Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 26. 2011 | 14:00

Viðtalið: Ágústa Sveinsdóttir, GK

Viðtalið í dag er við Ágústu Sveinsdóttur, GK, sem í sumar var ræsir á Hvaleyrinni. Hún er ein af þessum sterku kvenkylfingum í Golfklúbbnum Keili. Hér fer viðtalið: Fullt nafn:   Ágústa Sveinsdóttir. Klúbbur: GK. Hvar og hvenær fæddistu?    Ég fæddist í Hafnarfirði, nánar tiltekið Sólvangi þann 8. desember 1954. Hvar ertu alin upp?  Ég er alin upp í Hafnarfirði – ég átti heima í Rvík í 3 ár, annars hef ég alltaf verið í Hafnarfirði. Hverjar eru fjölskylduaðstæður – er einhver í fjölskyldunni í golfi?  Ég er gift og á 2 dætur og 5 barnabörn. Tengdasynir mínir hafa verið í golf, en dætur mínar hafa ekki komið sér í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 26. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingar: jóladag og 2. í jólum 2011

Afmæliskylfingar dagsins í dag, 2. í jólum, eru Svavar Geir Svavarsson, GO og Arnar Snær Hákonarson, GR. Svavar Geir fæddist í Reykjavík, 26. desember 1972 og er því 39 ára í dag.  Hann er með 9,5 í forgjöf og er í golfklúbbnum Oddi. Sjá má nýlegt viðtal afmæliskylfingsins okkar hér á Golf 1 með því að smella HÉR:  Hinn  afmæliskylfingur dagsins er Arnar Snær Hákonarson, GR. Arnar Snær fæddist 26. desember 1989 og er því 22 ára í dag. Arnar Snær spilaði á Eimskipsmótaröðinni í sumar og náði sérlega góðum árangri á Egils Gull mótinu í Vestmannaeyjum, þar sem hann átti m.a. 2. hring upp á 66 högg. Síðan varð Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 26. 2011 | 09:00

John Daly efni í „föður ársins“

„Wild thing“ viðurnefni Daly fram eða tilbaka, John Daly er kandídat í að hljóta viðurkenninguna „faðir ársins.“ Alveg eins og John Daly hefir alltaf verið meira en bara miðlungs kylfingur þá má upplýsa að hann er miklu meira en bara meðal einstætt foreldri. Þetta er kannski ekki alveg í samræmi við ímynd hans sem „Wild Thing“, en sannleikurinn er sá, að þegar hann er ekki einmitt að storma af golfvellinum, þá er hann í fullu starfi að kenna 8 ára syni sínum að spila golf. Og honum gengur bara býsna vel með það. Það er ekki svo langt síðan að hann eyddi klukkutímunum fyrir og eftir golfleiki í að tala Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 26. 2011 | 08:47

Ólafur Björn Loftsson meðal 10 efstu í kjöri um titilinn „Íþróttamaður ársins 2011”

Ólafur Björn Loftsson, NK, er meðal 10 íþróttamanna, sem efstir urðu í kjöri Samtaka Íþróttafréttamanna um titilinn „Íþróttamaður ársins,” að þessu sinni. Kylfingur hefir aldrei hlotið þennan heiðurstitil þau 55 ár sem viðurkenningin hefir verið veitt.    Sýnt verður beint frá verðlaunaafhendingunni í sjónvarpi, þann 5. janúar 2012 n.k. og vonast kylfingar landsins til þess að íþróttafréttamenn brjóti blað í sögu verðlaunaveitingarinnar að þessu sinni! Ólafur Björn varð í sumar fyrsti íslenski kylfingurinn til þess að keppa á sterkustu golfmótaröð heims PGA mótaröðinni, þ.e. á Wyndham Championship og var aðeins 1 höggi frá því að keppa alla 4 dagana í þessu sterka móti, sem vannst af næsttekjuhæsta kylfingi PGA Tour Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 26. 2011 | 07:45

Hjörleifur Bergsteinsson, GK, lauk keppni á Gator American Junior

Hjörleifur Bergsteinsson, GK, lauk keppni á Gator American Junior mótinu í Ponte Vedra, Flórída á Þorláksmessu, en mótið er hluti World Junior Golf Series. Spilaðir voru 3 hringir í mótinu og voru þátttakendur 75 frá 25 þjóðlöndum.  Eftir tvo spilaða hringi var Hjörleifur á samtals 176 höggum (88 88) þ.e. +32 yfir pari og var í síðasta sæti, þ.e. 48. sætinu  af piltunum, sem þátt tóku. Hjörleifur spilaði langt undir getu fyrri 2 dagana en spilaði síðasta hringinn á 79 höggum, sem er bæting um 9 högg og frábær árangur, sem hann getur verið stoltur yfir.  Flestir kylfingar vita að þegar illa gengur er erfitt að halda áfram vegna vonbrigða Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2011 | 18:00

Gleðileg Jól 2011!

Nú er sá tími hér á norðlægari slóðum sem sumum kylfingum finnst leiðinlegur. Birtuskilyrðin slæm, norðan byljir, snjór, haglél, slydda, snjófjúk – ekkert hægt að spila golf. Allir golfvellir á kafi í hvítu og veðrið líka þannig að ekki einu sinni er hægt að spila vetrargolf! En þá koma jólin, hátíð ljóss og friðar, vonar og nýs lífs með tilheyrandi jólahlaðborðum og veislum, sem sumir golfklúbbar halda félögum sínum. Þó jólin í ár séu hálfgerð „vinnuveitendajól” þá fá flestir þó frí helgina og geta gert sér og sínum dagamun. Það er mikilvægt að vera þakklátur, þakklátur fyrir allt sem okkur er gefið, samvistir við þá sem okkur þykir vænt um, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2011 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins – 24. desember 2011

Afmæliskylfingur dagsins verður með aðeins öðru sniði í dag en endranær- þar sem enginn einn kylfingur er tekinn úr og kynntur, þar sem 2011 ára afmæli Frelsarans og hátíðin sem við höldum vegna fæðingar hans yfirgnæfir allt í dag. Golf 1 óskar öllum afmæliskylfingunum innilega til hamingju með afmælið í dag, en meðal þeirra kylfinga sem eiga afmæli í dag eru:   John Ball, f. 24. desember 1861;  Robert J. Shaw, f. 24. desember 1944; Friðrikka Auðunsdóttir Guðrún Emilía Konráðsdóttir Sólveig Hreiðarsdóttir Steinunn Kristinsdóttir og…. Stekkjastaur jólasveinn Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is  

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2011 | 12:00

Viðtalið: Signý Arnórsdóttir, GK – stigameistari GSÍ 2011

Viðtalið í dag, aðfangadag, er við stigameistara GSÍ 2011 og afrekskylfing GK.  Signýju Arnórsdóttur, Signý spilaði í bandaríska háskólagolfinu á síðasta ári en tekur sér hvíld frá því, þennan vetur. Framtíðina í golfinu segir hún óráðna. Hér fer viðtalið: Fullt nafn: Signý Arnórsdóttir. Klúbbur: GK. Hvar og hvenær fæddistu?    Í Reykjavík, 9. september 1990. Hvar ertu alin upp?  Ég átti heima í 5 ár í Danmörku og síðan hérna í Hafnarfirðinum. Ég er Hafnfirðingur. Hverjar eru fjölskylduaðstæður – er einhver í fjölskyldunni, sem spilar golf?  Ég bý heima hjá pabba og mömmu og á tvo bræður. Sá eldri er aðeins að fikta – Hann æfir ekki – þetta er bara áhugamál Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2011 | 10:15

Jólagjöf/(sveifluráð) frá nýliða ársins á PGA – Keegan Bradley

Keegan Bradley nýliði ársins á PGA 2011 og sigurvegari á einu risamóti golfsins í ár, PGA Champion árið 2011, gefur okkur jólagjöf í formi sveifluráðs.  Það (ráðið) birtist ásamt öðrum í janúarhefti Golf Digest 2012, en Keegan er einmitt á forsiðu blaðsins.    Þetta er sem hér fylgir er aðeins lítill hluti stærri greinar um járnaspil, þar sem Keegan sýnir okkur ráð sem hann lærði af kennara sínum Jim McLean. Þessi æfing hjálpar sveifluferli hans. Þetta er nokkuð sem hægt er að æfa án bolta, niðrí kjallara eða úti í bílskúr eða hvar sem er innandyra þar sem er nægilegt pláss, (og helst spegill) í allan vetur.  Gefum Keegan orðið:  Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2011 | 09:45

Sögulegt: Caroline Hedwall bæði nýliði og nú kylfingur ársins á LET

Fyrrum liðsmaður Oklahoma State háskólans og félagi Eyglóar Myrru Óskarsdóttur hefir verið útnefnd kylfingur ársins á Evrópumótaröð kvenna, Ladies European Tour (skammst. LET) árið 2011. Caroline er sú fyrsta í sögu LET til þess að hljóta báða titlana: nýliði ársins og kylfingur ársins á sama keppnistímabili. Caroline, sem kemur frá  Barsebäck í Svíþjóð spilaði í 20 mótum Evrópuraðar kvenna í ár.  Hún var 3. á peningalista LET á eftir Ai Miyazato (sem spilaði bara í 2 mótum á túrnum) og hinnar frábæru Melissu Reid frá Englandi (sem vann 2 sinnum á túrnum 2011). Eftir að sigra Q-school með 9 högga mun á næstu tók Caroline þátt í fyrsta mótinu sínu Lesa meira