Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2013 | 19:30

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Daniel Gaunt – (22. grein af 28)

Í kvöld verður Ástralinn Daniel Gaunt kynntur, en hann deildi  7. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona á Spáni, dagana 24.-29. nóvember s.l.  ásamt Englendingnum Matthew Southgate, sem þegar hefir verið kynntur. Daniel Gaunt fæddist í Melbourne 14. nóvember 1978 og er því 34 ára. Í Ástralíu er Daníel félagi í Burhill golfklúbbnum. Daníel gerðist atvinnumaður í golfi 1999 og hefir 8 sinnum síðan þá farið í Q-school þ.e. í öll skipti frá því að hann gerðist atvinnumaður nema 5, en í 2 af þeim skiptum þurfti hann ekki þar sem honum tókst að halda kortinu sínu á Evrópumótaröðinni og 2010 spilaði hann og átti geysigott Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2013 | 18:30

Mestu sleggjurnar beggja vegna Atlantsála á samningi hjá Callaway eftir að samningur var gerður við Colsaerts

Callaway Golf getur nú montað af því að vera með mestu sleggjurnar beggja vegna Atlantsála á samningi hjá sér eftir að gengið var frá samningi við Belgann Nicolas Colsaerts. Þessi frábæri Ryder bikars nýliði er meðal margra þekktra kylfinga sem hafa skipt úr Titleist kylfum yfir í Callaway fyrir 2013 keppnistímabilið. Í golfpoka Nicolas Colsaerts munu því vera 10 Callaway kylfur í þegar hann hefur keppni í fyrsta móti sínu á 2013 keppnistímabilinu í næstu viku. Colsaerts staðfesti á vefsíðu sinni að hann hefði gengið frá 10 kylfu samningi og í Volvo Champions mótinu í næstu viku Durban mun hann nota nýja Callaway 9.5°Razr Head Dræver, CallawayDynamic Gold X-100 járn (wað undanskildu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2013 | 17:30

Evróputúrinn: Leikmenn reyna að bera fram hin ýmsu nöfn kylfinga á túrnum – Myndskeið

Hvernig ber maður fram nöfn kylfinga á borð við Joost Luiten, Julien Quesne, Jaco Van Zyl, Pablo Larrazabal og fleiri? Nokkrir kylfingar Evrópumótaraðarinnar, þ.á.m. Robert Rock, Matteo Manassero og Brendan Grace  reyna að bera fram hin ýmsu nöfn félaga sinna á Evrópumótmótröðinni og er það hin besta skemmtun að hlusta á þá bögglast að nöfnunum 🙂 Til þess að sjá myndskeið þar um SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2013 | 17:00

Svarti jagúarinn hans Lee Westwood til sölu

Þar sem Lee Westwood er að flyta alfarinn til Bandaríkjanna þá hefir þessi fyrrum nr.1 á heimslistanum sett sportlega, svarta jagúarinn sinn á söluskrá. Þetta er jagúar af XJ gerð aðeins ekinn 11.500 mílur þ.e. fram og tilbaka á nærliggjandi golfklúbb. Meðal staðalútbúnaðar sem fylgir bílnum eru svört jagúar Jet leðursæti, Four Zone Dual Climate Control, 20″ Mataiva Alloy hjólbarðar, aðlaganleg ljós, Bluetooth símaport, neyðarbremsur, aðstoðar kvikmyndavélar þegar bílnum er lagt (ens. Front and Rear Park Assist with Camera); færanlegt elektrónískt þak, svört innrétting (ens. Piano Black and Carbon Inlays), skemmtipakki með 3 þráðlausum „headphone-um“; dýnamísk stöðugleikastjórn (ens. Dynamic Stability Control), fjölvirknis leðurstýri með val um hita í því (ens. Leather Steering Wheel with Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2013 | 14:30

Latanna Stone 11 ára – næsta golfstjarna Bandaríkjamanna?

Á stjörnuhimni golfheimsins í Bandaríkjunum skín stjarna hinnar 11 ára Latönnu Stone skært. Hún er aðeins venjuleg 11 ára stelpa, sem langar í MacBookPro þegar orðin leið á iPodinum sínum vegna þess að hann les ekki DVD diskana hennar. En venjuleg bara fram að því að kemur að golfleik hennar. Síðastliðið sumar varð Stone nefnilega yngsti kylfingurinn til þess að hljóta þátttökurétt á  U.S. Women’s Amateur, þá aðeins 10 ára. Pabbi hennar sem skráði hana í mótið varð alveg þurr í munninum þegar hann gerði sér grein fyrir því sem var að gerast; dóttir hans að slá aldursmet í einu elsta kvennamóti heims.  Tiltölulegt létt verk var að keyra dótturinni á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2013 | 13:30

Afmæliskylfingur dagsins: Róbert Óskar Sigurvaldason – 4. janúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Róbert Óskar Sigurvaldason. Róbert Óskar er fæddur 4. janúar 1973 og á því 40 ára stórafmæli í dag! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Róbert Óskar Sigurvaldason (40 ára merkisafmæli – Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  David Toms, 4. janúar 1967 (46 ára); Björn Åkesson, 4. janúar 1989  – 24 ára (nýliði á Evrópumótaröðinni 2013)  ….. og ….. ….. og …….   Þórður Emil Ólafsson (39 ára) Björgvin Jóhannesson (35 ára) Thor Aspelund (44 ára) Tinna Osk Oskarsdottir (29 ára) Alex Freyr Gunnarsson Gestur Pálsson (48 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2013 | 09:00

Golfútbúnaður: Slegið 9 metrum lengra með nýja TaylorMade Rocketballz 3-trénu!

TaylorMade Rocketballz Stage 2 brautartrén og björgunar hybrid kylfurnar 2013 eru væntanlegar á markað 1. febrúar 2013. Nýja línan heitir Rocketballz Stage 2. TaylorMade er við það að auglýsa að með Rocketballz Stage 2 3-trjánum muni verða hægt að slá boltann 10 yördum (9 metrum) lengra en með  RocketBallz 3-trjám síðasta árs, 2012. Árinu þar áður var lengdaraukningin 17 yardar (15,5 metrar). Þannig að viðbættum 10 yördunum á þessu ári verður hægt að slá u.þ.b. 25 metrum lengra með nýju TaylorMade brautartrjánum og blendingunum en sambærilegum kylfum frá árinu 2011. En kylfurnar næstum auglýsa sig sjálfar og kylfingar sem hafa eitt sinn prófað Rocketballz vilja ógjarnan skipta á þeim. Tökum sem dæmi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2013 | 22:00

3 ára lítill golfsnillingur – Myndskeið

Hann Hudson litli er bara 3 ára. Hér er hann á æfingasvæðinu á Texas A&M’s Traditions golfvellinum og slær 7 bolta, einn fyrir hvern dag vikunnar. Foreldrar hans segja að ef stubburinn fengi að ráða væri hann á æfingasvæðinu allan daginn, 7 daga vikunnar!!! Ef Hudson heldur þessu áfram er hér e.t.v. kominn framtíðaratvinnumaður….. hugsið ykkur bara 3 ára og hann á heila golfævi framundan!!! Til þess að sjá myndskeið með Hudson 3 ára slá golfbolta SMELLIÐ HÉR:    (Athugið athugasemdirnar með myndskeiðinu en þar virðist Bubba Watson vera að hrósa stráksa – enda höggin ótrúlega góð hjá honum svona ungum). Hér má sjá enn eitt myndskeið (frá 2007) af öðrum 3 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2013 | 20:30

Afmæliskylfingur dagsins: María Guðrún Nolan – 3. janúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er María Guðrún Nolan. María er fædd 3. janúar 1979 og á því 34 ára í dag. Hún er í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Komast má á facebook síðu Maríu Guðrúnar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: María Gudrún Nolan (34 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru eftirfarandi: Francis Clement Newton, f. 3. janúar 1874 – d, 3. ágúst 1946; Fred Haas, 3. janúar 1916-d. 26. janúar 2004; Ashley Chinner, f. 3. janúar 1963 (50 ára stórafmæli!!!); Trudi Jeffrey, 3. janúar 1970 (43 ára), Richard Finch 3. janúar 1974 (39 ára); Maria Boden, 3. janúar 1978 – 35 ára Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2013 | 20:00

Jaime Ortiz Patiño stofnandi Valderrama golfvallarins lést í morgun 82 ára

Jaime Ortiz-Patiño, sem kom fræga Valderrama golfvellinum á laggirnar og var einn af aðalhvatamönnum að vexti golfíþróttarinnar á Íberíuskaganum dó í dag, 82 ára . „Jaime Ortiz-Patiño…lést í morgun á sjúkrahúsi í Marbella á Costa del Sol,“ segir í fréttatilkynningu frá spænska golfsambandinu (RFEG), s.s. sjá má nánar á vefsíðu þess. Sjá með því að SMELLA HÉR: Foreldrar Patiño, sem fæddist í París 20. júní 1930 voru frá Bólívíu.  Ortiz-Patino var aðalmaðurinn á bakvið besta golfvöll Evrópu,  Valderrama golfvöllinn, sem hannaður var af Robert Trent Jones, um miðbik 9. áratugarins og lokkaði einnig framkvæmdaaðila Ryder bikarsins til þess að halda mótið á vellinum 1997, en það var í fyrsta sinn Lesa meira