Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 21:45

Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Kayla Mortellaro – (16. grein af 27)

Í kvöld verður fram haldið að kynna eina af þeim 6 stúlkum, sem deildu 11. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school á Daytona Beach dagana 28. nóvember – 2. desember 2012 og flugu inn á LPGA. Nú er það bandaríski kylfingur Kayla Mortellaro sem verður kynnt: Kayla fæddist 9. júlí 1990 og er því 22 ára. Hún er dóttir Tom og Dawn Mortellaro og útskrifaðist frá University of Idaho með gráði í PR og undirgráðu í samskiptafræðum (ens. communications). Kayla spilaði öll 4 árin í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Idaho skóla og má sjá afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR:  Hér má sjá viðtal við Kaylu frá því í vor þegar hún var Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 21:15

Rory næstum einróma valinn besti kylfingur ársins af GWAA

Rory McIlroy hlaut næstum öll atkvæði í kosningu sambands bandaríska golffréttamanna (GWAA skammst. fyrir: Golf Writers Association of America). Rory fékk 190 af 194 atkvæðum. Brandt Snedeker fékk 3 atkvæði og Tiger Woods 1 atkvæði. Rory hefir áður verið kjörinn kylfingur ársins af  U.S. PGA Tour, European Tour, PGA of America og sambandi breskra golffréttaritara. GWAA tilkynnti að Stacy Lewis hefði verið valin besti kvenkylfingur ársins 2012 með 79% atkvæða og tvöfaldur risamótssigurvegari, Roger Chapman var valinn besti kylfingurinn í öldungaflokki með 60% atkvæða. Þetta er í 4. skiptið á sl. 5 árum sem GWAA hefir valið evrópskan kylfing, Kylfing ársins.


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 21:00

Boðið upp á kampavín – fyrsta skipti sem hola í höggi var slegin á nýja Jaðarsvellinum

Nú fyrir jólin kom út glæsilegt 800 bls. ritverk þeirra Steinars J. Lúðvíkssonar og Gullveigar Sæmundsdóttur, Golf á Íslandi, í tveimur bindum, í tilefni af 70 ára afmæli Golfsambands Íslands. Í verkinu eru m.a. margar skemmtiegar sögur og frásagnir dagblaða af kylfingum allt frá því fyrsti golfklúbburinn var stofnaður hér á landi, 1935. Golf á Íslandi fæst í öllum helstu bókabúðum og er vonandi að sem flestir kylfingar fái þetta eigulega ritverk í jólapakkann!!! Í Morgunblaðinu þ. 29. júlí 1952 þ.e. fyrir 60 árum var eftirfarandi frétt: „Sá einstæði atburður gerðist hér á golfvellinum s.l. laugardag að Adolf Ingimarsson, Eyrarvegi 2 hér í bæ fór af teig í holu í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 20:30

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Mikko Korhonen (19. grein af 28)

Hér verður haldið áfram að kynna þá 5 stráka sem deildu 9. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school á Evrópumótaröðinni sem fram fór dagana 24. – 29. nóvember s.l. á PGA Catalunya golfstaðnum, í Girona á Spáni. Nú þegar hafa Matthew Dixon, Richard McEvoy og Edoardo de la Riva verið kynntir og bara eftir að kynna þá Anthony Snobeck og Mikko Korhonen. Við byrjum á Korhonen en Snobeck verður kynntur á morgun. Finnski kylfingurinn Mikko Korhonen er fæddur 23. júlí 1980 í Mäntsälä í Finnlandi og er því 32 ára. Hann byrjaði að spila golf 10 ára, ári eftir að pabbi hans byrjaði. Hann varð fljótt miklu betri en pabbinn. Hann spilaði í unglinga- og áhugamannsárum sínum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 19:45

GK: Helstu niðurstöður úr viðhorfskönnun Golfklúbbsins Keilis 2012

Á undanförnum 2 árum hefir Golfklúbburinn Keilir gengist fyrir viðhorfskönnun meðal félagsmanna sinna. Í ár var könnunin send á 700 póstföng og 258 svör bárust, sem er 40% svarhlutfall. Þar af voru 80% karlar sem svöruðu (eða um 206  manns) og 20% kvenna (eða um 52 konur). En af hverju stendur GK fyrir þessu?  Þetta er í fyrsta lagi liður í betri þjónustu við félagsmenn klúbbsins; þetta er hugsað sem vettvangur þar sem almenni félagsmaðurinn getur komið sinni skoðun á framfæri og klúbburinn fær hugmynd um hvar þarf að bæta úr. Sagan er dýrmæt og reynslan sem fengist hefir af þessu góð. 2% þeirra sem þátt tóku í könnuninni voru Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 18:55

Darren Clarke hlýtur PGA Recognition Award

Norður-írski kylfingurinn Darren Clarke, sem sigraði á Opna breska 2011 og hefir 5 sinnum verið í liði Evrópu í Ryder Cup hlaut PGA Recognition Award á árlegum fjáröflunar dinner PGA þ.e. Professional Golfers’ Association. Clarke tók á móti verðlaununum í Grosvenor House Hotel í London, sem margir Íslendingar kannast við. Hann er fyrsti Norður-Írinn til þess að hljóta viðurkenninguna en meðal annarra sem hana hafa hlotið eru: Sir Nick Faldo, Tony Jacklin, Seve Ballesteros og fyrirliði liðs Evrópu í Ryder bikarnum 2012,  José Maria Olázabal. Darren Clarke, 43 ára, er vinsæll bæði utan og innan vallar og hefir átt farsælan feril frá því hann gerðist atvinnumaður 1990. Hann hlaut m.a. OBE orðuna Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 15:30

Golf er ekki hættulaust – það eru margar orsakir slysa

Nú fyrir jólin kom út glæsilegt 800 bls. ritverk þeirra Steinars J. Lúðvíkssonar og Gullveigar Sæmundsdóttur, Golf á Íslandi, í tveimur bindum, í tilefni af 70 ára afmæli Golfsambands Íslands. Í verkinu eru m.a. margar skemmtiegar sögur og frásagnir dagblaða af kylfingum allt frá því fyrsti golfklúbburinn var stofnaður hér á landi, 1935. Golf á Íslandi fæst í öllum helstu bókabúðum og er vonandi að sem flestir kylfingar fái þetta eigulega ritverk í jólapakkann!!! Hér fer frásögn í „Golf á Íslandi“ 1. tbl. 10. árg. 1999, af samantekt Brynjólfs Mogensen, yfirlæknis bæklunarlækningadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur, þar sem tæpt er á rannsóknum sem hann gerði á golfáverkum um tveggja ára skeið 1997-1998. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Walter Hagen, Ásdís Olsen og Gísli Sváfnisson – 21. desember 2012

Afmæliskylfingar dagsins eru Walter Hagen,  Ásdís Olsen og Gísli Sváfnisson. Gísli Sváfnisson er fæddur 21. desember 1952 og á því 60 ára stórafmæli í dag. Gísli er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum  með góðum árangri. T.d. varð hann í 1. sæti í punktakeppni á Spanish Open, styrktarmóti þeirra Ólafs Más Sigurðssonar og Þórðar Rafns Gissurarsonar, þ. 28. ágúst 2011. Þar fékk hann 42 punkta og varð sem segir efstur af 195 keppendum mótsins, sem luku leik. Í sumar tók Gísli m.a. þátt í Liverpool Open í Oddinum 11. ágúst s.l. Gísli er kvæntur Guðrúnu Björgu Guðmundsdóttur og eiga þau tvö börn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2012 | 23:59

„The Match“ – 20. grein af 24

Nú hafa 4 aðalsöguhetjur í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever, ” verið kynntar til sögunnar; þ.e. Ken Venturi, Harvie Ward, Ben Hogan og nú síðast Byron Nelson. Þessir 4 kylfingar kepptu í fjórleik vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik. Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Þetta er í stuttu máli innihald bókarinnar „The Match“ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2012 | 23:55

Andri Þór og Arnór Ingi komust í gegnum niðurskurð í Flórída!

Andri Þór Björnsson, GR og Arnór Ingi Finnbjörnsson GR, sem taka þátt í Dixie Amateur Championship og fer fram í Coral Springs, Flórída komust í dag báðir í gegnum niðurskurð og fá að spila lokahringinn á morgun. Þetta er stórt og fremur sterkt 72 holu mót (skorið niður eftir 54),sem gefur mörg stig á heimslista áhugamanna. Þátttakendur voru 240 og spilað er á völlum 3 klúbba: Heron Bay Golf Club,  Palm-Aire Country Club og  Woodlands Country Club. Aðeins 73 komust komust í gegnum niðurskurð, sem miðaður var við 5 yfir pari. Andri Þór er samtals búinn að spila á 5 undir pari (68 68 74). Hann deilir 12. sæti eftir 3. dag og er Lesa meira