Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2012 | 14:00

GK: Skötuveisla í golfskála Keilis á Þorláksmessu

Á Þorláksmessu verður skötuveisla haldin í golfskála Keilis.

Boðið verður upp á hádegismat kl. 11:30 og síðan aftur kl. 12:30.

Vinsamlegast takið fram við bókun hvora tímasetninguna er óskað eftir.

Á boðstólum er kæst skata fyrir byrjendur, sem lengra komna, saltfiskur og annað sem þarf til að koma þér í jólaskap!

Húsið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.

Miðaverð er aðeins 2.900 krónur.

Vinssamlegast bókið ykkur í matinn í síma 565-3360 eða hjá pga@keilir.is

Gleðileg jól!!! Golfklúbburinn Keilir