Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2013 | 16:00
PGA: Russell Henley leiðir þegar Sony Open er hálfnað á Hawaii

Það er nýliðinn Russell Henley sem leiðir á Sony Open, þegar mótið er hálfnað. Henley skilaði inn hreinu skorkorti í gær fékk 7 fugla og 11 pör. Samtals er Henley búinn að spila á 14 undir pari, 126 höggum (63 63). „Í [jóla]fríinu átti ég ágætis hringi hér og sérstaklega eftir að ég lærði aðeins meira um vallarstjórnunina,“ sagði hinn 23 ára Henley eftir hringinn. „Ég veit alveg örugglega hvar virkar ekki [og] ég fékk svolítið sjálfstraust við það.“ „Þetta er svolítið súrrealistískt. Ég man þegar ég fékk kortið mitt [á PGA Tour] – og fjölskylda mín var þarna – og það var bara „Vá ég var að fá PGA TOUR kortið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2013 | 20:00
Viðtalið: Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG.

Viðtalið í kvöld er við Óðinn Þór Ríkharðsson, afrekskylfing í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Hann spilaði með góðum árangri á Unglingamótaröð Arion banka og Eimskipsmótaröðinni í sumar; aðeins 14 ára og oft yngstur manna í mótum þeirra bestu. Í fyrsta mótinu á Unglingamótaröðinni upp á Skaga, varð Óðinn Þór í 25. sæti, en hann keppti í drengjaflokki (15-16 ára drengja); í 2. mótinu á Þverárvelli varð Óðinn Þór í 2. sæti; á 3. mótinu í Korpunni varð Óðinn Þór í 3. sæti; á 4. mótinu Íslandsmótinu í höggleik varð Óðinn Þór í 7. sæti; á 5. mótinu Íslandsmótinu í holukeppni varð Óðinn Þór í 3. sæti og á síðasta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2013 | 19:30
Evróputúrinn: Louis Oosthuizen leiðir þegar Volvo Golf Champions er hálfnað í Suður-Afríku

Í dag lauk 2. umferð á Volvo Golf Champions í Durban í Suður-Afríku. Það er heima- og albatrossmaðurinn frá því í fyrra á The Masters, Louis Oosthuizen, sem tekið hefir forystu, átti frábæran hring í dag upp á 6 undir pari, 64 högg. Samtals er Oosthuizen því búinn að spila á 12 undir pari (68 64). Í 2. sæti eru Scott Jamieson frá Skotlandi og forystumaður gærdagsins, Thongchai Jaidee frá Thaílandi, aðeins 1 höggi á eftir Oosthuizen. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. hring Volvo Golf Champions SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2013 | 18:00
Golfvellir á Englandi: Waterfall og Kingfisher vellirnir á Mannings Heath – Myndskeið

Eins og lesendur Golf 1 hafa eflaust orðið varir við er hér til hægri á síðunni komin ný auglýsing frá GB ferðum og Icelandair en þar er verið að auglýsa vorferðir til vinsælla golfáfangastaða á Englandi. Það þarf ekki annað en að „smella á“ auglýsinguna þá opnast inn á vefsíðu GB ferða þar sem fá má upplýsingar um 10 spennandi ferðir, sem í boði eru. Nýr áfangastaður Icelandair er Gatwick og GB ferðir bjóða upp á 3 nýja gistimöguleika (á golfhótelum) á Gatwick svæðinu – Hægt er að bóka ferðirnar sem eru 4 daga í síma: 534-5000 eða á info@gbferdir.is. Hægt er að spila golf báða ferðadagana, sem er auðvitað Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingar dagsins: Kristján Þór Einarsson og Vilhjálmur V. Matthíasson – 11. janúar 2013

Annar afmæliskylfinga dagsins er Kristján Þór Einarsson afrekskylfingur. Kristján Þór er fæddur 11. janúar 1988 og á því 25 ára stórafmæli í dag!!! Hann er núverandi klúbbmeistari Golfklúbbsins Keilis, vann sigur í einu eftirminnilegasta meistaramóti seinni tíma þar sem þurfti fjölmargar holur í bráðabana til þess að knýja á um úrslit. Kristján Þór er nú genginn til liðs aftur við sitt gamla félag, GKJ í Mosfellsbænum. Hann og sambýliskona hans Marý eiga von á sínu fyrsta barni í vor. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Kristján Þór Einarsson (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Eins á merkisafmæli í dag Vilhjálmur V. Matthíasson. Vilhjálmur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2013 | 11:30
GOT: Herrakvöld GOT – Laugardalshöll föstudaginn 5. apríl n.k

Hið geysivinsæla Herrakvöld GOT verður haldið í Laugardalshöll föstudaginn 5. apríl n.k. Takmarkaður sætafjöldi er í boði svo nú er um að gera að hafa hraðar hendur. Gestir síðasta árs ásamt velunnurum félagsins hafa forgang í miðasölu en almenn miðasala hefst 1. febrúar – Fyrstir koma, fyrstir fá! Húsið opnar að venju með heiðursmóttöku l. 19:00 en borðhald og skemmtun hefst kl. 20:00. Veisluhlaðborðið sem er orðið landsfrægt verður að sjálfsögðu á sínum stað! Fjölmargir listamenn koma og leika listir sínar eða syngja! Aðgöngumiði er á aðeins kr. 7.900,- Miðapantanir á got@got.is eða í gegn um góðan Tudda!
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2013 | 10:15
Graeme McDowell kvænist Kristinu Stape… líklega í árslok 2013

Þó Rory McIlroy og Caroline Wozniaki séu ekki að fara að giftast þá er annað upp á teningnum hjá vini og samlanda Rory, Graeme McDowell og kærestu hans Kristin Stape. Þetta var í fyrsta sinn sem Graeme var fjarri fjölskyldu sinni í Portrush, Co Antrim, á Norður-Írlandi á jólunum, en hinn 33 ára G-Mac hélt upp á jólin í Flórída með heitkonu sinni í glænýju húsi þeirra. Innanhúsarkítekinn Kristin Stape (33 ára) sagði í viðtali við Irish Independent að þau ætluðu að halda upp á brúðkaupið beggja vegna Atlantsála þannig að fjölskylda Graeme gæti tekið þátt í brúðkaupinu. Kristin gaf ekkert upp um nákvæma dagsetningu brúðkaupsins, en talið er að af því Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2013 | 09:45
Evróputúrinn: Krafa Tiger um $3 milljónir bara fyrir að mæta í mót er jafnvel of mikið fyrir olíufurstana í Qatar

Það má vel vera að þátttaka Tiger Woods í móti tryggi að áhorfendur flykkist á mótið, en jafnvel olíufurstarnir í Qatar finnst það ekki taka því að borga $ 3 milljónir bara fyrir að Tiger mæti. $ 3 milljónir er uppsett verð á Tiger í Qatar Masters, sem fram fer 23.-26. janúar n.k. var haft eftir forseta golfsambands Qatar, Hassan al Nuaimi. „Tiger Woods fer fram á $3 milljónir bara fyrir að mæta, ef hann myndi keppa – það er ekki þess virði í móti þar sem verðlaunafé er aðeins $2.5 milljónir,“ sagði Nuaimi við Doha News. Þess í stað byrjar 14-faldur risamótssigurvegarinn Tiger tímabilið í Abu Dhabi eins og Golf 1 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2013 | 09:00
Rory stofnuninni komið á laggirnar – til stuðnings góðgerðarsamtökum í þágu barna

Rory McIlroy hefir komið á laggirnar Rory stofnuninni „The Rory Foundation“ sem hefir að markmiði að hjálpa þurfandi börnum í heiminum. Fyrsta átak stofnunarinnar er „6 poka átakið“ (ens.: 6 Bags Project ) og var tilkynnt um það í gær í Holywood, Co. Down, Norður-Írlandi – þar sem Rory fæddist. „Þegar ég var yngri fórnuðu foreldrar mínir öllu til þess að ég gæti spilað leikinn sem ég elska,“ sagði sigurvegari á stigalista Evrópumótaraðarinnar. „Að hafa þennan stuðning fjölskyldunnar varð til þess að ég gat eltst við drauma mína. En ég veit að það eru ekki öll börn svo heppin. Tilgangur Rory stofnunarinnar er að styðja við bakið á góðgerðarsamtökum, stórum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2013 | 04:30
PGA: Nýliðinn Scott Langley í forystu á 1. degi á Sony Open á Hawaii

Það er nýliðinn Scott Langley sem leiðir á Sony Open á Waialea golfvellinum í Hawaii, en mótið hófst í gærkvöldi og fyrsta hring var að ljúka rétt í þessu. Langley skilaði inn „hreinu skorkorti“ á þessu fyrsta móti sínu sem fullgildur félagi á PGA Tour. Hann var á 8 undir pari, 62 höggum; fékk 1 glæsiörn á par-5 9. brautinni, 6 fugla og 11 pör. Glæsileg spilamennska þetta og unun að horfa á!!! Langley er fæddur 28. apríl 1989 og því 23 ára. Hann er nýútskrifaður endurskoðandi frá Illinois háskóla og hefir átt mjög farsælan feril í bandaríska háskólagolfinu. Skoða má afrek Langley golflega séð í menntaskóla og háskóla með Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

