Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 22:15

Bandaríska háskólagolfið: Sigurður Gunnar lauk leik í 17. sæti og Hrafn í 27. sæti í Mississippi

Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og Sigurður Gunnar Björgvinsson, GK,  sem báðir spila með  golfliði Faulkner háskóla luku leik á MGCCC Holiday Inn Fall Invitational í Gulfport, Mississippi í dag. Mótið var tveggja daga frá 29.-30. október og voru þátttakendur 57 frá 11 háskólum. Sigurður Gunnar lék á samtals 11 yfir pari, 155 höggum (85 70) og hafnaði í 17. sæti Hrafn lék samtals á 14 yfir pari (84 74) og hafnaði í 27. sæti. Golflið Faulkner háskólans sem þeir Hrafn og Sigurður Gunnar spila fyrir varð í 2. sæti í liðakeppninni – Sigurður Gunnar var á 4. besta skori í liði Faulkner og taldi skor hans en skor Hrafns Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 19:50

Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State luku leik í 10. sæti á Alamo Inv.

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL  og golflið Texas State luku í dag keppni á the Alamo Invitational á Briggs Ranch golfvellinum í San Antonio, Texas. Þetta var þriggja daga mót, sem stóð dagana 28.-30. október og þátttakendur voru 78 frá 15 háskólum. Valdís Þóra  spilaði á samtals 10 yfir pari, 226 höggum (73 80 73). Hún bætti sig um heil 7 högg frá deginum áður og fór úr 49. sætinu í 45. sætið í einstaklingskeppninni. Valdís Þóra var á 3. besta skori liðs síns og taldi það því. Texas State lið Valdísar Þóru lauk keppni í 1o. sætinu í liðakeppninni. Næsta mót Valdísar Þóru er á vorönn þann 4. febrúar 2013 þ.e. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 19:00

NGA: Þórður Rafn lék á 74 – Alexander á 80 höggum á 1. degi á Stoneybrook

Þórður Rafn Gissurarson, GR, lék best af Íslendingunum tveimur, sem þátt taka á 2. móti   NGA Pro Tour – Bridgestone Winter Series, sem hófst í dag á golfvelli Stoneybrook golfklúbbsins í Flórída. Mótið stendur dagana 30. október – 1. nóvember og þátttakendur eru 57. Þórður Rafn lék 1. hring á 4 yfir pari 76 höggum og deilir sem stendur 22. sæti ásamt 8 öðrum kylfingum. Aðeins munar 1 höggi að Þórður Rafn komist í gegnum niðurskurð en niðurskurðarlínan er sem stendur miðuð við +3 yfir pari. Alexander Aron Gylfason, GR,  var á 8 yfir pari, 80 höggum og er í 46. sæti ásamt 2 öðrum kylfingum. Golf 1 óskar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 18:30

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór í 9. sæti eftir 1. dag SFA Crown Classic

Andri Þór Björnsson, GR og golflið Nicholls State, Geaux Colonels taka dagana 29.-30. október þátt í SFA Crown Classic mótinu, sem fram fer í Lufkin, Texas. Þátttakendur eru 44 frá 8 háskólum. Andri Þór er í 9. sæti eftir fyrri daginn, en hann kom í hús á samtals 151 höggum (78 73). Hann er á besta skori Nicholls State. Á heimasíðu Nicholls State voru menn að vonum ánægðir með frammistöðu Andra Þórs (sbr. að talað er um „quality score“ hans s.s. sjá má með því að SMELLA HÉR:  Golf 1 óskar Andra Þór góðs gengis í dag en þá er leikinn lokahringur mótsins! Til þess að sjá stöðuna eftir fyrri Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Mayumi Hirase – 30. október 2012

Afmæliskylfingur dagsins er  Mayumi Hirase frá Japan (jap: 平瀬真由美). Hún fæddist í dag fyrir 43 árum, þ.e. 30. október 1969, í Kumamoto, í Japan.  Mayumi er atvinnumaður í golfi, sem m.a. hefir sigrað 18 sinnum á japanska LPGA. Sigra sína í Japan vann hún á árunum 1989-2000. Mayumi hefir jafnframt sigrað 1 sinni á bandaríska LPGA; það var 1996 á Toray Japan Queens Cup. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Samskipti Ehf Guðjón Smári Guðmundsson (51 árs) Sesselja Björnsdóttir (55 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 14:00

Hvirfilvindur olli skemmdum á Yalong Bay golfvellinum í Kína

Það eru fleiri hvirfilvindar, sem eru að valda usla en hvirfilvindurinn Sandy í Bandaríkjunum. Sterkur hvirfilvindur sem að meðaltali náði 130 km hraða á klst. hvirfilvindaðist yfir Yalong Bay golfklúbbinn í Sanya, Kína þar sem Sanya Ladies Open á að hefjast á föstudaginn. Verðlaunapotturinn er með þeim veglegri í kvennagolfinu eða € 250.000,- Hvirfilvindurinn olli miklum skemmdum á trjám, en 150 tré á vellinum rifnuðu upp með rótum og eins skemmdust allskyns merki og merkingar. Völlurinn er bara með allt annan karakter. Tvö vagnhlöss af kókoshnetum voru fjarlægð og kókoshnetupálmatrjám var komið í burtu af vellinum. Unnið var myrkranna á milli að hreingerningarstörfum undir handleiðslu Shane Templeton sem hefir yfirstjórnina. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 13:20

Luke Donald mun ekki verja titil sinn á Children´s Miracle Network Hospitals Classic – ætlar að vera heima hjá veiku barni sínu

Luke Donald, sem vann á síðasta ári Children’s Miracle Network Hospitals Classic og náði þar með efsta sætinu á peningalista PGA Tour, mun ekki spila á mótinu í ár vegna aðgerðar sem önnur dætra hans er að fara í. Í fréttatilkynningu frá honum sagði: „Mér þykir leitt að ég er ófær um að verja titil minn á Children’s Miracle Network Hospitals Classic á þessu ári, þar sem það mót var mikilvægur hápunktur fyrir mig árið 2011. Karríera mín sem kylfings gerir miklar kröfur til mín skv. dagskrá og ég er oft tilneyddur til að missa af dýrmætum tíma með fjölskyldu minni þegar ég ferðast um heiminn, en í þessu tilviki er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 12:00

GKS: Farið yfir golfsumarið hjá Golfklúbbi Siglufjarðar e. Ingvar Hreinsson formann GKS

Í eftirfarandi grein fer Ingvar Kr. Hreinsson, formaður Golfklúbbs Siglufjarðar, yfir það helsta í starfsemi klúbbsins á s.l. golfsumri: „Tunnumótið var leikið þann 1. júlí í sól og brakandi blíðu. 16 kylfingar tóku þátt í mótinu, fyrir komulag var punktakeppni í einum opnum flokki. Úrslit voru þessi: 1. sæti Jóhann Már Sigurbjörnsson með 38 punkta. 2. sæti Ólafur Þór Ólafsson með 36 punkta. 3. sæti Ingvar Kr. Hreinsson með 35 punkta. Einnig voru veitt nándarverðlaun á par-3 holum en þau hlutu: Jóhanna Þorleifsdóttir, Ólafur H. Kárason og Jóhann Már Sigurbjörnsson. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem næstur er holu eftir upphafshögg á par-3 holum. Tunnan prentþjónusta er stuðningsaðili mótsins og kann Golfklúbburinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 09:00

Mickelson meðal þátttakenda í Mission Hills

Phil Mickelson tekur þátt í WGC-HSBC Champions í Kína í þessari viku en viðurkennir að síðasti ósigur í Ryder bikars keppninni hafi verið „ein af mestu lægðum ferils síns.“ Sigur Justin Rose á Mickelson í tvímenningsleikjum sunnudagsins var lykilatriði í að Evrópa náði að snúa við blaðinu eftir að hafa verið undir 10-6 fyrir lokadaginn í Rydernum í Medinah. Phil, sem hefir tvisar sinnum áður sigrað á WGC – HSBC Champions, leit aftur tilbaka á vonbrigðin í Ryder bikarskeppninni í viðtali fyrir mótið. „Fyrstu 2 vikurnar eftir Ryder bikarinn voru virkilega daprar, þetta er ein af mestu lægðum ferils míns,“ sagði hinn 42 ára Phil. „Það voru svo miklar tilfinningar í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2012 | 08:30

GVS: Reynir Einarsson sigraði á Kálfatjarnarvelli

S.l. sunnudag fór fram 7. mótið af 8 í Opnu Haustmótaröð GVS og Bláa Lónsins.  Þátttakendur voru 21 og spilaðar voru 9 holur í alveg ágætis síðhaustsveðri. Leikfyrirkomulagið var punktakeppni með forgjöf. Í 1. sæti varð heimamaðurinn Reynir Einarsson, GK á 19 punktum; í 2. sæti varð enn annar heimamaður Ragnar Davíð Riordan, GVS á 18 punktum og í 3.-4.  sæti Björn Þorfinnsson, GSE  og Jörundur Guðmundsson, GVS á 17 punktum. Tvær konur tóku þátt í mótinu og af þeim var heimakonan Ingibjörg Þórðardóttir, GVS, á betra skorinu, 16 punktum. Úrslit að öðru leyti voru eftirfarandi: Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls Hola F9 S9 Alls H1 1 Reynir Lesa meira