Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2012 | 09:45
WGC: Adam Scott og Louis Oosthuizen leiða eftir 1. dag í Guangdong

Nú í nótt hófst á einum af 12 Olazábal hönnuðum golfvöllum Mission Hillis golfklúbbsins í Guangdong í Kína,WGC HSBC Champions mótið í golfi. Eftir 1. dag eru þeir Adam Scott og Louis Oosthuizen efstir eftir að hafa komið í hús á 7 undir pari, 65 höggum. Scott fékk örn, 6 fugla, 10 pör og 1 skolla en Oosthuizen átti glæsilegan hring, skorkortið hans var skollafrítt með 7 fugla og 11 pör! Aðeins 1 höggi á eftir eru 4 frábærir kylfingar, þ.á.m. Peter Hanson sem ætlar að gera Rory róðurinn erfiðan með að hreppa 1. sætið á peningalista Evrópumótaraðrainnar. Hinir sem deila 3. sætinu með Hanson, eru Phil Mickelson, Bubba Watson Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2012 | 19:15
Bradley íhugar málaferli til að berjast gegn banni á bumbupútterum

Keegan Bradley er tilbúinn að berjast fyrir bumbupútteranum sínum (ens.: Belly Putter). Búist er við að bandaríska golfsambandið USGA og R&A í St. Andrews muni á næstu mánuðum banna bumbupútterana, sem njóta sívaxandi vinsælda. Keegan Bradley, sigurvegari PGA Championship risamótsins 2011 sagðist að hann myndi hugsanlega fara í mál yrðu þeir bannaðir. Bradley, sem var fyrsti kylfingurinn til þess að vinna risamótstitil með bumbupútteranum, segir að hann ætli að berjast gegn banninu. „Ég ætla að gera það sem til þarf til þess að verja sjálfan mig og aðra kylfinga á Túrnum,“ sagði Bradley. „Ég lít á þetta (sem málsókn) fyrir okkur alla. Ég lít ekki svo mikið á þetta fyrir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2012 | 18:45
NGA: Þórður Rafn komst í gegnum niðurskurð á Stoneybrook!!!

Þórður Rafn Gissurarson, GR, komst í dag í gegnum niðurskurð á 2. móti NGA Pro Tour – Bridgestone Winter Series, en mótið fer fram á golfvelli Stoneybrook golfklúbbsins í Flórída. Mótið stendur dagana 30. október – 1. nóvember og þátttakendur eru 57. Ljóst er því að Þórður Rafn er einn af 19 sem spila 3. hringinn á morgun til fjár og sá fyrsti sem það gerir af Íslendingunum 3 úti!!! Þórður Rafn er samtals búinn að spila á 5 yfir pari, 149 höggum (76 73) og varð í 19. sætinu og var síðastur til að komast í gegnum niðurskurð. Alexander Aron Gylfason, GR, var á samtals 15 yfir pari 159 höggum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2012 | 18:30
Peter Hanson keppir við Rory um 1. sætið á peningalista Evrópumótaraðarinnar

Það fer að líða að lokum Evrópumótaraðarinnar og eitt af mótunum þar sem peningaverðlaun eru hvað hæst hefst á morgun þ.e. HSBC Champions. S.s. Golf 1 greindi frá í morgun mun Rory McIlroy ekki taka þátt við litla hrifningu styrktaraðila mótsins – Peter Hanson hins vegar tekur þátt. Ef Hanson lendir ofarlega á stigatöflunni gæti hann náð að minnka bilið milli sín og Rory allverulega en einungis munar € 812.572 milli þeirra og verðlaun í Kína há. Nr. 1 á heimslistanum ætlar að reyna að feta í fótspor Luke Donald og verða efstur á peningalistum beggja vegna Atlantsála, bæði á PGA Tour og Evrópumótaröðinni. Spurning hvort honum takist það? Peter Hanson Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2012 | 17:50
Afmæliskylfingur dagsins: Hlynur Geir Hjartarson – 31. október 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Hlynur Geir Hjartarson. Hlynur er fæddur 31. október 1976 og er því 36 ára í dag. Hann er framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss (GOS). Árið hefir verið nokkuð viðburðaríkt hjá Hlyn Geir, en fyrir utan það að vera fararstjóri í golfferðum Heimsferða útskrifaðist hann í ár sem PGA golfkennari frá Golfkennaraskóla PGA. Hlynur Geir er klúbbmeistari Golfklúbbs Selfoss 2012 og stigameistari Eimskipsmótaraðarinnar. Hann setti auk þess glæsilegt vallarmet á Svarfhólsvelli í ár, 62 högg!!! Hlynur Geir kvæntist á árinu konu sinni Gunnhildi Katrínu Hjaltadóttur en þau eiga 3 börn. Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2012 | 17:25
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór lauk leik í 9. sæti á SFA Crown Classic

Andri Þór Björnsson, GR og golflið Nicholls State, Geaux Colonels tóku dagana 29.-30. október þátt í SFA Crown Classic mótinu, sem fram fór í Lufkin, Texas. Þátttakendur voru 44 frá 8 háskólum. Andri Þór lauk keppni í 9. sæti, sem hann deildi með öðrum; var á samtals 230 höggum (78 73 79). Hann var á besta skori Geaux Colonels golfliðs Nicholls State. Glæsilegur topp-10 árangur hjá Andra Þór!!! Golflið Nicholls State lauk keppni í 5. sætinu í liðakeppninni. Næsta keppni Andra Þórs og Geaux Colonels er Red Wolf Fall Beach Classic, þann 5. nóvember n.k. í Penninsula golfklúbbnum í Gulf Shores, Alabama. Til þess að sjá úrslitin í SFA Crown Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2012 | 14:55
Nýju stúlkurnar á LET 2012 (27. grein af 34): Jessica Yadloczky

Tvær stúlkur deildu 7. sætinu í Q-school LET á La Manga fyrr á árinu; það eru þær Jessica Yadloczky frá Bandaríkjunum og Celine Palomar, frá Frakklandi. Byrjað verður á að kynna Jessicu í dag. Jessica Yadloczky fæddist 4. október 1988 í Casselberry, Flórída. Jessica byrjaði að spila golf 8 ára og hún segir foreldra sína hafi haft mest áhrif á að hún byrjaði í golfi. Hún var í refsiréttarfræði (ens. Criminology) í University of Florida og átti mjög farsælan feril í bandaríska háskólagolfinu. Jessica var hluti af East Canon Cup Team, árið 2005. Hún varð í 2. sæti í einstaklingskeppninni í the Florida High School State Championships (2005, 2006). Árið 2006 varð Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2012 | 14:15
GÓ: „Góðri vertíð Golfklúbbs Ólafsfjarðar er að ljúka“ eftir Rósu Jónsdóttur, formann GÓ

Hér á eftir fer grein Rósu Jónsdóttur, formanns Golfklúbbs Ólafsfjarðar um starfsemi GÓ sumarið 2012: Veðurfar var almennt gott í sumar, sem gaf kylfingum gott tækifæri til að stunda íþróttina. September var þó undantekning, með mikilli rigningu og vindi. Ferðamönnum á Skeggjabrekkuvöll hefur farið fjölgandi sl. tvö ár eða frá því að Héðinsfjarðargöng opnuðu. Sumarið hófst með því að boðið var upp á byrjendanámskeið og var þátttaka með ágætum. Boðið var upp á æfingar hjá börnum og unglingum þrisvar í viku og stóðu þr yfir frá nóvember (inniæfingar yfir vetrarmánuðina) og út september. Kennari var Heiðar Davíð Bragason PGA og leiðbeinandinn Sigurbjörn Þorgeirsson. Ýmislegt hefur verið í boði til þess Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2012 | 10:45
Sérstaklega á Hrekkjarvöku: Hræðilegustu golfholur heims – myndasería

Í dag er Hrekkjarvaka (ens. Halloween) og af því tilefni hafa þeir á Golf Magic tekið saman í máli og myndum lista yfir 7 hræðilegustu golfholur heims. Til þess að sjá lista Golf Magic yfir þær golfholur sem kylfingar hræðast mest SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2012 | 10:15
Styrktaraðilar gagnrýna fjarveru Tiger og Rory í HSBC heimsmótinu

WGC-HSBC Champions mótið hefst á Mission Hills golfvellinum í Shenzhen, Kína á morgun. Helstu styrktaraðilar mótsins hafa gagnrýnt fjarveru Tiger Woods og Rory McIlroy. Nr. 1 og 2 á heimslistanum ákváðu að sleppa því að spila í Mission Hills Golf Club í þessari viku þó þeir hafi spilað sýningarhring í Zhengzhou s.l. mánudag. McIlroy fór í kjölfarið til Búlgaríu til að fylgjast með kærestu sinni Caroline Wozniacki keppa í tennis, meðan Woods er í Singapore að sinna viðskiptum. Styrktaraðilar mótsins (HSBC) eru langt frá því ánægðir að tvær aðalstjörnurnar spili ekki í mótinu, sbr.: „Að einu leyti erum við ánægðir vegna þess að við erum með sterkan leikmannahóp sem þátt tekur en Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

