
GOB: Einar Gestur Jónasson nýr vallarstjóri í Bakkakoti
Golfklúbbur Bakkakots hefur ráðið Einar Gest Jónasson sem nýjan vallarstjóra á Bakkakotsvelli. Einar Gestur er þrítugur Húsvíkingur og er menntaður frá Elmwood Collage í Skotlandi í stjórnun og viðhaldi á golfvelli en hann útskrifaðist þaðan árið 2005. Einar hefur víðtæka reynslu af rekstri og umhirðu 9 og 18 holu golfvalla. Einar hefur starfað hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í rúm 2 ár sem aðstoðarvallarstjóri og þar áður sem vallarstjóri á Katlavelli á Húsavík í 5 ár frá 2005 til 2010, við mjög góðan orðstír. Einar Gestur mun leiða allt faglegt starf við umhirðu vallarins ásamt því að skipuleggja og stýra framkvæmdum á fyrirhuguðum breytingum á Bakkakotsvelli. Stefnt er að því að þessar breytingar verði unnar í skrefum á næstu árum og verður markmið þeirra meðal annars að lengja völlinn og bæta. Við útfærslu þeirra verður þess þó gætt að Bakkakotsvöllur haldi sínum sérkennum og ennfremur að framkvæmdir raski ekki framgangi spils á núverandi velli. Mun stjórn GOB kynna þessar breytingar fyrir félagsmönnm á opnum félagsfundi næstkomandi vor. Golf 1 óskar Einari Gesti til hamingju með nýja starfið og óskar honum velfarnaðar!
|
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023
- júlí. 29. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (30/2023)
- júlí. 29. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2023
- júlí. 28. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hinrik Gunnar Hilmarsson og Þórdís Lilja Árnadóttir – 28. júlí 2023
- júlí. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth – 27. júlí 2023
- júlí. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Mick Jagger, Allen Doyle, Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Daniel Hillier – 26. júlí 2023