh-Jul. Nicholas Thompson, bróðir Lexi Thompson, er T-33; Sam Saunders, barnabarn Arnold Palmer, er T-73, hefir heldur betur dregið af honum en hann var í 26. sæti eftir 1. daginn og 47. sæti í gær. Tommy Armour III, 52 ára, elsta þátttakanda Q-school, tókst að lyfta Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 06:00

Myndskeið: Hápunktar 2. dags á Chevron

Hér fyrir neðan er myndskeið af nokkrum æðislegum höggum frá 2. degi Chevron World Challenge. Myndskeiðið hefst á erni Webb Simpson á par-5 11. brautinni, en fyrir hvern örn sem fenginn er á mótinu fer ákveðin upphæð til góðgerðarverkefna sem Tiger Woods Foundation styrkir (þetta átak nefnist „Eagles for Education“ eða lauslega þýtt „ernir fyrir menntun“ þ.e. fjárhæðin sem fengin er fyrir hvern örn rennur til menntunarmála.  Annar hringurinn var Webb þó erfiður – hann var á 79 höggum. Næst sést frábært högg Rickie Fowler á 16. braut, en hann náði líka erni. Svo er fallegt pútt Hunter Mahan, sem hann setti niður af 50 feta færi (u.þ.b. 15 metra Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2011 | 02:00

Tiger sýndi gamalkunna takta á Chevron World Challenge – er í 1. sæti þegar mótið er hálfnað

Á Sherwood vellinum í Thousand Oaks, Kaliforníu fer nú fram Chevron World Challenge mótið, þar sem Tiger er gestgjafi.  Og hann er ekkert gestrisinn… Leikur hans 2. dag mótsins var í einu orði sagt: Frábær! Hann er einn í 1. sæti þegar mótið er hálfnað skilaði sér í hús á -5 undir pari, 67 höggum og er samtals búinn að spila á 136 höggum (69 67), samtals -8 undir pari. Í 2. sæti eru þeir KJ Choi og Matt Kuchar, 3 höggum á eftir Tiger, báðir búinir að spila á samtals -5 undir pari, 139 höggum; Choi (66 73) og Kuch (72 67), en sá síðarnefndi átti lægsta skor gærdagsins, Lesa meira