Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 18:00
Hættulegustu golfvellir heims (4. grein af 10)

Carbrook golfklúbburinn í Brisbane, Ástralíu er hér talinn meðal hættulegustu golfvalla heims. Það búast auðvitað allir við að sjá hákarla við stærsta kóralrif heims Great Barrier Reef, í Ástralíu, en kylfingar eru líka farnir að sjá hákarla við 15. brautina í Carbrook golfklúbbnum. Þegar Logan áinn flæddi yfir golfvöllinn snemma á 9. áratug síðustu aldar bárust með allra handanna fiskitegundir þ.á.m. ungir hákarlar. Nú er vatnið við 15. braut í Carbrook heimili þessara strandaglópa og það vekur alltaf eftirtekt þegar sést í hákarlaugga kíkja upp úr og skera vatnsyfirborðið í vatninu við 15. braut. Hákarlarnir hafa nefnilega fjölgað sér og vatnshindrun í Carbrook farin að fá allt aðra merkingu – Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 17:30
PGA: Högg ársins nr. 8 – vipp Brandt Snedeker – nr. 7 högg Luke Donald úr karga – nr. 6 fugl Ernie Els á Opna breska – myndskeið

PGA Tour velur í lok ár hvers bestu höggin á mótaröðinni á því ári sem er að líða. Nú er aftur komið að þeim tíma ársins þar sem höggin góðu eru rifjuð upp. Nr. 8 er vipp Brandt Snedeker á par-4 á 17. braut Tour Championship, sem tryggði honum sigurinn. Sjá má höggið með því að SMELLA HÉR: Nr. 7 er högg Luke Donald úr karga á 1. holu bráðabana á Transitions Championship. Sjá má höggið með því að SMELLA HÉR: Loks má hér sjá högg nr. 6 á PGA Tour 2012, sem er högg Ernie Els á par-4 lokaholu Royal Lytham & St. Annes vallarins, þar sem Opna breska Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 17:00
Evróputúrinn: Shane Lowry átti högg októbermánaðar

Högg írska kylfingsins Shane Lowry á 11. braut á 4. degi Portugal Masters 2012 hefir verið valið högg októbermánaðar á Evróputúrnum. Nánar tiltekið er það aðhögg Lowry á 11. braut Oceânico Victoria golfvallarins í Vilamoura,Portúgal, sem hlýtur nafnbótina. Þó að nokkuð hvasst hafi verið þá setti Shane í fyrir erni. Við höggið góða notaði hann 7-járn. Eftir mótið sagði Lowry m.a.: „Það er alltaf 1 högg sem maður lítur til baka til þegar maður sigrar í móti og þetta var svo sannarlega höggið. Þetta var í raun mjög erfitt högg – ég átti eftir 138 yarda (126 metra) það var vindur, þannig að ég hefði verið ánægður ef boltinn hefði lent einhvers Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 14:45
Tár trúðsins: Christina Kim þunglynd (6. grein af 8)

Hér kemur 6. hluti af góðri grein Stinu Sternberg, Golf Digest Women, um þunglyndi meðal toppíþróttamanna, þar sem m.a. er viðtal við Christinu Kim, sem nýlega hefir greinst með þunglyndi. Hér fer 6. hluti í lauslegri þýðingu: Íþróttasálfræðingurinn frægi Dr. Bob Rotella, sem hefir haft marga af þekktustu kylfingum samtímans í meðferð og sem hefir skrifað nokkrar bækur um efnið top andlegur árangur trúir því að þunglyndi sé algengara meðal kylfinga á LPGA en PGA. Rotella segir að ástæðan sé að hluta til fjárhagsleg – konur þurfi að hafa meira fyrir að afla til hnífs og skeiðar vegna þess að verðlaunafé sem miklu mun lægra og mun erfiðara sé fyrir þær Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 13:00
Golf á Íslandi: Læknar kynntu golfíþróttina fyrstir fyrir Íslendingum

„Snemmsumars 1935 mátti sjá menn með torkennilegan búnað á ferð í Reykjavík. Þeir báru með sér poka og upp úr þeim stóð eitthvað sem tilsýndar líktist hrífusköftum eða prikum. Og leið þessara manna lá til sama staðar. Þeir voru á ferð inn að Laugum – þó ekki til að fara þar í sund eða þvo þvotta eins og flestir aðrir heldur til að iðka íþrótt, sem fæstir bæjarbúar kunnu deili á. Þar vippuðu menn sér inn fyrir girðingu, gengu fram og til baka og sveilfuðu tólum sínum. Þeir virtust hafa gaman af sem sást best á því að þeir komu aftur og aftur sömu erinda.“ Svona hefst 800 bls. verk Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Santiago Luna – 29. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Santiago Luna. Santiago fæddist 29. nóvember 1962 í Madríd á Spáni og á því 50 ára stórafmæli í dag. Pabbi Luna var starfsmaður í Puerta de Hierro Golf Club í Madríd og þar steig Santiago sín fyrstu spor í golfíþróttinni. Hann gerðist atvinnumaður árið 1982 og var meira en 20 ár á Evrópumótaröðinni, þar sem hann spilaði í meir en 500 mótum. Hann var meðal efstu 100 á lista þeirra bestu í Evrópu (Order of Merit) oftar en 12 sinnum, en besti árangur hans var 31. sætið árið 1998. Eini sigur hans á Evrópumótaröðinni er Madeira Island Open, 1995, en hann er með 10 sigra í allt á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 11:00
Enn að finnast golfboltar í afmælisgolfboltaleik Hótel Sögu

Í tilefni af 50 ára afmæli Hótel Sögu komu þeir á Hótel Sögu fyrir sérmerktum golfboltum á golfvöllum um allt land. Enn eru nokkrir vel faldir boltar sem enginn hefir fundið, en afmælisleikur Hótel Sögu rennur út nú í árslok, þannig að nú fer hver að verða síðastur að skyggnast um eftir golfboltum, sé á annað borð allt ekki komið í kaf undir snjó. Fyrir þann sem finnur golfbolta merktan Hótel Sögu, bíður frábær vinningur á Hótel Sögu. Það var hann Bjarni Pétursson, sem fann Hótel Sögu golfboltann í haust á Jaðarsvelli á Akureyri. Bjarni spilar ekki mikið golf en var að slá nokkrum boltum með konunni sinni og fann Hótel Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 09:00
NGA: Alexander komst ekki í gegnum niðurskurð í Southern Dunes mótinu

Alexander Gylfason tók þátt í 5. móti NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Series, en leikið var Southern Dunes Golf & CC í Haines City í Flórída. Mótið stendur dagana 27.-29. nóvember og var skorið niður í gær eftir seinni dag mótsins og komust 36. efstu og þeir sem jafnir voru í 36. sætinu áfram í lokaumferðina. Alexander Gylfason komst því miður ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni. Hann lék á samtas 24 yfir pari, 168 höggum (81 87) og var nokkuð mörgum höggum frá því að ná niðurskurði. Í efsta sæti eftir 2 hringi eru heimamaðurinn James Vargas, frá Miami (68 68) og Ryan Brehm frá Michigan (67 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 08:00
Nökkvi lauk keppni á Leesburg Open með hring upp á 71 högg
Nökkvi Gunnarsson, NK, spilaði seinni hringinn á 3. móti Florida Professional Golf Tour, Leesburg Open, í gær. Að þessu sinni var spilað á golfvelli Arlington Ridge golfklúbbsins, í Flórída. Nökkvi lék hringina 2 á samtals 4 yfir pari, 144 höggum (73 71) og lauk keppni í 22. sæti. Hann fór upp um 5 sæti en hann var jafn öðrum í 27. sæti eftir fyrri daginn. Jafnframt vann Nökkvi sér inn skinna-vinninga á 7. holu á fyrri hring og 16. holu á seinni hring en þar fékk Nökkvi glæsiörn, en hvor vinningur um sig var upp á $330 (u.þ.b. 40.000,- íslenskar krónur samtals) Í efsta sæti á Leesburg Open varð „heimamaðurinn“ Roger Rowland á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2012 | 07:00
Rory: „Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ég notaði magapútter!“

Kylfingar er misjafnlega virkir á samskiptasíðunum. Rory McIlroy er t.a.m ekki jafnvirkur og Ian Poulter, en engu að síður setti Rory þessa mynd af sér inn á Twitter í gær. Með myndinni var eftirfarandi texti: „Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ég notaði magapútter!“ Heimsins besti er því ekki í mjög svo fjölmennum hópi heimsklassagolfara sem koma til með að sjá eftir „bestu kylfunni í pokanum“ magapútternum, þegar bann R&A við notkun slíkra púttera árið 2016 kemur til framkvæmda. Kylfingurinn Keegan Bradley hefir hótað málsókn verði magapútterarnir eða m.ö.o. „belly-arnir“ bannaðir og margir horfa með eftirsjá á eftir þeim kylfingar eins og Adam Scott o.fl.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

