Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 9. 2012 | 07:00

Sólskinstúrinn: Morten Örum Madsen í forystu ásamt Tim Clark eftir 1. dag Nelson Mandela Championship

Danski nýliðinn á Evrópumótaröðinni Morten Örum Madsen er þegar kominn í golffréttirnar, en hann er einn af þeim kylfingum, sem Golf 1 er að kynna þessa daganna í greinaflokknum „Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013.“ SMELLIÐ HÉR: Örum Madsen varð í 16. sæti  á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni, í lokaúrtökumóti, sem fram fór 24.-29. nóvember í s.l. mánuði og tryggði sér þar með keppnisrétt 2013 á Evrópumótaröðinni. Örum Madsen er þegar að slá í gegn á fyrsta móti sínu þ.e. Nelson Mandela Championship styrkt af ISPS Handa, í Suður-Afríku. Hann sagði um mikla spilamennsku sína að undanförnu: „Ég átti 3 daga heima eftir að ég kom úr Q-school og þar til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2012 | 21:00

Golfgrín á laugardegi

Maður var á göngu eftir götu þegar hann varð fyrir aðkasti manns sem var sérlega skítugur og illa til fara og þar að auki heimilislaus. Hann bað þann sem hann var að ónáða um nokkrar krónur fyrir mat. Sá ónáðaði tók upp veskið sitt, rétti manninum 2000 krónur og spurði: „Ef ég læt þig hafa þennan pening, ætlarðu þá að kaupa bjór fyrir hann í staðinn fyrir mat?“ „Nei, ég hætti að drekka fyrir áratugum síðan,“ sagði heimilislausi maðurinn. „Muntu þá nota peninginn til þess að borga vallargjöld og spila golf í staðinn fyrir að nota peninginn til að kaupa mat?“ spurði maðurinn. „Ertu geggjaður?“ svaraði sá heimilislausi. „Ég hef Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2012 | 20:00

Hver er kylfingurinn: Ben Hogan? (3/9) 8. grein af 24 um „The Match“

Hér verður fram haldið kynningu á  einni af 4 aðalsöguhetjum í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever.”    Ben Hogan var annar af 2 atvinnumönnunum (hinn var Byron Nelson) sem kepptu við tvo áhugamenn í fjórleik (þ.e. Ken Venturi og Harvie Ward sem þegar hafa verið kynntir til sögunnar) vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik.  Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Kynningin á Ben Hogan er nokkuð löng (í 9 hlutum) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2012 | 19:30

Afmæliskylfingur dagsins: Ágústa Sveinsdóttir – 8. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Ágústa Sveinsdóttir. Ágústa er fædd 8. desember 1954. Hún er í Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði og hefir tekið þátt í ýmsum opnum mótum s.l. sumar og er yfirleitt meðal efstu keppenda.   Sjá má viðtal við Ágústu sem birtist hér á Golf 1 fyrir um ári síðan SMELLIÐ HÉR:  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ágústu til hamingju með daginn hér að neðan: Ágústa Sveinsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið Ágústa!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Laurie Auchterlonie, f. 8. desember 1868 – d. 20. janúar 1948;  Edward Harvie Ward Jr., (f.8. desember 1925 – d.4. september 2004  – Einn af Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2012 | 19:15

LET: Tinna á 74 höggum á 3. degi í Lalla Aïcha Tour School 2013

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnumaður úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði lék á 74 höggum á 3. degi  Lalla Aïcha Tour School 2013 í dag, en mótið fer fram í Amelkis Golf Club & Al Maaden Golf Resort í Marrakech, í Marokkó. B-riðillinn, sem Tinna leikur í spilaði á Amelkis golfvellinum, sem reynst hefir Tinnu erfiðari, þannig að það er gott að hún að Al Maaden eftir á morgun! Samtals er Tinna búin að spila á 4 yfir pari, 220 höggum (74 72 74) og er í 42. sæti. Frænka Tiger Woods, Cheyenne Woods, sem líka spilar í úrtökumótinu skaust upp fyrir Tinnu í dag og er komin í 30. sæti eftir frábæran hring upp Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2012 | 19:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Callum Macaulay (7. grein af 28)

Skotinn Callum Macaulay er einn af þeim 4 sem urðu í 20. sæti á lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni, sem fram fór 24.-29. nóvember í s.l. mánuði og tryggði sér þar með keppnisrétt 2013 á Evrópumótaröðinni. Hann hefir áður tekið þátt í Q-school, árið 2009 en þá fór hann upp í gegnum öll 3 stigin og spilaði í lokaúrtökumótinu. Macaulay er fæddur 6. desember 1983 í Falkirk í Skotlandi og varð því 29 ára í fyrradag. Hann gerðist atvinnumaður 2008. Callum Macaulay kvæntist eiginkonu sinni, Claire-Marie, í fyrra, 2011. Aðaláhugamálin eru golf og ruðningsbolti. Macaulay er nr. 634 á heimslistanum í dag. Hann hefir m.a. verið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2012 | 16:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Paz Echeverria, Min Seo Kwak og Sue Kim (4. grein af 27)

Hér verða næst kynntar 3 stúlkur af  7 sem deildu 32. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA sem fram fór á Daytona Beach í Flórída, dagana 28. nóvember – 2. desember 2012.  Hinar 4: Lacey Agnew, Perrine Delacour, Alejandra Llaneza og Garrett Phillips hafa þegar verið kynntar. Þessar 3, sem kynntar eru í dag hljóta takmarkaðan spilarétt á LPGA næsta keppnistímabil. Þær eru: 1. Paz Echverria Paz Echverria er kylfingur frá Santiago, Chile. Hún fæddist í Chile 5. júlí 1985 og er því 27 ára. Meðal hápunkta í ferli hennar er að hún var fimm sinnum valin kylfingur ársins í Chile (2006 – 2010). Paz hefir 5 sinnum verið í landsliði Chile í World Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2012 | 12:15

LET: Shanshan Feng sigraði á Omega Ladies Dubai Masters

Kínverska stúlkan Shanshan Feng var nú rétt í þessu að tryggja sér sigur á Omega Ladies Dubai Masters. Þetta er algert metskor en Shanshan spilaði hringina 4 á samtals 21 undir pari, 267 höggum (66 65 67 69). Í 2. sæti var Dewi Claire Schreefel frá Hollandi á samtals 16 undir pari, 272 höggum (69 71 63 69). Í 3. sæti nokkuð á eftir Feng urðu Caroline Masson frá Þýskalandi og Becky Brewerton frá Wales báðar á samtals 12 undir pari, 276 höggum; Caroline (68 68 69 71), Becky (70 73 68 65). Lexi Thompson hafnaði í 10. sæti og Michelle Wie í 19. sæti. Til þess að sjá úrslitin Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2012 | 11:30

Rory er að kaupa sér hús í Flórída fyrir 1,3 milljarð króna

Mikið hefir verið látið í áströlskum golffjölmiðlum með það að Rory McIlroy, nr. 1 á heimslistanum, hafi ekki mætt í Opna ástralska vegna þess að honum fannst $1 milljón of lítil upphæð bara fyrir það að mæta og fór fram á $2 milljónir.  Ekki var gengið að þeim kröfum hans. En Rory þarf nú einu sinni svona mikinn pening til þess að eiga fyrir nýjustu fjárfestingu sinni. Skv. fjölmiðlum vestra er Rory nefnilega að kaupa sér $10,9 milljóna dollara (u.þ.b. 1,36 milljarða króna) hús í  Palm Beach Gardens í Flórída. Húsið sem er byggt 2012, skartar af einstakri hönnun á 10.000 ferfetum (u.þ.b. 3.300 fermetrum).  Í því eru m.a. 6 svefnherbergi, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 8. 2012 | 09:45

Senden með 2. högga forystu á Rose fyrir lokahring Australian Open

Það er Ástralinn John Senden, sem tekið hefir forystuna fyrir lokahring Opna ástralska (ens.: Australian Open); en hann á tvö högg á þann sem næstur kemur, Englendinginn Justin Rose. Fraser er búinn að spila á samtals 7 undir pari,  209 höggum (66 73 70) á The Lakes Course í Sydney. Justin Rose hins vegar á samtals 5 undir pari, 211 höggum (68 73 70). Þriðja sætinu deila 3 ástralskir kylfingar: Kieran Pratt, Peter Senior og Matthew Jones allir á samtals 4 undir pari, 212 höggum og 6. sætinu deila enn aðrir 3 kylfingar þ.á.m. Bandaríkjamaðurinn Kyle Stanley á samtals 3 undir pari, 213 höggum. Adam Scott deilir 9. sætinu ásamt 8 öðrum kylfingum á samtals Lesa meira