Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2012 | 20:30
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Kim Welch – (17. grein af 27)

Í kvöld verður fram haldið að kynna eina af þeim 6 stúlkum, sem deildu 11. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school á Daytona Beach dagana 28. nóvember – 2. desember 2012 og flugu inn á LPGA. Nú er það bandaríski kylfingur Kim Welch sem verður kynnt: Kim Welch fæddist 4. mars 1983 í Sacramento, Kaliforníu og er því 29 ára. Hún spilaði í 4 ár í bandaríska háskólagolfinu með Washington State. Welch gerðist atvinnumaður fyrir 6 árum þ.e. 2006, eftir útskrift. Hún tók m.a. þátt í golfraunveruleikaþáttunum Big Break Kaanapali á Golf Channel. Meðal áhugamála Kim eru pússluspil, að verja tíma með fjölskyldunni, að vera á snjóborði og lestur góðra bóka. Hér má sjá Kim Welch Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2012 | 20:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Anthony Snobeck (20. grein af 28)

Hér verður haldið áfram að kynna þá 5 stráka sem deildu 9. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school á Evrópumótaröðinni sem fram fór dagana 24. – 29. nóvember s.l. á PGA Catalunya golfstaðnum, í Girona á Spáni. Nú þegar hafa Matthew Dixon, Richard McEvoy, Edoardo de la Riva og Mikko Korhonen og bara eftir að kynna Anthony Snobeck. Því er ekkert annað að gera en að kynna Snobeck og á morgun verður byrjað að kynna þá sem urðu í 7. sæti. Anthony Snobeck fæddist 20. apríl 1983 og er því 29 ára. Hann ólst upp nálægt hinum fræga F1 kappaksturshring, Magny Course í Frakklandi. Pabbi Anthony var frægur rallý kappakstursmaður og var með bílaumboð þarna. Anthony sveiflaði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2012 | 18:20
Fannar Ingi í 1. sæti á US Kids móti í Flórída
Fannar Ingi Steingrímsson, kylfingurinn ungi og efnilegi úr GHG, er efstur á US Kids Golf – Holiday Classic mótinu, sem fram fer á Palmer vellinum í Palm Beach Gardens, dagana 21.-22. desember 2012. Seinni hringurinn verður spilaður í kvöld. Þátttakendur eru 18 og eftir fyrri hring mótsins er Fannar Ingi efstur þ.e. T-1, hann deilir 1. sætinu með þeim Doug Smith frá Winter Park í Flórída og Jorge Martinez Hoffmann, frá Miami í Flórída. Fannar Ingi spilaði fyrri hringinn á 8 yfir pari, 80 höggum; fékk 10 skolla 7 pör og glæsiörn á 12. braut Palmer vallarins!!! Golf 1 óskar Fannari Inga góðs gengis á seinni hringnum í Flórída!!! Til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2012 | 18:00
Kólfleikurinn við allra hæfi

Nú fyrir jólin kom út glæsilegt 800 bls. ritverk þeirra Steinars J. Lúðvíkssonar og Gullveigar Sæmundsdóttur, Golf á Íslandi, í tveimur bindum, í tilefni af 70 ára afmæli Golfsambands Íslands. Í verkinu eru m.a. margar skemmtiegar sögur og frásagnir dagblaða af kylfingum allt frá því fyrsti golfklúbburinn var stofnaður hér á landi, 1935. Golf á Íslandi fæst í öllum helstu bókabúðum og er vonandi að sem flestir kylfingar fái þetta eigulega ritverk í jólapakkann!!! Í 2. tbl. Kylfings 1. árg. frá júní 1935 birtist eftirfarandi grein: „Kólfleikurinn við allra hæfi Kólfleikur var áður leikur yfirstéttarmanna, sem höfðu efni á að kaupa dýr landflæmi og láta breyta þeim í leikvöll. En Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2012 | 13:45
Justin Rose um golfleik á Hvaleyrinni: „Gaman að kljást við furðulegar brautir“

Nú fyrir jólin kom út glæsilegt 800 bls. ritverk þeirra Steinars J. Lúðvíkssonar og Gullveigar Sæmundsdóttur, Golf á Íslandi, í tveimur bindum, í tilefni af 70 ára afmæli Golfsambands Íslands. Í verkinu eru m.a. margar skemmtiegar sögur og frásagnir dagblaða af kylfingum allt frá því fyrsti golfklúbburinn var stofnaður hér á landi, 1935. Golf á Íslandi fæst í öllum helstu bókabúðum og er vonandi að sem flestir kylfingar fái þetta eigulega ritverk í jólapakkann!!! Í Morgunblaðinu birtist 29. júlí 2003 eftirfarandi viðtal við kylfinginn Justin Rose, eftir keppni á Canon-mótinu á Hvaleyrarvelli: „Völlurinn hér og allar aðstæður voru fínar og ekkert yfir þeim að kvarta. Brautirnar í hrauninu eru einstakar og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2012 | 12:55
Geggjaðasti golfvöllur heims í Kína?

Þetta er e.t.v. geggjaðasti golfstaður heims – Mission Hills í Kína með sína 22 golfvelli. Einn völlurinn, sem enn er verið að vinna í og hefir ekki opnað enn, er frekar sérstakur en þar eru allar holur með ákveðnu þema. Ein holan er t.a.m. þannig að flötin er „syndandi“ í stórri núðluskál með risaprjóna. Þetta er aðeins ein brautin á þessum geggjaða golfvelli Brian Culey, golfvallararkítekts en meðal annars sem gefur að finna eru brautir þar sem Kínamúrinn er hindrun og aðrar sem lagðar hafa verið í gegnum rústir Maya og enn aðrar þar sem pöndur eru aðalviðfangsefnið. Eru Kínverjar að ganga af göflunum í undirbúningi fyrir Olympíuleikana, en þeir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2012 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Aðalsteinsdóttir – 22. desember 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Kristín Aðalsteinsdóttir. Kristín er fædd 22. desember 1972 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Kristín er í Golfklúbbi Setbergs og hefir frá upphafi verið í golftímum hjá Jóni Karlssyni. Hún hefir spilað nokkuð í sumar, m.a. í Kiðjaberginu. Þrátt fyrir tiltölulega stuttan feril hefir Kristín spilað víða erlendis m.a. á Spáni og í Golfclub Ozo í Lettlandi. Með fullu starfi hjá Hópbílum þjálfar Kristín 5. flokk stelpna í handbolta hjá ÍR. Kristín er gift Val Benedikt Jónatanssyni og eiga þau 2 börn: Hrafnhildi Völu, 9 ára og Gísla Hrafn, sjónvarpsfréttastjörnu, sem varð 6 ára fyrir 3 dögum síðan. Komast má á facebook síðu Kristínar til þess að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2012 | 11:00
Lee Westwood spilar í Omega Dubai Desert Classic

Lee Westwood skrifaði eftirfarandi á facebook síðu sína fyrir nokkrum mínútum síðan: „Ég spila í Omega Dubai Desert Classic mótinu í Emirates golfklúbbnum á næsta ári, 2013, en mótið byrjar í lok janúar. Þetta er stórt mót sem laðar að sér einhverja bestu kylfinga heims árs hvert. Vonandi tekst mér að klára dæmið í þetta sinn.“ Með þessu fylgir linkur inn á síðu umboðsmanna Lee, ISM þar sem lesa má frekar um Lee og mótið með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 23:59
„The Match“ – 21. grein af 24

Nú hafa 4 aðalsöguhetjur í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever, ” verið kynntar til sögunnar; þ.e. Ken Venturi, Harvie Ward, Ben Hogan og nú síðast Byron Nelson. Þessir 4 kylfingar kepptu í fjórleik vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik. Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Þetta er í stuttu máli innihald bókarinnar „The Match“ Bókin er 250 síðna og dreifist á 20 kafla – Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2012 | 22:00
Andri Þór lauk keppni í 18. sæti í Flórída
Þeir Andri Þór Björnsson, GR og Arnór Ingi Finnbjörnsson GR, hafa nú lokið keppni í Dixie Amateur Championship, sem fram fór í Coral Springs, Flórída, en lokahringurinn var spilaður í dag. Dixie Amateur er stórt og fremur sterkt 72 holu mót (skorið niður eftir 54),sem gefur mörg stig á heimslista áhugamanna. Þetta var í 82. sinn sem mótið var haldið. Fyrstu þrjá dagana voru þátttakendur 240 og spilað var á völlum 3 klúbba: Heron Bay Golf Club, Palm-Aire Country Club og Woodlands Country Club. Aðeins 72 komust komust í gegnum niðurskurð, sem miðaður var við 5 yfir pari – Andri Þór og Arnór Ingi, þar á meðal Andri Þór spilaði á samtals 1 yfir Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

