Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2012 | 20:45

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Matthew Nixon (16. grein af 28)

Í kvöld verður byrjað að kynna þá 5 stráka sem deildu 9. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school á Evrópumótaröðinni sem fram fór dagana 24. – 29. nóvember s.l.

Í kvöld verður byrjað á Matthew Nixon.

Matthew Nixon fæddist í Manchester á Englandi 12. júní 1989 og er því 23 ára. Hann hætti að nota plastkylfur 5 ára og fór að nota alvöru upp frá því.

Klúbburinn sem hann er félagi í á Englandi er Ashton under Lyne, en þar hefir hann verið allt frá 7 ára aldri. Hápunktar áhugamannsferils hans er sigur á British Boys Amateur Championship árið 2006 á Royal Aberdeen.

Hann ætlaði sér að spila í Walker Cup 2011 en freistingin að gerst atvinnumaður á Evróputúrnum var of mikil.

Nixon gerðist því atvinnumaður árið 2010 og sama ár komst hann þá þegar í gegnum Q-school. En eftir að hafa aðeins náð að komast í gegnum 6 niðurskurði á keppnistímabilinu 2011 varð hann aftur að fara í Q-school í desember 2011 og þar nældi hann sér í 14. kortið sem í boði var þ.e. varð í 14. sæti á l0kaúrtökumótinu.

Nixon vonast til að feta í fótspor vinar síns Danny Willet og festast í sessi á Evróputúrnum.  Hann varð að fara aftur í Q-school í ár en gekk betur nú en í fyrra.

Helstu áhugamálin fyrir utan golfið eru bílar og Formúla 1.  Mestu fyrirmyndirnar í golfinu eru Tiger Woods, Ernie Els og Rory McIlroy.