Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2013 | 17:00
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Laura Diaz – (19. grein af 27)

Nú er komið að því að kynna Lauru Diaz en hún ásamt Karlin Beck deildu 8. sætinu í lokaúrtökumóti LPGA á Daytona Beach í Flórída, sem fram fór 28. nóvember – 2. desember á síðasta ári, 2012. Karlin Beck verður kynnt á morgun. Laura Diaz fæddist 27. apríl 1975 í Scotia, New York og er því 37 ára. Hún sigraði m.a. árið 1995 North and South Women’s Amateur í Pinehurst, Norður-Karólínu. Árið 1996 vann hún Eastern Women’s Amateur Championship og komst sama ár í fjórðungsúrslit á U.S. Women’s Amateur. Diaz var í bandaríska háskólagolfinu, í sama háskóla og Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, Wake Forest. Þar lagði Diaz stund á viðskiptafræði og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2013 | 16:00
20 bestu golfvellir Bandaríkjanna

Golf Digest hefir tekið saman yfirlit yfir bestu golfvelli í Bandaríkjunum 2013. Sýnist sitt hverjum og spurning hvort margir séu sammála vali Golf Digest á besta golfvelli Bandaríkjanna? Sem dyggum fyrrverandi Flórídabúa finnst þeirri sem þetta ritar vanta marga góða velli í Flórída á þennan topp-20 lista og þeir sem velja einum of hallir undir velli í NY. En dæmið fyrir ykkur sjálf! Til þess að skoða val Golf Digest á 20 bestu golfvöllum Bandaríkjanna 2013 SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2013 | 15:00
Golfútbúnaður: Nýju PING Scottsdale TR pútterarnir – Myndskeið

PING Scottsdale TR™ pútterarnir eru þekktir fyrir það sem á ensku hefir verið nefnt „true roll“ en boltinn rúllar betur þökk sé nýrri grópartækni PING pútteranna. Grópirnar eru dýpstar í miðjunni og grynnka eftir því sem fjær dregur. Þetta er gert til þess að boltahraðinn verði jafnari, sem leiðir til einstakrar fjarlægðarstjórnunar í púttum hvort heldur púttað er í miðju með hæl eða tá. Annað lykilatriði nýju pútterana er að hægt er að lengja og stytta skaftið og því eru pútterarnir kjörnir fyrir þá sem vanir eru löngu pútterunum og verða að fara að stytta þá í hefðbundna lengd. Aðlaganleg lengd pútterana er höfð til að hámarka frammistöðu kylfinga á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2013 | 13:30
Asíutúrinn: Jefri prins af Brunei tekur þátt í lokaúrtökumóti Asíutúrsins

Abdul Hakeem Jefri Bolkiah prins af Brunei er einn af 761 kylfingum sem mun keppa á úrtökumóti Asíutúrsins í Thaílandi í þessum mánuði. Jefri prins er 39 ára og er fyrsti Olympíufari Brunei, tók þátt í skotfimi (ens. skeetshoting) á Olympíuleikunum 1996 í Atlanta. Jefri prins verður að vera meðal 40 efstu á úrtökumótinu ætli hann sér að verða fyrsti kylfingur Brunei á Asíumótaröðinni. Prinsinn byrjaði í golfi þegar hann horfði á afa sinn – fyrrum soldán í Brunei – spila og gerðist atvinnumaður í golfi á síðasta ári eftir að hann kom forgjöf sinni niður í 0. Hann er einn af 156 kylfingum sem búið er að skrá til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 23:59
PGA: Carl Petterson: Bann á löngum pútterum „nornaveiðar“

Nú eru flestir sigurvegarar á PGA Tour frá því á síðasta ári komnir til Kapalua í Hawaii en þar hefst ekki á morgun heldur hinn Tournament of Champions, þ.e. mót þeirra sem sigruðu mót á PGA Tour á síðasta ári. Meðal þeirra sem þar er, er sænsk-bandaríski kylfingurinn Carl Petterson. Hann tjáði sig um fyrirhugað bann á löngum pútterum í gær. Pettersson sagði m.a. að fyrirhuguð regla um að banna langa púttera væru „nornaveiðar“ og að stjórnvöld innan golfheimsins væru að bregðast við sigrum síðustu 3 af síðustu 5 risamótssigurvegurum. „Það virðist heimskulegt að banna nokkuð sem hefir verið til staðar í 40 ár,“ sagði Petterson í fyrstu ummælum sínum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 18:00
Birgitta Guðmundsdóttir býður upp á Golfjóga í Amara Yoga

Amarayoga er lítið jógastúdíó á Strandvegi 11 í Hafnarfirði. Þar býður Birgitta Guðmundsdóttir upp á golfjóga fyrir þá sem vilja koma sér í form fyrir golfvorið og sumarið 2013, sem framundan eru. Til þess að komast á facebook síðu Amarayoga SMELLIÐ HÉR: Hér er dagskráin: Með orðum Birgittu: „Ný 6 vikna jóga námskeið að byrja 7. janúar fyrir golfara i Hafnarfirði á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17.30 og kl 19.00. Kennt í litlum 8-10 manna hópum. Er búin að sjá frábæran árangur hjá þeim sem hafa verið á námskeiðum hjá mér. Við aukum styrk, jafnvægi, liðleika, einbeytingu og verðum meðvituð um öndun. Umfram allt þá verðum við meðvitaðri um líkamann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 17:30
Golfútbúnaður: PING G25 járnin eru bæði þynnri og meira fyrirgefandi

Þegar PING kynnti fyrst G-seríuna fyrir nákvæmlega 10 árum, þ.e. árið 2003, var markmiðið að hanna og framleiða mest fyrirgefandi kylfur í sögu PING. Þetta markmið hefir haldist s.l. áratug, en með tilkomu G25 í dag, voru hönnuðir PING að leitast eftir fyrirgefanleika í straumlínulagaðra/þynnra formi. G25 er sjötta viðbótin í línu PING af stálkylfum, sem jafnframt hefir að markmiði að bæta leikinn. G25 mun hafa sama MOI (ensk skammst. fyrir: moment of inertia) og forverinn G20. En toppurinn, vídd sólans og offset-ið hafa verið endurhönnuð í hverri kylfu til þess að hámarka leikanleika (léleg þýðing á enska orðinu playability). Meðan að G20 viðhélt nánast stöðugri stærð á sóla sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 16:00
Afmæliskylfingar dagsins: Marólína og Björgvin – 2. janúar 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru hjónin Marólína Erlendsdóttir og Björgvin Björgvinsson. Þau eru bæði fædd 2. janúar 1954 og eru því 59 ára. Þau hjón eru bæði í Golfklúbbi Reykjavíkur. Komast má á facebook síðu Marólínu til þess að óska þeim Björgvini til hamingju með daginn þeirra hér að neðan: Marólína Erlendsdóttir og Björgvin Björgvinsson, GR. f. 2. janúar 1954. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Andrea Perrino, 2. janúar 1984 (29 ára) ….. og ……. Börkur Gunnarsson f. 2. janúar 1970 (43 ára) Stefán Hrafn Jónsson f. 2. janúar 1968 Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 13:30
GA: Auður Dúadóttir, Vigfús Ingi Hauksson og Stefán Einar Sigmundsson sigruðu í Áramótapúttmóti unglingaráðs GA
Metþátttaka var í Áramótapúttmóti unglingaráðs GA. Aldrei hafa jafn margir kylfingar tekið þátt í púttmóti á vegum klúbbsins, keppt var í 3 flokkum karla, kvenna og unglingaflokki. Keppni var mjög jöfn í öllum flokkum og þurfti að telja til baka til að fá úrslit. Sigurvegarar í karlaflokki voru allir með 31 pútt: Vigfús Ingi Hauksson var í 1. sæti, Anton Ingi Þorsteinsson í 2. sæti og Þórir V. Þórisson í 3. sæti Í kvennaflokki sigraði Auður Dúadóttir hún var með 31 pútt, í 2. sæti var Anna Einarsdóttir með 32 pútt og í 3. sæti Halla Sif Svavarsdóttir með 33 pútt, einnig með 33 pútt voru þær Brynja Herborg og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 13:00
GKG: Ingunn og Ragnar Már tilnefnd til íþróttakarls- og konu Garðabæjar og Kópavogs

Úlfar Jónsson, íþróttastjóri GKG ritar eftirfarandi á heimasíðu GKG: „Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla! Framundan er val á Íþróttakarli og Íþróttakonu Garðabæjar og Kópavogs. Tilnefningar GKG til beggja bæjarfélaga eru þau Ragnar Már Garðarsson og Ingunn Gunnarsdóttir. Hér fyrir neðan má sjá ágrip af árangri þeirra á síðastliðnu tímabili: Í Garðabæ verður um netkosningu að ræða, en verðlaunahátíðin sjálf fram í sal FG sunnudaginn 13. janúar kl. 13:00. Eins og segir í tilkynningu frá Garðabæ þá fer val á íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar fram með opinni vefkosningu eins og síðustu tvö ár á íbúagátt Garðabæjar í fyrstu viku nýs árs. Atkvæði í þeirri kosningu vega jafnt á móti Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

