Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 22:00

GSG: Árlegt Skötumót GSG fer fram 15. desember n.k. – Takið daginn frá og mætið í skötuveislu í Sandgerði!!!

Árlegt skötumót (Veisla GSG) fer fram 15. desember 2012. Ekki er nauðsynlegt að mæta með kylfur. Aðalega verður notast við borðbúnað (fer eftir veðri). Mótið stendur yfir frá kl. 11:30 – 13:30. Innifalið í þátttökugjaldi er Skata og saltfiskur. Hvergi betri Skata sunnan Vestfjarða!!! 🙂 Ath skráning á golf.is og gsggolf@simnet.is. Þátttökugjald 2500 kr á mann. Ath skráning á golf.is og gsggolf@simnet eða 8637756. Mjög áríðandi er að skrá sig sem fyrst –  Allir velkomnir!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 21:30

GL: Þórður Emil endurkjörinn formaður GL – Hagnaður GL 12 milljónir

Í gær 27. nóvember 2012 fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Leynis. Á fundinn mættu um  40 fundarmenn. Formaður GL las skýrslu stjórnar og gjaldkeri fór yfir helstu lykilstærðir í reikningnum, tekjur og gjöld. Skýrslu stjórnar má sjá með því að SMELLA HÉR: Á fundinum voru veittar viðurkenningar, Guðmundar og Ólafsbikarinn var veittur sjálfboðaliðum sem unnu við áhaldahúsið. Alfreð Alfreðsson veitti  bikarnum móttöku fyrir hönd sjálfboðaliða. Háttvísibikarinn GSÍ hlaut Friðrik Berg Sigþórsson, mestu forgjafar framför á árinu hlaut Halldóri Karvel Bjarnason og að lokum veitti formaður GL Valdísi Þóru Jónsdóttur viðurkenningu fyrir afrek hennar á liðnu ári. Ella María Gunnarsdóttir fór yfir viðhorfskönnunina frá september og þjóðfundinn sem haldinn var í nóvember.  Þessa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 20:15

Hættulegustu golfvellir heims (3. grein af 10)

Næsti hættulegi golfvöllurinn sem við heimsækjum er í Indonesíu. Þetta er Merapi golfvöllurinn í Yogyakarta. Hann er við rætur eins virkasta eldfjalls í heimi, Merapi og geta gos brotist út með skömmum fyrirvara. Síðast gaus í desember 2010 og þá skemmdist m.a. golfvöllurinn af grárri leireðju, sem kom upp úr fjallinu.  Þar áður gaus Merapi 2007 og þar áður 2006 og virðist fjallið því gjósa á 1-3 ára fresti. Það sem fólki er sérstaklega hættulegt eins og í öðrum gosum eru eitraðar gosgufur og askan, sem fer yfir allt og er heit og brennir.   2010 létu 153 lífið og 320.000 fóru á vergang. Fólk sem hefir spilað völlinn, sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 16:45

Tár trúðsins: Christina Kim þunglynd (5. grein af 8)

Hér verður fram haldið með 5. hluta af góðri grein Stinu Sternberg hjá Golf Digest Women um þunglyndi af því tilefni að LPGA kylfingurinn Christina Kim, greindist nú nýlega með þunglyndi. Í grein hennar gefa tvöfaldi risamótsmeistarinn John Daly, sem manna fyrstur viðurkenndi fyrir heiminum að hann hefði þurft að berjast við þunglyndi og LPGA kylfingurinn ástralski, Lindsey Wright, góð ráð, en þau telja sig hafa náð nokkrum bata eftir langa baráttu við þunglyndi. Hér kemur 5. hluti greinarinnar: Það er rökrænt að álykta að ef 6,7% af bandarísku þjóðinni þjáist af skapgerðarbrestum, þá sé þetta nokkuð sem hái 1 af hverjum 15 kylfingum á stóru mótaröðunum. Lardon (geðlæknir golfstjarnanna Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 12:30

Ian Poulter: „Málum yfirvaraskegg á Monu Lisu – það verða örugglega allir jafn hrifnir af því og breytingunum fyrirhuguðu á Old Course.“

Nú nýverið tilkynntu forsvarsmenn R&A um að þeir hefðu samþykkt tillögu golfvallararkítektsins Martin Hawtrees á Old Course á St. Andrews. Það eru ekki allir jafnhrifnir af því að breytingar skuli fyrirhugaðar á jafn sögufrægum golfvelli og þeir síðustu til þess að tjá sig um það eru Ryder Cup hetja Evrópu í Medinah 2012, Ian Poulter og sænski kylfingurinn, snjalli, Robert Karlson. Poulter  sagði m.a. eftirfarandi um breytingarnar fyrirhuguðu: „Ég veit, málum bara yfirvaraskegg á Monu Lisu og ég er viss um að allir verði yfir sig hrifnir. Þetta er það sama þegar verið er að eyðileggja frábæran völl, St. Andrews.“ Annar sem tók í sama streng og Poults er Svíinn Robert Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Atli Þór Þorvaldsson – 28. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Atli Þór Þorvaldsson. Atli Þór er fæddur 28. nóvember 1962 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Atli Þór er kvæntur Hafdísi Halldórsdóttur og á 3 börn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Atli Þór Þorvaldsson (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Dick Rhyan, 28. nóvember 1934  (78 ára);  Cesar Monasterio, 28. nóvember 1963 (49 ára); David Ecob, 28. nóvember 1965 (47 ára); Anna Rún Sigurrósardóttir, GO, 28. nóvember 1968 (44 ára; Vaughn Groenewald, 28. nóvember 1974 (38 ára);   Angela Stanford, 28. nóvember 1977 (35 ára)  ….. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 09:00

NGA: Alexander Gylfason lauk 1. degi á Southern Dunes mótinu

Í gær hófst í Haines City á Southern Dunes Golf & CC 5. mótið á NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Series.  Þátttakendur eru 108. Mótið stendur dagana 27.-29. nóvember og skorið er niður eftir daginn í dag og aðeins 36 efstu og þeir sem jafnir eru í 36. sætinu fá að spila lokahringinn til fjár. Meðal þáttakenda er Alexander Gylfason. Alexander spilaði fyrsta hringinn á 9 yfir pari, 81 höggi; fékk 2 fugla, 10 pör, 2 skolla en því miður líka 4 skramba. Í efsta sæti eftir 1. dag eru Bandaríkjamennirnir Philip Choi „heimamaður frá Orlando, Flórída“ og Evan Harmeling frá Massachusetts,  á 6 undir pari, 66 höggum. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 08:45

Nökkvi T-27 eftir fyrri dag Leesburg Open

Nökkvi Gunnarsson, NK, tekur nú þátt í 3. móti  Florida Professional Golf  Tour, Leesburg Open og er að þessu sinni spilað á golfvelli Arlington Ridge golfklúbbsins. Þátttakendur eru 42 og eru skor frekar lág, sá efsti eftir 1. hring, „heimamaðurinn“ Roger Rowland var á 9 undir pari, 61 höggi. Nökkvi er T-27 þ.e. deilir 27. sætinu ásamt 5 öðrum eftir ágætis skor upp á 3 yfir pari, 73 högg á fyrri degi mótsins. Golf 1 óskar Nökkva góðs gengis í dag! Til þess að sjá stöðuna á Leesburg Open eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2012 | 07:45

GA: Jaðarsvallar getið í upptalningu á 10 fallegum, einstökum og ógleymanlegum golfvöllum á bandarískri vefsíðu

Á vefsíðu golfskólans Paradise Golf Academy í Flórída voru nú í ágúst s.l. settir saman á lista þeir 10 golfvellir sem þykja fallegir, einstakir og ógleymanlegir. Það er virkilega gaman að sjá að þeir í Flórída, þar sem eru yfir 1250 golfvellir, langflestir í einu ríki í Bandaríkjunum, skuli koma auga á það sem við hér á Íslandi höfum vitað lengi, að Jaðarsvöllur á Akureyri er meðal allra fallegustu, einstökustu  og ógleymanlegustu golfvöllum! Meðal hinna 9 golfvallanna, sem nefndir eru ásamt Jaðarsvelli eru: Monument golfvöllurinn í Boyne Mountain í Michigan, en þar er sérhver hola á 18 holu golfvellinum nefnd eftir þekktum kylfingi. Eins er m.a. nefndur golfvöllurinn í Seguin Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2012 | 19:00

Golf á Íslandi – jólagjöf kylfingsins í ár!!!

Út er komið glæsilegt ritverk: Golf á Íslandi, í tilefni 70 ára afmæli Golfsambands Íslands í ár. Fyrstu eintökin voru afhent á blaðamannafundi GSÍ í dag, en viðstaddir athöfnina voru m.a. höfundarnir Steinar J. Lúðvíksson og Gullveig Sæmundsdóttir, ásamt myndritstjóra verksins Frosta B. Eiðssyni. Golf á Íslandi er 800 blaðsíðna og það prýða um 1000  myndir. Margir hafa komið við sögu í jafnviðamiklu verki sem Golf á Íslandi er og voru þeim afhent fyrstu eintökin. Þeirra á meðal eru: Friðþjófur Helgason, Gunnar Bragason, Helga Daníelsdóttir, Júlíus Rafnsson, Lucinda Grímsdóttir, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Ragnar Ólafsson, Sveinn Snorrason og Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari. Golf 1 var á staðnum og smellti af nokkrum myndum. Nánar Lesa meira