Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 08:00
Gonzalo Fdez-Castaño mun ekki verja titil sinn á Barclays Singapore Open vegna ágreinings við skipuleggjendur mótsins

Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castaño neitar að hefja titilvörn sína á Barclays Singapore Open í næstu viku. Hann ber fyrir sig vonbrigði með skipuleggjendur mótsins, sem neita að borga fyrir flugfargjöld hans og gistingu meðan á titilvörninni stendur. „Ég náði bara engu samkomulagi við skipuleggjendur og þegar ég bað um frí flugfargjöld og gistingu ýttu þeir bara málinu á undan sér og drógu það að svara og héldu bara áfram að draga málið á langinn, þannig að ég varð að aðlaga dagskrá mína að þessu og mun ekki spila í Singapore í næstu viku,“ sagði Gonzo áður en hann hóf 2. hring á HSBC Champions í Shenzhen. „Það kom bara að þeim punkti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 07:00
LPGA: Jiyai Shin og Ayako Uehara leiða eftir 1. dag Mizuno Classic

Það er japanska heimakonan Ayako Uehara og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Jiyai Shin, sem leiða á Mizuno Classic mótinu, sem hófst á golfvelli Kinetsu Kashikojima golfklúbbsins í Shima-Shi í Mie, Japan í nótt. Þær komu báðar í hús á 4 undir pari, 68 höggum. Það er japanska stúlkan Momoko Ueda sem á titil að verja s.s. Golf 1 greindi frá í gær, en henni hefir gengið fremur illa á LPGA í ár. Hún er engu að síður í 3. sæti í mótinu eftir 1. dag, en því sæti deilir hún með 5 kylfingum sem ekki eru af verri endanum: Beatriz Recari frá Spáni, Angelu Stanford frá Bandaríkjunum, NY Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2012 | 21:00
ALPG: Hver er kyfingurinn Marousa Polias?

Marousa Polias er fædd 18. mars 1983 og er því 29 ára. Árið 2004 vann hún Australian Ladies Amateur Championship. Í lok sama árs gerðist hún atvinnumaður og hefir síðan þá einkum spilað á ALPG þ.e.a.s. áströlsku LPGA. Hún er smávaxin aðeins 1,55 metra á hæð …. en frábær kylfingur. Hún var í kringum 2008 og 2009 á öllum helstu listum yfir kynþokkafyllstu kvenkylfinga heims. Hún hlaut takmarkaðan spilarétt á LET 2009. Árið 2010 og 2011 spilaði hún aðeins á 6 mótum á ALPG. Marousa vakti einkum athygli eftir að hún birtist sem „ungfrú april“ í frægu dagatali sem kynþokkafullir ástralskir kylfingar gáfu út 2009 og var mjög gagnrýnt á sýnum tíma. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2012 | 19:30
Leikmenn West Ham United höfðu betur í „West Ham Ryder Cup Golf Day“ á móti aðstoðarþjálfaranum og liði hans!

Margir frábærir kylfingar hérlendis eru aðdáendur enska boltans og nokkrir þeirra halda með West Ham. Hér kemur frétt fyrir þá. Neil McDonald, aðstoðarþjálfari vann orustuna en ekki stríðið á West Ham United Ryder Cup Golf Day í gær. Þetta er annað árið í röð sem þessi árlegi viðburður fer fram þar sem aðstoðarþjálfari West Ham, Neil McDonald og lið hans spila gegn 8 leikmönnum West Ham. Í ár var spilað á frábærum golfvelli London Golf Club í Kent, sem aftur er í uppáhaldi hjá þeim íslensku kylfingum, sem hann hafa spilað. Miðvallarleikmaðurinn Gary O´Neil er félagi í þessum æðislega golfklúbbi. Neil McDonald og Big Sam voru paraðir gegn O’Neil og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2012 | 18:25
NGA: Þórður Rafn lauk leik í 24. sæti í Stoneybrook

Þórður Rafn Gissurarson, GR, lauk í dag leik á 2. móti NGA Pro Tour – Bridgestone Winter Series, en mótið fór fram á golfvelli Stoneybrook golfklúbbsins í Flórída. Mótið stóð dagana 30. október – 1. nóvember og þátttakendur voru upphaflega 57, en aðeins 19 efstu og þeir sem jafnir voru í 19. sætinu fengu að spila lokahringinn í dag til fjár. Þórður Rafn var einn þeirra sem komst í gegnum niðurskurð og var fyrstur Íslendinganna, sem spila í haust á mótaröðinni til að gera svo. Hann lék á samtals 11 yfir pari, 227 höggum (76 73 78) og varð í neðsta sætinu þ.e. deildi 24. sæti með Yi-Hsio-Luo frá Pompano í Flórída. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2012 | 18:00
LPGA: Momoko Ueda vonast til að verja titilinn á Mizuno Classic

Momoko Ueda er að vonast til að snúa við keppnistímabili vonbrigða með titilvörn sinni á móti helgarinnar á LPGA, Mizuno Classic. Momoko sigraði Shanshan Feng frá Kína í þriggja holu bráðabana á síðasta ári og bætti við öðrum titli sínum frá 2007. Japanski kylfingurinn Momoko, sem er 26 ára, hefir átt í erfiðleikum á þessu keppnistímabili. Besti árangur hennar í ár er á LPGA LOTTE Championship og Evian Masters, þar sem hún varð T-12. „Ég veit að ég byrjaði tímabilið ekki svo vel, og svo kom miðbikið,“ sagði Momoko. „Ég hef undirbúið mig mikið fyrir þetta mót og vona til þess að gera það besta úr því.“ Heimild: CBSS
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2012 | 17:45
Tom Watson segir að notkun á „kústskaftspútterum“ sé ekki golf

Tom Watson telur að notkun á bumbupútterum, sem hann nefnir í háðungarskyni „kústskaftspúttera“ sé ekki golf og þeir veiti kylfingum ákveðið hagræði. Þeir sem endurskoða golfreglurnar (USGA og R&A) eru taldir munu banna bumbupúttera í árslok, þó bannið komi ekki til framkvæmda að fullu fyrr en 2016. Meðan að kústskaftspútterar hafa verið til staðar í langan tíma þá hefir notkun þeirra aukist á öllum helstu golfmótaröðum heims nú undanfarið, þ.á.m. meðal margra leiðandi kylfinga, t.d. Adam Scott, sem tókst að skipta yfir í þá löngu með góðum árangri. Þrír af síðustu 5 risamótameisturum hafa notað langa púttera og þeim fer fjölgandi sem krefjast þess að kústskafta eða bumbupúttarar verði bannaðir. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2012 | 13:00
Adam Scott sér enga ástæðu til að banna bumbupútterana

Adam Scott, sem nú leiðir á WGC HSBC mótinu í Mission Hills ásamt Louis Oosthuizen, eftir 1. dag mótsins, er síðasti kylfingurinn, sem blandað hefir sér í bumbupútteraumræðuna. Hann sér enga ástæðu til þess að banna bumbupúttera (ens. Belly putters) líka nefndir langir pútterar eða magapútterar hér á landi. „Hver eru rök þeirra (USGA og R&A) fyrir að vilja líta á þá (pútterana) núna? Enginn hefir fært mér nein góð rök fyrir því“ sagði Scott. „Ég myndi vera undrandi ef þeir yrðu algerlega bannaðir; en það verður bara að taka á því ef það gerist.“ „Fyrir mig persónulega þá finnst mér það ekki mikið mál eins og nokkrum öðrum. Ég hef spilað Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2012 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Gary Player – 1. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er ein af golfgoðsögnunum 3, Gary Player. Hinar eru auðvitað Arnold Palmer og Jack Nicklaus, sem ekki eiga afmæli í dag! Gary Player fæddist 1. nóvember 1935 í Jóhannesarborg í Suður-Afríku og er því 77 ára í dag. Gary sigraði 9 sinnum í risamótum á ferli sínum sem atvinnumaður í golfi: Masters: 1961, 1974, 1978 Opna bandaríska: 1965 Opna breska: 1959, 1968, 1974 PGA Championship: 1962, 1972 Gary Player eftir sigur á Opna breska – einu af 9 risamótssigrum sinum. Þessir 9 sigrar ásamt 9 sigrum hans á risamótum Champions Tour gera það að verkum að hann er álitinn einn af yfirburðakylfingum í sögu golfsins. Gary Player var Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2012 | 10:00
Tinna varð í 4. sæti á Krít

Tinna Jóhannsdóttir, GK, keppti s.l. sunnudag 28. október í Crete Ladies Open, sem er mót á LET Access Series. Spilað var í Hersonissos í Golfklúbbi Krítar í Grikklandi upp á € 25.000 í verðlaunafé. Upphaflega átti mótið að vera þriggja daga þ.e. frá 28.-30. október en vegna illviðris voru síðari 2 hringirnir felldir niður og úrslit 1. dags látin standa. Tinna náði þeim frábæra árangri að veða í 4. sæti ásamt 8 öðrum. Hún lék á parinu fékk fugl og skolla bæði á fyrri og seinni 9 og síðan 14 pör. Glæsileg spilamennska! Fyrir 4. sætið hlaut Tinna € 1058,78 í verðlaunafé (u.þ.b. 175.000,- íslenskra krónur). Í 1. sæti varð Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

