
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Caroline Masson – (13. grein af 27)
Í dag verður fram haldið að kynna þær 6 stúlkur, sem deildu 11. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school á Daytona Beach, dagana 28. nóvember – 2. desember 2012 og flugu þ.a.l. inn á LPGA. Í gær var fyrsta stúlkan, sem varð í 11. sæti kynnt: Brooke Pancake og í dag verður þýska golfdísin Caroline Masson kynnt, eða Caro eins og hún er alltaf kölluð í Þýskalandi.
Caro Masson er fædd 14. maí 1989 í Gladbeck í Nordrhein-Westfalen í Þýskalandi. Hún er dóttir Gabriele og Stefan Masson og á einn 18 ára bróður Alexander. Heima í Þýskalandi er hún í golfklúbbnum í Hubbelrath og hún er með sama þjálfara og Martin Kaymer, Günther Kessler.
Sem áhugamaður var Caro í Junior Solheim Cup Team árin 2005 og 2007. Caro spilaði f.h. Þýskalands í Espirito Santo Trophy 2006 og 2008. Jafnframt var hún var í liði meginlandsins í Vagliano Trophy, 2009.
Besti hringur Caro er 10 undir pari, 62 högg í golfklúbbnum Am Alten Fliess, í Þýskalandi.
Caro útskrifaðist úr Ratsgymnasium í Gladbeck þ.e. menntaskóla í Þýskalandi árið 2008 og eftir það var hún í bandaríska háskólagolfinu í 1 ár þ.e. spilaði golf með golfliði Oklahoma State (2008/2009).
Caro gerðist atvinnumaður í golfi 1. janúar 2010. Hún hefir spilað á LET síðan þá. Árið 2010 náði hún t.a.m. 10 sinnum niðurskurði í 12 mótum LET sem hún tók þátt í. Árið 2011 keppti Caro m.a. á Women´s British Open risamótinu í Carnoustie og náði þeim glæsilega árangri að verða T-5 þ.e. jöfn öðrum í 5. sæti á mótinu. Í ár vann Caro síðan . fyrsta sigur sinn á LET þ.e. á South Africa Women´s Open.
…. og á næsta ári tekur við enn eitt ævintýrið á ferli Caro Masson, þegar hún spilar á LPGA.
Til þess að fræðast nánar um Caro má skoða heimasíðu hennar með því að SMELLA HÉR:
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open