Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 11:00

PGA: Hvaða kylfingar eru vísir til að skína skærast 2013? Myndskeið

Hvaða kylfingur er vís til að slá í gegn árið 2013 – hver mun eiga gott ár? PGA Tour hefir tekið saman þá 10 sem þeir telja líklegasta til þess að skína skærast 2013  SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 09:30

Golfútbúnaður: Nýi PING G25 dræverinn – Myndskeið

Hunter Mahan og Bubba Watson notuðu og prófuðu nýja PING G25 dræverinn fyrstir allra í World Challenge mótinu á síðasta ári. Mahan sló jafnvel með G25 drævernum (9,5°) og með 15° G25 brautartré. Bubba var með G25 dræverinn (8,5°) í sínum klassíska bleika lit. Nýi G25 dræverinn er með flesta sömu eiginleika þ.á.m. skrúfuna að framan á kylfuhausnum og PING Anser dræverinn, sem kynntur var s.l. sumar. Búist er við að PING G25 komi á markað í febrúar n.k. Hér má sjá kynningarmyndskeið um nýja PING G25 dræverinn SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 09:00

GKJ: Bragi Jónsson sigraði í Áramóti GKJ

Hið árlega Áramót GKJ fór fram með breyttu sniði að þessu sinni. Mótinu var breytt í púttmót og það voru 24 sem tóku þátt og var bryddað uppá nýjungum til að flýta leik. Fyrst voru leiknar 3×9 holu hringir þar sem aðeins ásar voru taldir og síðan máttu menn halda áfram og taka 9 holur aðeins með hægri hendi og 9 holur aðeins með vinstri og síðan að reyna að shippa í fötu (5 boltar) á inniæfingasvæðinu. Úrslit aðals mótsins urðu þessi:   1. Bragi Jónsson, 12 ásar 2. Skúli Skúlason, 11 ásar (eftir bráðabana) 3. Emil Karlsson, 11 ásar   Aðeins ein verðlaun voru fyrir framhaldið og þar sigraði Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 08:00

Kyle Stanley og Nick Watney ganga til liðs við Nike – „stór tilkynning“ væntanleg frá Nike 14. janúar n.k.

Nike Golf hóf árið með því að tilkynna að gerður hefði verið samningur til fjölda ára við PGA leikmennina Kyle Stanley og Nick Watney. Um er að ræða samninga þar sem ofangreindir leikmenn taka að sér að auglýsa golfbolta, kylfur, skófatnað, hanska, klæðnað, höfuðfatnað og aukahluti til golfiðkunar frá fyrirtækinu. „Þeir vilja hafa bestu íþróttamennina í teymi sínu og það er heiður að vera hluti af því og vera fulltúi þeirra,“ sagði Kyle Stanley m.a. í fréttatilkynningu. Stanley og Watney, sem m.a. munu m.a. nota nýja VR-S Covert dræverinn frá Nike á opnunarmóti keppnistímabil PGA Tour í Kapalua, á Hawaii í þessari viku. Sjá kynningu Golf 1 á VR-S Covert drævernum með því að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 07:00

GG: Staða GG traust þrátt fyrir miklar framkvæmdir og aukna skuldsetningu

Aðalfundur Golfklúbbs Grindavíkur fór fram í golfkskálanum 29. desember síðastliðinn og var hann vel sóttur. Sjá skýrslu gjaldkera fyrir árið 2012. Um 209 meðlimir eru nú í GG og stendur fjöldinn í stað frá í fyrra.  Enn standa yfir stækkunarframkvæmdir á vellinum og má gera ráð fyrir um 4-5 milljón króna kostnaði til að ljúka þeim.   Einnig hefur verið lögð mikil vinna við stækkun og endurbætur á framtíðarskála GG sem nú er að mestum hluta lokið. Sjá skýrslu stjórnar fyrir árið 2012 Ágætis rekstrarár er að baki hjá Golfklúbbi Grindavíkur og nemur tap ársins um 2 milljónum króna. Rekstrartekjur ársins voru um 39,2 milljónir sem er hækkun um 10,5 milljónir frá árinu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 1. 2013 | 22:30

Afmæliskylfingur Nýársdags 2013: Gestur Már Sigurðsson

Afmæliskylfingur dagsins er Gestur Már Sigurðsson. Gestur Már er fæddur 1. janúar 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Gestur Már er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hann er sérlega snjall púttari og er iðulega í verðlaunasætum á púttmótum GK. Komast má á facebook síðu Gests Más til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan: Gestur Már Sigurðsson (50 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mike Sullivan, 1. janúar 1955 (58 ára); Paul Lawrie, 1. janúar 1969 (44 ára)…… og ….. Emil Thorarensen Guðrún Ólöf Þorbergsdóttir (49 ára) Heaton Park (101 árs)      Baldvin Njálsson (25 ára) Portugal Golf Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 1. 2013 | 22:00

Afmæliskylfingur Gamlársdags: Ólafur Árnason – 31. desember 2012

Afmæliskylfingur gærdagsins, Gamlársdag 2012, var Ólafur Árnason. Ólafur er fæddur 31. desember 1962 og átti því 50 ára stórafmæli!!! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn eftir á: Ólafur Árnason f. 31. desember 1962  (50 ára merkisafmæli!!!) Aðrir frægir kylfingar sem áttu afmæli á Gamlársdag 2012 voru:  Michael Francis Bonallack, 31. desember 1934 (78 ára); David Ogrin, 31. desember 1957 (55 ára);  Bobby Gates, 31. desember 1985 (27 ára) ….. og ……. Dagný Davíðsdóttir f. 31. desember 1964 (48 ára) Valtþór Óla f. 31. desember 1961 (51 árs ) Kristinn Nikulásson f. 31. desember 1954 (58 ára) Golf 1 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 31. 2012 | 12:00

Gleðilegt nýtt ár 2013!

Golf 1 óskar lesendum sínum svo og öllum kylfingum nær og fjær gleðilegs nýs árs 2013,  með mörgum gleðistundum í golfi á komandi ári. Golf1 hefir nú verið starfandi í rúma 15 mánuði, þ.e. 1 ár , 3 mánuði og 6 daga og hafa á þeim tíma birtst tæp 4500 greinar, á 2. hundrað myndaseríur og á 2. hundrað viðtala við erlenda jafnt sem innlenda kylfinga. Kylfingar innanlands, sem og vaxandi fjöldi erlendra kylfinga hafa tekið þessum yngsta golffréttavef Íslands framúrskarandi vel og umferð um vefinn ekkert nema aukist frá því hann hóf starfsemi 25. september 2011. Ýmsar nýjungar verða á döfinni á Golf1 á næsta ári, 2013, sem kynntar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 30. 2012 | 18:15

Veikur Ragnar Már lauk keppni í Miami í dag

Ragnar Már Garðarsson, GKG, lék veikur, þ.e. með hita fyrstu dagana á Orange Bowl International Championship, en hann hefir sökum þess ekki náð að sýna sínar réttu hliðar. Mótið hefir staðið undanfarna 3 daga og var 4. og lokahringurinn spilaður í dag. Þetta er sterkt mót, sem haldið er árlega og þar sem margir af bestu ungu kylfingum í Bandaríkjunum og hvaðanæva úr heiminum keppa á. Mótið veitir mörg stig til heimslista áhugamanna. Þrátt fyrir veikindi náði Ragnar Már að bæta sig nánast með hverjum deginum og verður að segja að hann hafi sýnt mikinn karakter að klára mótið! Í dag lék Ragnar Már lokahringinn á 4 yfir pari, 75 höggum, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 30. 2012 | 18:00

Jiménez fótbrotnaði á skíðum

Spænski kylfingurinn Miguel Ángel Jiménez fótbrotnaði þegar hann féll í skíðabrekku og mun verða frá golfleik í 5 mánuði.  Jiménez sagði í fréttatilkynningu í dag að hann hefði gengist undir skurðaðgerð eftir slysið í gær á laugardag. Jiménez sagði: „Ég var að spila vel, en maður verður að taka lífinu eins og það kemur fyrir.“ Jimenéz var varafyrirliði í liði Evrópu í Ryder bikarnum í Medinah s.l. september. Í nóvember varð hinn 48 ára Jiménez elsti sigurvegari Evrópumótaraðarinnar þegar hann halaði inn 3. sigri sínum í Hong Kong. Miguel Ángel hefir unnið til 19 titla á Evrópumótaröðinni.