Landsbankinn í Grindavík og GG undirrita samstarfssamning
Á heimasíðu Golfklúbbs Grindavíkur gaf að finna eftirfarandi frétt: „Landsbankinn í Grindavík og Golfklúbbur Grindavíkur hafa undirritað nýjan samstarfssamning til þriggja ára. Markmið samningsins er að styðja við golfíþróttina í bæjarfélaginu með sérstakri áherslu á barna-og unglingastarf klúbbsins. Undirritunin fór fram fimmtudaginn 22. desember. Samhliða undirritun samstarfssamnings Landsbankans og Golfklúbbs Grindavíkur færði Landsbankinn höfðinglegt fjárframlag í tilefni af 30 ára afmæli Golfklúbbs Grindavíkur í ár. Styrkurinn er sérstaklega hugsaður til uppbyggingar unglinga- og barnastarfs hjá klúbbnum. Landsbankinn hefur undanfarin ár verið einn helsti styrktar- og stuðningsaðili golfklúbbsins og stutt sérstaklega vel við bakið á uppbyggingarstarfi GG. Stjórn Golfklúbbs Grindavíkur færir þeim hugheilar þakkir fyrir ómetanlegt framlag sem án efa mun Lesa meira
Viðtalið: Svavar Geir Svavarsson, GO
Annað viðtalið í dag er við Svavar Geir Svavarsson, sem alla tíð hefir verið í GO. Þegar spilað á Urriðavelli í Oddinum eru miklar líkur á að rekast á Svavar Geir, sem er þar nær öllum stundum yfir sumartímann. Hér fer viðtalið við Svavar Geir: Fullt nafn: Svavar Geir Svavarsson. Klúbbur: GO. Hvar fæddistu? Ég fæddist í Reykjavík, 26. desember 1972, bjó fyrst að Tjarnarbóli í Vesturbænum. Hvar ertu alinn upp? Í Kópavogi frá 2 ára aldri. Hverjar eru fjölskylduaðstæður – er einhver í fjölskyldunni, sem spilar golf? Ég er í sambúð með Etnu Sigurðardóttir og við eigum Róbert Atla 12 ára og Arnar Daða, 2 ára. Það eru allir í fjölskyldunni í Lesa meira
Viðtalið: Magnús Lárusson, GKJ
Annað af 2 viðtölum á Golf 1 í dag er við einn högglengsta kylfing landsins: Magnús Lárusson, sem alla tíð hefir verið félagi í Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ. Hér fara spurningar Golf 1 og svör Magnúsar. Fullt nafn: Magnús Lárusson. Klúbbur: GKJ. Hvar og hvenær fæddistu? Ég er Mosfellingur í húð í og hár, þó spítalinn sé í Reykjavík, en þar fæddist ég 2. október 1985. Hvar ertu alinn upp? Á Leirutanganum í Mosfellsbænum. Hverjar eru fjölskylduaðstæður – er einhver í fjölskyldunni sem spilar golf? Ég er í sambúð með Hörpu Ómarsdótur, sem er að byrja að stíga sín fyrstu skref í golfinu – eini golfhringurinn hennar til þessa er spænskur, Lesa meira
Hjörleifur Bergsteinsson, GK, keppir á Gator American Junior í Flórída
Hjörleifur Bergsteinsson, GK, keppir á Gator American Junior mótinu í Ponte Vedra, Flórída, en mótið er hluti World Junior Golf Series. Spilaðir eru 3 hringir í mótinu og eru þátttakendur 75 frá 25 þjóðlöndum. Eftir tvo spilaða hringi er Hjörleifur á samtals 176 höggum (88 88) þ.e. +32 yfir pari. Sem stendur er Hjörleifur í 48. sæti en eftir er að spila lokahringinn á morgun. Í efsta sæti af piltunum er Adrian Meronk frá Póllandi og í 1. sæti hjá stúlkunum er Marina Stuetz frá Austurríki. Golf 1 óskar Hjörleifi góðs gengis á lokahringnum á morgun! Sjá má stöðuna í mótinu með því að smella HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Aðalsteinsdóttir – 22. desember 2011
Það er Kristín Aðalsteinsdóttir, GSE, sem er afmæliskylfingur dagsins, en hún er fædd 22. desember 1972. Kristín er tiltölulega nýbyrjuð í golfi og hefir frá upphafi verið í golftímum hjá Jóni Karlssyni. Hún tók þátt í nokkrum opnum mótum í sumar með góðum árangri m.a. kvennamóti GSE, sem fram fór 14. júlí s.l. Þrátt fyrir tiltölulega stuttan feril hefir Kristín spilað víða erlendis m.a. á Spáni nú í haust og í Golfclub Ozo í Lettlandi. Með fullu starfi hjá Hópbílum þjálfar Kristín 5. flokk stelpna í handbolta hjá ÍR. Kristín er gift Val Benedikt Jónatanssyni, ritstjóra og eiga þau 2 börn: Hrafnhildi Völu, 8 ára og Gísla Hrafn, 5 ára. Lesa meira
Pönnukaka í Curtis Cup liði Bandaríkjanna 2012
Bandaríska golfsambandið (United States Golf Association, skammst.: USGA) tilkynnti í gær um þá 5 kylfinga sem verða fulltrúar Bandaríkjanna þ.e. skipa lið Bandaríkjanna á Curtis Cup árið 2012. Curtis Cup fer fram daganna 8.-10. júní 2012 í The Nairn Golf Club í Skotlandi. Þeir kylfingar sem eru í bandaríska liðinu eru: 1. „Pönnukaka“ Brooke Pancake, 21 árs frá Chattanooga, Tennessee. 2. Amy Anderson, 19 ára, frá Oxbow, North Dakota. 3. Lindy Duncan, 20 ára frá Fort Lauderdale í Flórída. 4. Austin Ernst, 19 ára frá Seneca, Suður-Karólínu. 5. Tiffany Lua, 20 ára, frá Rowland Heights í Kaliforníu. Tilkynnt verður um val á 3 öðrum kylfingum í næsta mánuði, janúar 2012 Lesa meira
Ernie Els og tarantúlu-köngulóin
Steve Ellings yfirpenni golffrétta á CBS Sports skrifaði stórskemmtilega grein, sem birtist á CBS Sports í fyrradag, þar sem hann fer yfir það helsta sem gerðist í golfheiminum árið 2011. Meðal þess sem hann rifjar upp er það, sem hann telur meðal þess fyndnasta sem gerðist á golfvellinum 2011. Atvikið sem um ræðir átti sér stað á PGA mótaröðinni á lokahring Frys.com Open þegar tarantúlu-könguló labbaði sig yfir að bolta Ernie Els. Ernie sem að sögn var ekkert nema rólegheitin reyndi að stjaka henni mjúklega frá golfboltanum, með 3-trénu sínu þannig að hann gæti haldið áfram að spila. Spilafélagar hans Briny Baird og Paul Casey stóðu þar rétt hjá og Lesa meira
Nýju i20 PING járnin 2012 væntanleg – Lee Westwood lak mynd af 8-járni
Nýju járna-kylfurnar frá PING, þ.e. i20 PING 2012 hafa ekki enn verið kynntar formlega af hálfu fyrirtækisins. Nr. 2 í heiminum, Lee Westwood, sem er með auglýsinga- og styrktarsamning við PING gat þó ekki setið á sér og „lak“ mynd af einni af kylfunum nýju frá PING í golffjölmiðla. Myndin er af 8-járni. Kylfurnar, sem hafa verið prófaðar allt s.l. ár hafa vakið hrifningu hjá flestum, sem þær hafa prófað. Auk þess þykir hönnunin falleg. Þegar er hafin samkeppni um bestu auglýsinguna fyrir kylfuna og verður ein látin fljóta með hér: „Perfect vision for your eye is 20. The perfect club for your game is the i20″ (orðaleikur á ensku Lesa meira
„Golfklúbbur Ólafsfjarðar“ eftir Rósu Jónsdóttur, formann GÓ
Í góðum og ítarlegum pistli í Hellunni fer Rósa Jónsdóttir, formaður Golfklúbbs Ólafsfjarðar yfir starfsemi klúbbsins á árinu, sem er að líða 2011. Þar segir: „Sumarið 2011 var viðburðarríkt hjá Golfklúbbi Ólafsfjarðar. Félagsmönnum hefur fjölgað og starfsemin aukist jafnt og þétt. Vertíð GÓ hófst formlega með fyrsta golfmóti sumarsins 4. júní en veturinn hafði þó verið mjög snjóléttur. Völlur kom vel undan vetri og var í mjög góðu ástandi í sumar. Veðráttan í sumar var okkur ekki hagstæð, ríkjandi norðanáttir og kuldi í mest allt sumar. Vallarstarfsmaður var Heiðar Gunnólfsson og sinnti hann starfi sínu af alúð og dugnaði. Aðrir komu og unnu í styttri tíma. Golfklúbburinn hélt byrjendanámskeið fyrir Lesa meira
Pabbi Lexi verður áfram á pokanum hjá henni
Nú nýlega birtist skemmtilegt viðtal við Lexi í T Magazine sem lesa má HÉR: Þar kom m.a. fram að Lexi ætli að halda áfram að hafa pabba sinn á pokanum hjá sér, en hér fer lítill hluti af viðtalinu í lauslegri þýðingu: Sp: Sumum táningum myndi þykja erfitt að þurfa alltaf að fá leiðsögn frá pabba á vellinum. Pabbi þinn segir alltaf að hann sé að hugsa um að setja einhvern annan á pokann hjá þér. Verður hann kaddýinn þinn á næsta ári? Lexi: Líklega. Okkur hefir komið mun betur saman á golfvellinum að undanförnu. Ég get sagt það. Við rifumst mikið. Nú er allt miklu rólegra. Sp: Bróðir þinn Lesa meira








