
Birgitta Guðmundsdóttir býður upp á Golfjóga í Amara Yoga
Amarayoga er lítið jógastúdíó á Strandvegi 11 í Hafnarfirði. Þar býður Birgitta Guðmundsdóttir upp á golfjóga fyrir þá sem vilja koma sér í form fyrir golfvorið og sumarið 2013, sem framundan eru. Til þess að komast á facebook síðu Amarayoga SMELLIÐ HÉR:
Hér er dagskráin:
Með orðum Birgittu:
„Ný 6 vikna jóga námskeið að byrja 7. janúar fyrir golfara i Hafnarfirði á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17.30 og kl 19.00. Kennt í litlum 8-10 manna hópum.
Er búin að sjá frábæran árangur hjá þeim sem hafa verið á námskeiðum hjá mér.
Við aukum styrk, jafnvægi, liðleika, einbeytingu og verðum meðvituð um öndun. Umfram allt þá verðum við meðvitaðri um líkamann og minnkum því líkur á meiðslum.
Frábært fyrir golfhópa að koma saman yfir vetramánuðina og undirbúa líkamann fyrir komandi sumar.
Ef golfhópar vilja mæta saman og vera sér þá er hægt að athuga það á öðrum tíma.
Þeir sem ætla að vera með eða hafa spurningar geta sent mér póst á golfjoga@gmail.com.
kveðja Birgitta Guðmundsdóttir.“
Eins er síminn í Amarayoga 616-8617 (óskýrt á stundatöflu að ofan).
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024