Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 20:00
Viðtalið: Ólafur Stolzenwald, GHR.

Viðtalið í kvöld er við varaformann Golfklúbbsins á Hellu. Hann er prentsmiðjustjóri sem m.a. hefir gefið út sögu GHR, en klúbburinn átti 60 ára afmæli s.l. sumar. Hér fer viðtalið: Fullt nafn: Ólafur Stolzenwald. Klúbbur: GHR – Golfklúburinn Hellu Rangárvöllum. Hvar og hvenær fæddistu? Á Hellu, 8. október 1961. Hvar ertu alinn upp? Ég er fæddur og uppalinn í þorpinu á Hellu, Leikskálum 2. Það hús er reyndar hrunið, fór í jarðskjálftanum 2000. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Systir mín spilar golf og sonur minn, Egill Elfar, er að byrja – og svo er það bara ég, sem er með þessa dellu. Það gengur ekki alltof vel Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 19:00
Afmæliskylfingur dagsins: Kinga Korpak – 9. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Kinga Korpak. Kinga er fædd 9. desember 2003 og því 9 ára í dag. Hún er þrátt fyrir ungan aldur einn af afrekskylfingum GS og hefir spilað og staðið sig framúrskarandi vel á Áskorendamótaröð Arion banka s.l. sumar. Þannig sigraði Kinga t.d. í 2. móti Áskorendamótaraðarinnar, sem fram fór á Kirkjubólsvelli í Sandgerði, 2. júní í sumar, í flokki 14 ára og yngri, þó Kinga hafi, eins og svo oft áður verið að spila við sér miklu eldri stelpur. Sigurskor Kingu , sem þá var 8 ára, voru 90 högg! Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru: Oliver Tom Kite, 9. desember 1949 (63 ára) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 18:30
Hver er kylfingurinn: Ben Hogan? (4/9) 9. grein af 24 um „The Match“

Hér verður fram haldið kynningu á einni af 4 aðalsöguhetjum í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever.” Ben Hogan var annar af 2 atvinnumönnunum (hinn var Byron Nelson) sem kepptu við tvo áhugamenn í fjórleik (þ.e. Ken Venturi og Harvie Ward sem þegar hafa verið kynntir til sögunnar) vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik. Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Kynningin á Ben Hogan er nokkuð löng (í 9 hlutum) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 18:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Joakim Lagergren (8. grein af 28)

Það voru 4 kylfingar sem deildu 20. sætinu á lokaúrtökumót European Tour, sem fram fór á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni, 24.-29. nóvember s.l. Einn var kynntur í gær, Skotinn Callum Macaulay, síðan eru það Sam Little frá Englandi og Svíinn Oscar Floren og síðan landi Floren sem kynntur verður lítillega í dag: Joakim Lagergren. Joakim Lagergren fæddist 15. nóvember 1991 og er því nýorðinn 21 árs. Hann á sama afmælisdag og ekki ófrægari kylfingar og Lorena Ochoa og Ottó „okkar“ Sigurðsson. Joakim byrjaði að spila golf 6 ára þegar stjúpfaðir hans, Ola Eliasson, varð fjölskyldumeðlimur. Hann hlaut innblástur með því að fylgja Eliasson eftir á golfvellinum á mótum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 16:00
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Haley Millsap, Marina Alex, Maria Hernandez, Amelia Lewis og Hanna Kang (5. grein af 27)

Í dag verða þær 5 stúlkur kynntar sem urðu í 27. sæti á lokaúrtökumóti LPGA sem fram fór á Daytona Beach í Flórída, dagana 28. nóvember – 2. desember 2012. Þessar 5, sem kynntar eru í dag hljóta takmarkaðan spilarétt á LPGA næsta keppnistímabil. Þær eru: 1. Haley Millsap Haley Elizabeth Millsap fæddist 11. janúar 1990 og er því 22 ára. Hún er dóttir William og Johönnu Millsap. Hún er nýútskrifuð frá University of Mississippi þar sem hún útskrifaðist með gráðu í mótttökustjórnun (ens. hospitality management ásamt viðskiptafræði sem undirgrein). Haley spilaði öll 4 árin með kvennagolfliði Univeristy of Mississippi. Haley segir að uppáhaldskvikmynd sín sé Guardian … draumahringurinn hennar væri með: Jack Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 14:15
LET: Tinna á 76 höggum á 4. degi í Lalla Aïcha Tour School 2013
Tinna Jóhannsdóttir, atvinnumaður úr Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði, tekur um þessar mundir þátt í úrtökumóti fyrir LET í Marokkó, Lalla Aïcha Tour School 2013. Hún lék á 76 höggum á 4. degi mótsins en mótið fer fram í Amelkis Golf Club & Al Maaden Golf Resort í Marrakech, í Marokkó. B-riðillinn, sem Tinna leikur í spilaði á Al Maaden golfvellinum í dag. Samtals er Tinna búin að spila á 8 yfir pari, 296 höggum (74 72 74 76) og er sem stendur í 50. sæti þ.e. fór niður um 8 sæti frá því í gær. Sætisröðun gæti þó enn raskast eitthvað því nokkrar eiga eftir að skila sér í hús í B-riðlinum. Frænka Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 14:00
LET: Carlota Ciganda í sögubækurnar – Er fyrsti kylfingurinn í 27 ár sem er efst á peningalistanum og nýliði ársins

Spænski kylfingurinn Carlota Ciganda hefir skrifað sig í sögubækurnar fyrir að verða fyrsti LET kylfingurinn í 27 ár til þess að verða efst á ISPS Handa Order of Merit (peningalista LET) og hljóta jafnframt titilinn Nýliði ársins. Fyrir 27 árum var það Laura Davies, sem vann þetta afrek. Hinn 22 ára Ciganda frá Pamplona á Spáni náði þessum glæsta árangri eftir að hafa tvívegis sigrað á nýliðaári sínu auk þess að hafa 9 sinnum verið meðal 10 efstu í mótum. Hún er aðeins 3. spænski kylfingurinn til þess að sigra á peningalista LET og reyndar bætti hún enn einni rós í hnappagatið þegar hún var valin Kylfingur ársins af leikmönnum LET. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 10:55
Evróputúrinn: Jiménez kylfingur nóvembermánaðar

Miguel Angel Jiménez hefir verið útnefndur kylfingur nóvembermánaðar á Evróputúrnum eftir metsigur hans á UBS Hong Kong Open. Jiménez bætti við einum titilinum enn við þá sem hann vann í Kína 2005 og 2008 í Fanling. Það sem stóð upp úr hér var þó að Spánverjinn skrifaði sig í sögubækurnar fyrir að vera elsti sigurvegari á Evróputúrnum. Jimenéz var 48 ára og 318 daga gamall þegar hann sigraði í UBS Hong Kong Open. Fyrra metið átti Írinn Des Smyth, sem 48 ára og 34 daga gamall vann Madeira Islands Open, árið 2001.
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 10:15
Asíutúrinn: Charl Schwartzel vann yfirburðasigur á Thailand Golf Championship

Það var Charl Schwartzel frá Suður-Afríku sem sigraði á Thailand Golf Championship. Hann var á samtals skori upp á 25 undir pari, 263 höggum (65 65 68 65) og átti 11 högg á næstu menn sigurvegara The Masters, Bubba Watson og „heimamanninn“ Thitiphun Chuayprakong, sem voru á 14 undir pari, hvor. Í 4. sæti varð Sergio Garcia á samtals 12 undir pari, 276 höggum (69 69 70 68). Hyun-bin Park frá Suður-Kóreu varð í 5. sæti á 11 undir pari, 277 höggum (68 74 67 68). Síðan voru 5 kylfingar sem deildu 6. sætinu þ.á.m. sænsk-indverski kylfingurinn Daniel Chopra á samtals 10 undir pari og 4 sem deildu 11. sætinu á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 09:45
Peter Senior sigraði á Australian Open

Það var Ástralinn Peter Senior sem sigraði á Opna ástralska (ens.: Australian Open). Senior spilaði á samtals 284 höggum (75 68 69 72). Með sigrinum varð Senior sá elsti til þess að sigra á Opna ástralska eða 53 ára! Í 2. og 3. sæti voru einnig „heimamenn“ þ.e. Brendan Jones var aðeins 1 höggi á eftir Senior og landaði 2. sætinu og Cameron Percy var enn öðru höggi á eftir í 3. sæti. Fjórða sætinu deildu 3 kylfingar á samtals 287 höggum hver, 3 höggum á eftir Peter Senior, en þeirra á meðal var Englendingurinn Justin Rose. Adam Scott varð í 14. sæti á samtals 290 höggum, 6 höggum á Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

