Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 17:00

Myndarsería og úrslit: Horft yfir íslenska golfsumarið 2011 – Opna heimsferðamótið hjá GK – 9. júlí 2011

Laugardaginn 9. júlí fór fram á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði, Opna Heimsferðarmótið. Þátttakendur voru 164 og luku 155 keppni í sólskini og blíðskaparveðri.  Leikfyrirkomulagið var höggleikur með forgjöf (verðlaun veitt fyrir 4 efstu sætin) og punktakeppni með forgjöf (verðlaun veitt fyrir 5 efstu sætin). Með því að smella hér má sjá myndaseríu: OPNA HEIMSFERÐARMÓTIÐ GK – 9. JÚLÍ 2011 Helstu úrslit voru eftirfarandi: Höggleikur: 1. sæti Guðjón Ármann Guðjónsson, NK, 70 högg. 2. sæti Andri Þór Björnsson, GR, 71 högg. 3. sæti Pétur Freyr Pétursson, GR, 72 högg. 4 .sæti Steinn Freyr Þorleifsson, GK, 72 högg.   Punktakeppni með forgjöf:  1. sæti Sigurður Lárusson, GR, 41 pkt. 2. sæti Guðjón Ármann Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 16:59

Opna Heimsferðamótið hjá GK – 9. júlí 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 15:00

Viðtalið: Árný Lilja Árnadóttir, GSS.

Það er klúbbmeistari GSS 2011, Árný Lilja Árnadóttir, sem er viðmælandi Golf 1 að þessu sinni. Hún er dóttir golfkennarans góðkunna Árna Jónssonar, sem ásamt Heiðari Davíð Bragasyni þjálfar Íslandsmeistara telpna í GHD, í sveitakeppni GSÍ 2011, einu Íslandsmeistara sem klúbburinn hefir átt. Árný Lilja er svo sannarlega dóttir föður síns; í stuttu máli: frábær í golfi! Fullt nafn:  Árný Lilja Árnadóttir Klúbbur: GSS. Hvar fæddistu? Á Akrueyri, 28. júlí 1970. Hvar ertu alin upp? Á Akureyri. Fjölskylduaðstæður? Er einhver í fjölskyldunni sem spilar golf? Ég er gift og á 2 stráka. Það eru allir í golfi heima hjá mér. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég var 15 ára. Hvað varð til Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 14:30

Schwartzel og Westwood leiða á Nedbank Golf Challenge eftir 1. dag

Það eru heimamaðurinn Charl Schwartzel og nr. 3 í heiminum, Lee Westwood, sem hafa tekið forystuna á Nedbank Golf Challenge í Sun City, Suður-Afríku. Báðir spiluðu á -4 undir pari, þ.e. komu inn á 68 höggum. Charl fékk 7 fugla og 1 skramba á par-5 9. brautinni en Lee fékk á hinn bóginn örn á sömu par-5 braut og 2 skolla og 4 fugla. Í 3. sæti er Svíinn, Robert Karlson, sem búinn var að vera í forystu mestallan daginn. Hann spilaði á -3 undir pari, 69 höggum og er 1 höggi á eftir forystumönnunum. Martin Kaymer er í 4. sæti ásamt 5 öðrum, m.a. G-mac og nr. 1. Anders Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 13:13

PGA Q-school: Tommy Armour III meðal þátttakenda

Elsti þátttakandi í lokaúrtökumóti PGA Q-school, sem hófst í gær er Tommy Armour III, fæddur 8. október 1959. Tommy er því nýorðinn 52 ára.  Tommy hefir sigrað tvívegis á PGA Tour og spilaði á Champions Tour 2011, þar sem hann varð 4 sinnum meðal topp-10 í þeim 23 mótum, sem hann tók þátt í. Hann lauk keppnistímabilinu í 28. sæti á peningalista Champions Tour. „Ég er í fullu starfi á næsta ári,“ sagði hann um þátttöku sína í Q-school „ég er bara að leita mér að hlutastarfi.“ „Það er auðveldara að vinna sér inn peninga á PGA en á Champions Tour.“ „Einhver spurði mig að því hver munurinn væri að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lee Trevino – 1. desember 2011

Afmæliskylfingur dagsins er Lee Trevino, en hann fæddist 1. desember 1939, í Dallas, Texas og því 72 ára í dag. Hann er oft uppnefndur „Supermex“ eða „The Merry Mex“ vegna mexíkansks uppruna síns, en móðir hans, Juanita, er mexíkönsk og Lee mikið átrúnaðargoð meðal mexíkanskra golfaðdáenda. Lee gerðist atvinnumaður í golfi árið 1960 og hefir því spilað leikinn göfuga í 51 ár á atvinnumannsstigi og á þeim tíma sigrað alls 89 sinnum, þar af 29 sinnum á PGA, 29 sinnum á Champions Tour og 31 sinnum á öðrum mótaröðum. Af helstu afrekum Lee mætti nefna að hann hefir í 6 skipti sigrað á risamótum golfsins, Opna bandaríska árin 1968 og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 10:00

PGA Q-school: Sam Saunders loksins að stíga fram úr skugga afa síns: Arnold Palmer

Birgi Leif gekk ekki sem skyldi í úrtökumóti fyrir PGA mótaröðina í Flórída. Þar er hann í hópi m.a. Ty Tryon, sem gekk t.a.m. ekki vel á 1. degi lokaúrtökumóti í PGA West Q-school í gær, spilaði á 78 höggum. Það sama er að segja um fyrrum PGA stjörnuna Boo Weekley, hann spilaði á 74 höggum. Hins vegar gekk barnabarni Arnold Palmer, Sam Saunders vel á Nicklaus keppnisvellinum – hann kom inn á 68 höggum og steig þar með loks úr skugga afa síns, Arnold Palmer. Á PGA West eru tveir vellir notaðir fyrir PGA Q-school: Stadium völlurinn, hannaður af Pete Dye, sem almennt er talinn erfiðari en Nicklaus keppnisvöllurinn. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 09:15

Evróputúrinn: McIlroy,Quiros og Horsey leiða í Hong Kong eftir 1. dag

Það eru Rory McIlroy frá Norður-Írlandi, Spánverjinn Alvaro Quiros og Bretinn David Horsey, sem leiða eftir 1. dag UBS Hong Kong Open, sem fram fer í Fanling í Hong Kong, dagana 1. – 4. desember 2011. Allir komu þeir í hús á 64 höggum; Rory og David spiluðu skollafrítt fengu 6 fugla; Alvaro spilaði líka skollafrítt en fékk 4 fugla og 1 örn. Glæsilegir opnunarhringir hjá þessum 3 köppum! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á UBS Hong Kong Open, smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 09:00

GB og GKJ: Aðalfundir í kvöld – 1. desember 2011

Á heimasíðu Golfklúbbs Borgarness (GB) er eftirfarandi auglýsing um aðalfund klúbbsins: AÐALFUNDUR   Aðalfundur Golfklúbbs Borgarness verður haldin fimmtudaginn 1. desember  nk. kl. 20:00, að Hamri.                    Dagskrá:   1.                 Skýrsla stjórnar og nefnda. 2.                 Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar. 3.                 Tillögur um breytingu laga og reglugerða skv. 10. grein 4.                 Tillögur stjórnar um fjárhagsáætlun næsta starfstímabils og tillaga um félagsgjöld borin undir  atkvæði. 5.                 Kosning stjórnar, varamanna í stjórn og nefnda skv. 8. grein. 6.                 Kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga og eins til vara. 7.                 Önnur mál.                                                            Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.                                                                                                          Stjórnin. ———————————————————————————————————————————— Á heimasíðu Golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ er eftirfarandi auglýsing um aðalfund klúbbsins: „Aðalfundur Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2011 | 08:00

Til hamingju Ísland! – 1. desember 2011

Í dag er Fullveldisdagurinn og við höldum upp á að Ísland hlaut fullveldi 1. desember 1918 undan Danmörku. Fullveldi felur í sér að fara með æðstu stjórn, dóms-, löggjafar- og framkvæmdavalds, skv. kenningunni um þrískiptingu ríkisvalds yfir landsvæði eða hóp fólks. Það er ýmist ríkisstjórn eða þjóðhöfðingi sem fer með fullveldið. Ísland hlaut fullveldi í dag fyrir 93 árum, en varð ekki sjálfstætt fyrr en 17. júní 1944. Ástæðan er  sú að Íslendingar viðurkenndu danska konunginn áfram sem þjóðhöfðingja sinn og utanríkisstefna Íslands var áfram í höndum Dana. Golf 1 óskar kylfingum landsins, sem öðrum Íslendingum til hamingju með daginn!