Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2011 | 09:00

Jólasveinninn Bubba Watson á púttflötinni

Bubba Watson er sá kylfingur PGA Tour sem alltaf er til í eitthvað grín. Þegar litið er yfir árið má t.a.m. sjá Bubba í hlutverki hljómsveitartöffara í „Boys bandinu“  Golf Boys. Sjá má gríðarvinsælt lag Bubba og félaga í Golf Boys, Oh Oh Oh með því að smella HÉR:  Það var í sumar. Nú virðist Bubba hafa snúið laginu við í Ho Ho Ho, því hér kemur Bubba fram í hlutverki jólasveins á púttflötinni. Til þess að sjá myndskeiðið með jólasveininum Bubba Watson smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2011 | 06:00

Hvernig eru jólin heima hjá þér? Nokkrar stjörnur LPGA svara spurningum um jólin

Hvað gerir þig hamingjusamasta um jólin? Amanda Blumenherst Að syngja jólalög í kirkju á aðfangadag með fjölskyldunni. Chella Choi Jólatré! Sandra Gal Að gefa vinum og fjölskyldu gjafir! Mina Harigae Að vera með fjölskyldunni vegna þess að við elskum öll jólin. Caroline Hedwall Að vera saman með allri fjölskyldunni. Jimin Kang Að vera með fjölskyldunni. Christina Kim Að fá frí og vera með fjölskyldunni. Paige Mackenzie Að vera með fjölskyldunni. Catriona Matthew Að sjá andlit barnanna á jóladag eftir að þau sjá hvað jólasveinninn hefir fært þeim! Anna Nordqvist Að verja tíma með fjölskyldunni. Pornanong Phatlum Að fagna með fjölskyldunni. Dewi Claire Schreefel Þar sem ég bý í Bandaríkjunum og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2011 | 21:30

Afmæliskylfingur dagsins: Guðmundur Freyr Hansson, GHD – 23. desember 2011

Það er Guðmundur Freyr Hansson, GHD, sem er afmæliskylfingur dagsins. Guðmundur Freyr  er fæddur 23. desember 1962 og er því 49 ára í dag. Afmæliskylfingurinn okkar á sæti í stjórn GHD, er  formaður mótanefndar. Hann tók þátt í nokkrum opnum mótum í ár, t.d. Dalvíkurskjálftanum og Jakó Namó mótinu. Guðmundur Freyr er kvæntur Valgerði Maríu Jóhannsdóttur og á 4 börn: Hans Friðrik, Jónínu Björg, Magneu Helgu og Söndru Dögg. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Herman Barron, f. 23. desember 1909 – d. 11. júní 1978;  Eyrún Birgisdóttir, 23. desember 1952 (59 ára); John Bickerton, 23. desember Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2011 | 18:30

Viðtalið: Davíð Gunnlaugsson, GKJ

Viðtalið í dag er við Davíð Gunnlaugsson, laganema og kylfing með meiru. Hér fara spurningar Golf 1 og svör Davíðs. Fullt nafn: Davíð Gunnlaugsson. Klúbbur: GKJ Hvar og hvenær fæddistu?  Reykjavík, 7. nóvember 1988. Hvar ertu alinn upp? Í Mosfellsbæ. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf?  Ég á tvær systur og einn bróður, Andra 12 ára, Björg 20 ára og Eydísi, 29 ára, Ekkert af þeim er í golfi. Kærastan mín er Heiða Guðna. Hvenær byrjaðir þú í golfi?    Ég byrjaði 11 ára á golfnámskeiði hjá GKJ og Einar Bjarni, sem er með golfspjall.is núna var leiðbeinandi. Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi?  Ég bý Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2011 | 13:00

Sex bestu

„Sex bestu“ er hugtak sem fyrst komst inn í golfhugtakasafnið á árinu sem er að líða.  Sex bestu eru 6 eftirfarandi kylfingar, sem unnið hafa risamótstitla í röð og spila allir á Evrópumótaröðinni. Þetta eru:  Charl Schwartzel (Masters Tournament), Rory McIlroy (US Open), Darren Clarke (Opna breska) sem fóru að fordæmi Graeme McDowell (US Open), Louis Oosthuizen (Opna breska) og Martin Kaymer (US PGA Championship, en 3 síðastnefndu unnu sigra sína 2010. Einn þessara risameistara, Darren Clarke, varð í gær 2. í vali á íþróttamanni ársins á Englandi en kosið er beinni sjónvarpskosningu á BBC. Íþróttamaður ársins í Bretlandi er hjólreiðamaðurinn Mark Canvendish, sem sigraði í Tour de France. Luke Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2011 | 12:00

Mele Kalikimaka!

Mele Kalikimaka þýðir „Gleðileg jól“ á máli innfæddra í Hawaii. Fyrstu mót PGA Tour hefjast einmitt í Hawaii á næsta ári 2012 og því við hæfi að sletta svolítið á hawaiiísku. Í útvarpinu hljómar síbylja jólalaga, en eitt er það sem ekki hefir heyrst lengi, en það er einmitt Mele Kalikimaka með uppáhaldsjólasöngvara margra og fyrrum stórkylfingi – Bing Crosbie.  Hér getið þið hlustað á Mele Kalikimaka til þess að koma ykkur í jóladundstuð!  Smellið hér: MELE KALIKIMAKA

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2011 | 10:00

Háskóli Ólafíu Þórunnar – Wake Forest – með eitt besta golfprógrammið

Steve Ellings yfirgolffréttapenni CBS Sports tók saman lista yfir háskóla, sem nokkrir kylfingar á PGA voru í, á sínum tíma og hvað þessir sömu kylfingar hafa síðan haft í tekjur á PGA Tour mótaröðinni, árið 2011. Síðan er skólunum raðað eftir því hvað fyrrum nemendur hans höfðu í tekjur á árinu. Listinn er aðallega fróðlegur fyrir þær sakir að sjá í hvaða skólum einhverjir helstu kylfingar PGA Tour í dag voru í, á sínum tíma, en e.t.v. varasamt að draga fram einhverja fylgni milli þess hversu góð golfprógrömminn eru í viðkomandi skólum s.s. Ellings virðist gera, m.a. vegna þess hversu mismargir nemendur telja fyrir hvern skóla. Í efsta sæti væri Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2011 | 09:00

GK: Skötuveisla í hádeginu í dag og kvöld, Þorláksmessu, í Golfskála Keilis!

Skötuveisla! Í dag, Þorláksmessu, verður skötuveisla haldin í golfskála Keilis í Hafnarfirði. Boðið verður upp á hádegismat frá kl. 12.00 og kvöldmat frá kl. 19.00. Á boðstólum er kæst skata fyrir byrjendur og lengra komna, saltfiskur, og allt annað sem þarf til að koma sér í jólaskap. Húsið er öllum opið á meðan borðrúm leyfir. Miðaverð er aðeins 2500 kr. Vinsamlegast bókið ykkur í matinn, í síma 565-3360 eða hjá pga@keilir.is

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2011 | 08:00

Bettye Danoff – einn stofnenda LPGA látin – 88 ára að aldri

Bettye Danoff, einn af 13 stofnendum LPGA Tour er látin. Hún varð 88 ára.  Danoff lést í gær í Texas. Bettye, sem var aðeins 1,57 á hæð og varla 45 kg hlaut viðurnefnið  „Mighty Mite“ og var fyrsta amman til þess að spila á túrnum. Hún fæddist 21. maí 1923.  Fyrir stofnun LPGA vann hún Babe Zaharias 1-0 í holukeppni sem áhugamaður á lokahring  Texas Women’s Open, árið 1947 og batt þar með endi á sigurgöngu Zaharias sem hafði unnið 17 mót í röð fram að því. Danoff  sigraði 4 sinnum í röð Dallas Women’s Golf Association Championship á árunum 1945-48, og kvennamót  Texas PGA árin 1945 og 1946 og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2011 | 07:00

GSS: Skötuveisla á Kaffi Krók í dag!

Á heimasíðu GSS er eftirfarandi fréttatilkynning: „Komdu og fáðu nasaþefinn af jólunum á Kaffi Krók Föstudaginn, 23. desember 2011, frá kl. 11:00 – 14:00 Þá er að renna í garð þessi yndislegi tími ársins þar sem heimilin fyllast af allskonar ilmi sem við tengjum öllu jöfnu við jólin. Til að afla tekna hefur GSS ákveðið í samstarfi við velunnara okkar Kaffi Krók, sem m.a. hefur stutt dyggilega við mótaröðina okkar undanfarin sumur, að blása til stórfenglegrar skötuveislu! Við höldum í fornar hefðir og bjóðum Skagfirðingum og gestum þeirra nær og fjær að hittast og borða saman þennan þjóðlega rétt, auk þess sem boðið verður upp á síld, saltfisk, skötustöppu, saltfiskstöppu, Lesa meira